Helstu verkefni:
Rannsóknir og þróun á lífvirkum efnum og matvælum, nýtingu vannýttra afurða, t.d. þörunga og loðnu, heilnæmi matvæla, stöðugleika matvæla og ensímum úr íslenskri náttúru. Nýting á vannýttum sykruhráefnum í umhverfinu s.s. úr þangi, brjóski, kítíni og sellulósa er skoðuð og klónun og framleiðsla ensíma fyrir matvælaiðnað. Einnig eru þróaðir framleiðsluferlar í matvælalíftækni og orkulíftækni.
Helstu áherslur eru:
- Einangrun, framleiðsla, umbreyting og þróun lífvirkra efna og matvæla.
- Mælingar á ýmsum eiginleikum matvæla (t.d. blóðþrýstingslækkandi, andoxandi, krabbameinsvarnandi, ónæmisstýrandi, seðjandi eiginleikum) með mismunandi rannsóknaraðferðum.
- Þróun aðferða til að nýta vannýttar afurðir og rannsaka eiginleika þeirra.
- Leit og skilgreining ensíma með aðferðafræði líftækni, ensímfræða og erfðatækni.
- Mælingar á oxun/þránun í sjávarfangi og leiðir til að auka stöðugleika matvæla gagnvart oxun/þránun með markvissum leiðum.
- Mælingar á eiginleikum olíu/fitu í matvælum.
Helstu verkefni eru:
- Einangrun og vinnsla lífvirkra peptíða.
- Gæðaprótein úr fiski.
- Heilsuvörur úr fiski.
- Gull í greipar Ægis – andoxunarefni í sjávarfangi.
- Einangrun, hreinsun og rannsóknir á blóðþrýstinglækkandi peptíðum úr fiskpróteinum.
- Brjósksykrur og lífvirk efni úr sæbjúgum.
- Nýting ostamysu í heilsutengd matvæli.
- Lífvirk bragðefni unnin úr íslensku sjávarfangi.
- Náttúruleg ensím og andoxunarefni úr aukaafurðum.
- Lífefnarannsóknir á Sauðárkróki.
Prótein til matvælavinnslu
Markmiðið er að afla þekkingar á eðliseiginleikum vöðvapróteina úr fiski til að geta stýrt eiginleikum þeirra í ýmsum afurðum. Til dæmis má nefna geleiginleika, áferð og vökvaheldni. Hannað hefur verið vinnsluferli fyrir vöðvaprótein sem falla til í bolfiskvinnslu, afskurð og fisk af beingörðum, og koma þeim í verðmætar afurðir.
Helstu áherslur:
- Viðhalda eðliseiginleikum svo hægt sé að nota próteinin beint tilbaka inn í framleiðsluvörur.
- Þeir eðliseiginleikar sem horft var til voru geleiginleikar og stýring þeirra en þeir eru mjög mikilvægir þegar nýta á próteinin með beinum hætti við að auka gæði framleiðsluvara, svo sem að halda fiskflökum stinnum og safaríkum og gefa tilbúnum afurðum rétta áferðareiginleika.
- Fullbúin framleiðslulína sem framleiðir vöðvaprótein með réttum eðliseiginleikum svo hægt sé útbúa lausn þeirra sem, við innsprautun í fiskflök.
Helstu verkefni eru:
- Notkun prótein isolats við vinnslu og verkun á fiskafurðum.
- Gæðaprótein til innsprautunar.
- Eðliseiginleikar fiskvöðvapróteina.
