Á sviðinu Erfðir og eldi er erfðagreiningum beitt í kynbótastarfi og í rannsóknum á stofnerfðafræði dýra.
Markmið er að vera leiðandi í erfðagreiningum á helstu eldisstofnum landsins og reka vottunarhæfa rannsóknastofu í erfðagreiningum. Einnig er boðið upp á stofn- og upprunagreiningar sem tæki til auðlindastjórnunar, stofngreininga og rekjanleikarannsókna.
Í rannsóknum tengdum fiskeldi er meginmarkmiðið að bæta árangur atvinnugreinarinnar með rannsóknum, þróun og nýsköpun í samstarfi við fyrirtæki, háskóla og innlenda og erlenda rannsóknaaðila og skila aukinni þekkingu og færni sem gefur möguleika á bættri afkomu og gæðum sjávarfiska á fyrstu stigum eldisins en það er megin flöskuhálsinn í framleiðslunni.
Faghópar á sviðinu eru:
- Erfðatækni
- Fiskeldi
Sviðsstjóri:
Ragnar Jóhannsson
Fagstjórar:
Sigríður Hjörleifsdóttir
Rannveig Björnsdóttir
