Okkar rannsóknir, allra hagur
Vinnsla, virðisaukning og eldi
Belti

Meginhlutverk sviðsins Vinnsla, virðisaukning og eldi er að stuðla að auknum verðmætum í virðiskeðju matvæla og bættri lýðheilsu. Með þeim markmiðum að auka hagkvæmni og bæta gæði við öflun hráefnis, framleiðslu, vinnslu og flutning matvæla. Áhersla á er lögð á samspil sjálfbærni, rekjanleika, miðlun og nýtingu upplýsinga í þágu matvælaiðnaðarins og neytenda.  Leitast er við að bæta framleiðsluaðferðir með sem hagkvæmustum hætti, út frá eiginleikum hráefna.

Stefna sviðsins felst í verðmætamyndandi nýsköpun og takmörkun kostnaðar við matvælaframleiðslu. Sviðið vinnur að þróunarverkefnum sem snerta virðiskeðjuna sem heild eða einstaka þætti hennar. Starfsemi sviðsins byggist á því að matur eigi sér upphaf í hráefni, berist í gegnum einhvers konar vinnslu og fái á þeirri leið aukið virði. Endastöðin er borð neytandans þar sem hann fær í hendur vöru af ákveðnum gæðum samkvæmt væntingum sínum. Starfsmenn sviðsins búa yfir fjölþættri þekkingu á ólíkum þáttum virðiskeðjunnar en starfsmenn vinna að rannsóknum og þróun í virðiskeðjunni í náinni samvinnu við fyrirtæki, háskóla og rannsóknaraðila.

Verkefni sviðsins eru aðallega unnin fyrir og með innlendum matvælafyrirtækjum og fyrirtækjum er þjónusta matvælaiðnaðinn. Sviðið veitir ráðgjöf um úrlausnir vandamála í matvælaframleiðslu og annast rannsóknir sem hafa að markmiði nýjar afurðir, nýja tækni og nýja markaði. Leitað er leiða til lækkunar kostnaðar, s.s. fóðurkostnaðar í eldi og almenns framleiðslu kostnaðar við vinnslu. Með því er lagður grunnur að aukinni framlegð í matvælaframleiðslu og betri afkomu.

Helstu verkefni sem unnið er að á sviðinu Vinnsla, virðisauki og eldi má finna hér. Bækling um sviðið má finna hér.

Faghópar sviðsins:

Sviðsstjóri:
Arnljótur Bjarki Bergsson

Fagstjóri:
Kristín Anna Þórarinsdóttir
Rannveig Björnsdóttir

Starfsemi sviðsins:
Höfuðstöðvar Matís, Reykjavík
Matís, Akureyri
Matís, Ísafirði
Matís, Sauðárkróki
Matís, Vestmannaeyjum

Senda grein


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica