Efnarannsóknir
Markmið efnarannsókna er að bæta öryggi, gæði og heilnæmi matvæla með rannsóknum og þróunarvinnu.
Símanúmer efnarannsókna: 422-5154
Helstu verkefni sem eru í gangi:
- Rannsóknir á áhrifum æskilegra og óæskilegra efna á matvæli og fóður. Áhersla er lögð á að fylgjast með og safna gögnum um ástand íslenskra matvæla m.t.t. næringarefna og mengandi efna m.a. til þess að íslenskir matvælaframleiðendur og útflytjendur geti metið ástand og stöðu íslenskrar framleiðslu miðað við önnur lönd. Gögnin nýtast ennfremur við áhættumat og í markaðskynningum á íslenskum matvælum
- Samsetning hráefnis og afurða í matvælavinnslu og fóðurgerð og þeim breytingum á gæðum þeirra og öryggi sem verða við vinnslu og geymslu t.d. næringargildi, myndun eða upptaka óæskilegra efna
- Vöktun á óæskilegum efnum í sjávarfangi. Verkefnið hófst árið 2003 og er ætlað að sýna fram heilnæmi og öryggi íslenskra sjávarafurða til manneldis auk fóðurs og lýsis. Niðurstöður fara í gagnagrunn og eru samantektir úr honum aðgengilegur á netinu
- Samstarfsverkefni um vöktun á lífríki hafsins umhverfis Ísland sem hefur verið í gangi á vegum Umhverfisráðuneytisins til þess að uppfylla skuldbindingar Íslands varðandi OSPAR og AMAP samninganna
- Vöktun á varnarefnum í grænmeti og ávöxtum í samstarfi við Matvælastofnun
- Rannsóknir á þrávirkum lífrænum efnum í matvælum og fóðri
- Risk assement-Qalibra- ESB verkefni sem stendur til 2009
- Verðmæti og öryggi sjávarfangs- AVS verkefni
- Gagnagrunnur –öryggi
- Eurofir-EB verkefni sem stendur til 2009- gagnanet um efnainnihald matvæla
- Gagnagrunnur ÍSGEM-gagnagrunnur um næringarinnihald íslenskra matvæla
Sérfræðiþekking starfsmanna nær m.a. yfir: rannsóknir og mælingar á ólífrænum snefilefnum (t.d. þungmálmum s.s. kvikasilfur, blý, kadmíum) og lífrænum snefilefnum (varnarefnum, PCB-efnum, díoxín, brómeruð efni ofl), áhættumati og áhættukynningu.
Fagstjóri:
Helga Gunnlaugsdóttir
Aðrir starfsmenn:
- Ásta Heiðrún Pétursdóttir, M.Sc. nemi
- Björn Þorgilsson
- Natasa Desnica
- Hrönn Ólína Jörundsdóttir
- Katrín Hauksdóttir
- Vordís Baldursdóttir, M.Sc. nemi
- Þuríður Ragnarsdóttir
