Okkar rannsóknir, allra hagur
Bætt meðferð


Markmið faghópsins er að stuðla að auknum verðmætum
við matvælavinnslu með því að auka hráefnisgæði og stöðugleika afurða við geymslu og dreifingu.

Verkefnin fela m.a. í sér úttektir og þróun á verklagi eftir veiðar og slátrun, svo sem við blóðgun og kælingu á hráefni.  Lögð hefur verið áhersla á að draga úr frávikum frá æskilegu hita- og rakastigi við geymslu og dreifingu hráefnis og afurða.

Útfærslur á geymsluaðferðum og val á umbúðum hafa einnig mikið að segja m.t.t. stöðugleika og líftíma vörunnar.  Áherslur eru misjafnar eftir eiginleikum hráefnis, afurðaflokkum og aðstæðum í umhverfi.

Sem dæmi um afrakstur má nefna þróun á kæliferlum um borð í uppsjávarskipum sem miða að því að auka hlutfall uppsjávarfisks sem hægt er að nýta til manneldis eða í afurðaflokka sem skila auknu verðmæti. Önnur dæmi eru endurhönnun umbúða, viðbrögð við hitasveiflum við flutning og geymslu sjávarafurða, endurhönnun umbúða og leiðbeiningar til sjómanna um meðferð afla.



Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica