Okkar rannsóknir, allra hagur
Staðbundin matvæli og vöruþróun
iStock_Local_food

Markmið faghópsins er að efla þróun, nýsköpun og markaðssetningu íslenskra matvæla og bjóða upp á sérfræðiþekkingu og aðstöðu til að styrkja atvinnulíf með aukinni samframleiðslu matvæla.

Verkefnin eru á sviði matarferðamennsku og sértækrar markaðssetningar á smáframleiðslu matvæla fyrir ferðamenn. Unnið er með sérstöðu íslenskra matvæla og stefnt að aukinni nýsköpun og virðisaukandi fullvinnslu á innlendu hráefni. Byggð hefur verið upp þekking á smáframleiðsluferlum og hugmyndafræði tengdri matarferðamennsku og áhersla lögð á tengingu við ferðaþjónustuaðila á landsbyggðinni.

Matarsmiðja Matís á Hornafirði var formlega opnuð árið 2008. Þar er aðstaða er fyrir fyrirtæki og frumkvöðla til að þróa nýjar afurðir og virðisaukandi framleiðslu úr sínu hráefni.

Senda grein


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica