Lifun lirfa á fyrstu stigum eldisins er megin flöskuhálsinn við eldi sjávarfiska og hefur sérstök áhersla verið lögð á forvarnir á þessu stigi eldisins.
Fóðurkostnaður er ríflega helmingur af rekstrarkostnaði í fiskeldi og því mikilvægt að leita leiða til þess að lækka fóðurkostnað án þess að það komi niður á vexti og heilbrigði fisksins. Fóðurrannsóknir stuðla jafnframt að þróun markvissari næringar sem miðast að þörfum fi sksins.
Megin áhersla hefur verið lögð á notkun nýrrar ljósatækni til frestunar/útilokunar kynþroska við áframeldi á þorski. Við uppbyggingu þorskeldis hefur verið stuðst við þekkingu sem aflast hefur við eldi annarra tegunda en ljóst er að eldistækni er mikilvægt áherslusvið við eldi á þorski.
Helstu áherslur í fiskeldi
- Að bæta afkomu, vöxt og gæði sjávarfiska á fyrstu stigum eldisins.
- Að þróa eldri og nýja tækni til að auka hagkvæmni við framleiðslu helstu nytjategunda í eldi.
- Að leita leiða til lækkunar fóðurkostnaðar í fiskeldi án þess að það komi niður á vexti fisksins eða gæðum afurða.
Helstu verkefni sem unnið er að
- Lífvirk efni í lirfueldi lúðu og þorsks.
- Þróun aðferða við myndgreiningu.
- Framleiðsla hjóldýra fyrir þorskeldi.
- Próteinþörf bleikju.
- Kjöreldisaðstæður í bleikjueldi.
- Votfóður fyrir eldisþorsk.
- Ljóslotustýring í þorskeldi.
