Okkar rannsóknir, allra hagur
Ensím og erfðatækni

 

Ensím úr íslenskri náttúru
Matís hefur lagt stund á rannsóknir á erfðaauðlindum Íslands og hefur verið í farabroddi slíkra rannsókna hér á landi. Áhersla hefur verið lögð á að finna og markaðssetja ný og betri iðnaðar- og rannsóknarensím úr hita- og kuldakærum örverum, þar á meðal ýmiss konar umbreytingarensím er breyta eiginleikum fjölsykra eins og sterkju og sellulósa.

Líftækni er vinnsla á lífefnum úr frumum eða frumuhlutum. Má þar nefna ensím, peptíð, amínósýrur eða annars konar lífrænar sameindir, t.d. vítamín, andoxunarefni, fjöl- og fásykrur.

Þjónusta

  • Sala á ensímum: ensímlisti
  • Leit að nýjum ensímum
  • Endurbætur á ensímum
  • Framleiðsla á ensímum
  • Notkun ensíma við framleiðslu á lífefnum

Líftæknideild Matís hefur unnið að ýmsum þróunarverkefnum tengdum líftækni. Má þar nefna:

  • þróun og framleiðslu á ensímum sem nýta má í lyfjaiðnaði
  • þróun og framleiðslu á ýmis konar ensímum sem nýta má í erfðatækni
  • þróun og framleiðslu á peptíðum
  • þróun og framleiðslu á umbreyttum fásykrum

Matís hefur verið í samstarfi við alþjóðleg fyrirtæki við þróun á nýjum ensímum í matvæla- fóður og efnaiðnaði. Má þar nefna matvælafyrirtækin Nestlé, og Roquette, efnafyrirtækin Wacker Chemie og Jülich Chiral Solutions og fleiri.

Helstu áherslur eru:

  • Einangra og skilgreina ensím sem nýtast í líftækni.
  • Nýta erfðaauðlindir Íslands.
  • Einangrun og skilgreining ensíma með aðferðafræði líftækni, ensímfræða og erfðatækni.
  • Klónun og framleiðsla ensíma fyrir matvælaiðnað og efna- og lyfjaiðnaði.
  • Þróun framleiðsluferla í matvælalíftækni og orkulíftækni.

Helstu verkefni:

  • Beta-Glycosyl transferases
  • EU streptomyces
  • RNA - ligase
  • Cellulase
  • Þörungar - frumuveggur - rof


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica