Okkar rannsóknir, allra hagur
DNA greiningar


Matís býður DNA greiningar á dýrum og á umhverfissýnum; þ.a.s foreldra- og stofngreiningar á dýrum sem nýtast í kynbótastarfi,stofnerfðafræði og við rekjanleikarannsóknir auk örverugreininga á umhverfissýnum. Endurteknar stuttraðir (microsatellite markers) í DNA lífverunnar eru hafðar til grundvallar ásamt DNA basaröðum ákveðinna gena.

Nánari upplýsingar um verð o.fl.

Helstu erfðagreiningar:

  • Foreldragreiningar
  • Stofngreiningar
  • Tegunda- og rekjanleikagreiningar
  • Örverugreiningar
  • Tegundagreiningar á einstökum bakteríum

Dæmi um erfðagreiningarverkefni:

  • Upprunagreining á Atlantshafslaxi.
  • Foreldragreining á laxi, þorski, lúðu, hestum.
  • Stofnerfðarannsóknir á villtum laxi, þorski, hrefnu, langreiði, karfa, hrossum og hænsnum.
  • Örverugreining á lífríki í hverum á Hengilssvæði, Torfajökulssvæði og Krísuvík.

Erfðagreiningaraðferðir:
Hjá Matís hefur á undanförnum árum verið unnið að uppbyggingu á erfðagreiningum dýra. Bæði er unnið með arfgerðargreiningu þar sem notast er við endurteknar stuttraðir (microsatellite markers) í erfðaefninu, en einnig með raðgreiningar. Ýmis rannsókna- og þróunarverkefni á þessu sviði hafa verið unnin. Sem dæmi má nefna að ný erfðamörk í þorski hafa verið fundin og þróuð áfram í nothæfar erfðagreiningaraðferðir, sem gerir kleift að greina margar arfgerðir samtímis. Þróuð hafa verið mörg erfðagreiningarsett af þessu tagi fyrir ýmsar dýrategundir, sem henta vel bæði við stofngreiningar, við kynbótastarf, við foreldragreiningar og í rekjanleika- og upprunarannsóknir. Einnig er verið að vinna rannsóknaverkefni sem hafa það markmið að tengja svipgerðir eins og vöxt við arfgerðir.

Fyrirtækið hefur mikla reynslu og þekkingu á þessu sviði og tækjakost sem gerir kleift að vinna þúsundir sýna á stuttum tíma. Í lista hér að neðan fylgja upplýsingar um þau erfðamarkasett sem þegar eru tilbúin hjá Matís.

Listi yfir erfðagreiningaraðferðir.

Senda grein


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica