Sviðið Líftækni og lífefni vinnur að uppgötvun og þróun nýrra ensíma til nota í rannsókna-, matvæla-, lyfja-og orkuiðnaði. Unnið er að notkun þörunga sem framleiðslukerfa og notkun lífveruverkfræði (metabolic engieering) við hönnun framleiðslulífvera til efnasmíða. Einnig er unnið að einangrun, framleiðslu, umbreytingu og þróun lífvirkra efna og matvæla og eiginleikar þeirra (t.d. blóðþrýstingslækkandi- og andoxandieiginleikar) ákvarðaðir með mismunandi rannsóknaraðferðum.
Áralangar rannsóknir
Mikið af starfi sviðsins byggir á áralöngum rannsóknum á ensímum sem einangruð hafa verið úr hitakærum örverum og stór þáttur í starfseminni felst í skimun og könnun á nýjum ensímum úr lífverum sem lifa við jaðarskilyrði lífs, háan hita, mikinn kulda lágt sýrustig og svo framvegis til nota í iðnaði.
Umhverfismat
Á sviðinu er unnið að verkefnum á sviði örverufræði, t.d. umhverfismati og greiningum á tegundasamsetningu í blönduðum sýnum, t.d. úr hverum, sjó, seti og frárennsli. Hér er vistfræðileg nálgun byggð á erfðafæðilegum grunni, þ.e. raðgreiningum á tegundagreinandi geni þar sem ræktun örvera er ekki lengur nauðsynleg.
Rannsóknir á lífríki í hverum
Meðal verkefna má t.d. nefna rannsóknir á lífríki í hverum á háhitasvæðum í tengslum við Rammaáætlun. Einnig er unnið að ýmsum rannsóknaverkefnum styrktum af innlendum fyrirtækjum og erlendum sjóðum þar sem raðgreiningar og arfgerðargreiningar eru nýttar.
Heilsubætandi fæðuefni, t.d. fæðubótarefni og sérfæði
Mikilvægur hluti af starfsemi sviðsins er fólginn í rannsóknum og þróun á nýjum og heilsubætandi fæðuefnum með ensímtækni og eru notuð eigin ensím í þeim tilgangi.
Samstarf við fjölda erlendra fyrirtækja
Líftækni og lífefni vinnur með fjölda erlendra sem innlendra fyrirtækja við rannsóknir og hagnýtingu ensíma.
Viðfangsefni á sviðinu eru m.a.:
- Hagnýting þörunga og blágrænna baktería
- Ensím úr íslenskri náttúru
- Lífvirk efni og stöðugleiki
- Prótein til matvælavinnslu
Faghópar á sviðinu eru:
- Ensím og erfðatækni
- Lífefni
- Lífvirk efni
- Þörungar
- Jaðarörverur
Sviðsstjóri:
Hörður G. Kristinsson
Fagstjóri:
Guðmundur Óli Hreggviðsson
