Matís vinnur að rannsóknum og þróun tengdri ýmsum lífefnum í matvælum. Sérstök áhersla er lögð á að finna, einangra og skilgreina náttúruleg, lífvirk efni sem hafa heilsubætandi áhrif og geta aukið stöðugleika matvæla.
Unnið er að því að koma þessum afurðum á markað. Þessi vinna fer fram í nánu samstarfi við iðnaðinn ásamt stofnunum og háskólum innanlands sem utan.
Lífefnadeildin býður ennfremur upp á ýmsar sérhæfðar þjónustumælingar.
Próteinrannsóknir - niðurbrot ensíma og mælingar
Niðurbrot próteina með ensímum er notað til að auka vinnslueiginleika þeirra og lífvirkni. Mælingar á ensímniðurbroti, vinnslueiginleikum og lífvirkni.
Dæmi um vinnslueiginleika:
- Vatnsleysanleiki.
- Vatnsheldni / binding.
- Olíubinding.
- Froðueiginleikar.
- Ýrueiginleikar.
Dæmi um lífvirkni:
Blóðþrýstingslækkandi áhrif peptíða sem ACE-hindravirkni
Bragð og lykt: mikilvægir gæðaþættir í matvælaiðnaði
Bragð og lykt matvæla, ásamt áferð þeirra, eru mikilvægir gæðaþættir í matvælaiðnaði enda hefur bragð og bragðskynjun mikil áhrif á fæðuval okkar. Matís býður upp á ýmis konar bragð- og lyktarefnarannsóknir sem skipta máli fyrir bragðgæði matvæla, geymslu- og framleiðsluaðferðir.
Má þar nefna:
- Gasgreinamælir sem er notaður til að kortleggja magn og tegund þeirra efna sem mestu máli skipta í lykt.
- Hárpípurafdráttur (CE, capillary electrophoresis) er notaður til að að mæla peptíð og amínósýrur sem geta haft áhrif á bragð.
- Rafnef er notað sem fljótvirk mæliaðferð til að meta skemmdir af völdum örveruvaxtar sem hefur áhrif á bragðgæði, geymsluþol og öryggi afurða. Rafnef hefur einnig verið notað til að meta lyktarmengun.
