Markmið faghópsins er að stuðla að auknum rannsóknum á viðhorfi neytenda, ásamt því að greina þarfir og væntingar markaðarins, vera leiðandi í skynmati og efla þátttöku í innlendum og erlendum rannsóknaverkefnum sem fjalla um skynmat og neytendarannsóknir. Markmiðið er einnig að auka þekkingu á gæðum og aðferðum til að meta gæði matvæla og efla þannig árangur í þróun nýrra matvæla.
Fjöldamörg skynmats- og neytendaverkefni eru unnin fyrir fyrirtæki þar sem könnuð eru viðbrögð neytenda við þróun á nýjum matvælum eða breytingum í matvælaframleiðslu. Skynmatsdómarar eru þjálfaðir og haldin eru námskeið. Einnig hefur verið útbúið fræðsluefni um skynmat ýmissa fæðutegunda.
Vegna sérþekkingar og sérstöðu á sviði skynmats sjá starfsmenn Matís um kennslu í skynmati við matvælafræðiskor Háskóla Íslands, viðskipta- og raunvísindadeild - auðlindasvið Háskólans á Akureyri og Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna.

