Okkar rannsóknir, allra hagur
Erfðatækni


Markmið faghópsins er að nýta erfðatækni til DNA greininga af ýmsu tagi. Verkefni á sviði erfðatækni felast í erfðagreiningum á ýmsum nytjastofnum og öðrum villtum stofnum og úrvinnslu gagna. Verkefni felast einnig í raðgreiningum á erfðaefni lífvera og leit að nýjum erfðamörkum, ásamt þróun á erfðagreiningarsettum.

Dæmi um DNA greiningarnar eru foreldragreingar á fiski í eldi, hrossum og fleiru. Einnig eru gerðar rannsóknir á erfðabreytileika í villtum fiskistofnum, svo sem á laxi í veiðiám á Íslandi. Erfðagreiningum hefur einnig verið beitt í rannsóknum á leturhumri, við rannsóknir á vexti og kynþroska þorsks á Íslandsmiðum, í rannsóknum á síld, sandhverfu og hrefnu, svo dæmi séu tekin.

Erfðagreiningar hafa verið notaðar í mannerfðafræði undanfarna áratugi en þessari tækni er nú í vaxandi mæli beitt í dýrafræði og sér í lagi er hún mikilvæg við rannsóknir á villtum sjávarstofnum. Þá er einnig mikilvægt markmið að þróa erfðamörk en góð erfðamörk eru grundvöllur árangursríkra rannsókna af þessu tagi.

Í kynbótastarfi búfjár er sérstakur áhugi á að greina gen sem geta stjórnað vexti, fóðurnýtingu, matarlyst, frjósemi, geðslagi og fjölda annarra eiginleika og hægt er að hafa áhrif á hlutfall þessara gena með kynbótum. Rannsóknir á erfðamengi búfjár geta stórlega aukið skilning á erfðafræðilegri stjórnun mikilvægra eiginleika og bætt kynbótastarf til mikilla muna. Matís er eina fyrirtækið á Íslandi sem hefur byggt upp og býður erfðagreiningar á dýrum dýra á Íslandi.

Sjá má lista yfir öll verkefni á sviðinu Erfðir og eldi hér.



Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica