Verkefnin á þessu sviði fjalla um greiningu gagna í þágu bættrar afkomu fyrir matvælaiðnaðinn og tengjast vinnsluspám, öryggi og rekjanleika, framlegðarhámörkun og dreifingu matvæla.
Markmiðið er að vera leiðandi í aðgerðagreiningu og nýtingu gagna í matvælaiðnaði og auka þátttöku í hönnun búnaðar. Mikilvægt er að minnka rýrnun í virðiskeðju matvæla til hagsbóta fyrir fyrirtæki í matvælaiðnaði.
Verkefnið Vinnsluspá þorskafla sem lokið var á Matís árið 2008 leiddi af sér verkefnið FisHmark,en í því verkefni er þróuð hugbúnaðarlausn fyrir sjávarútvegsfyrirtæki í samvinnu við hugbúnaðarfyrirtæki í fremstu röð á Íslandi. Virðiskeðja ferskra sjávarafurða, verkefni sem snýr að aukinni hagnýtingu rekjanleika og upplýsingamiðlun í virðiskeðju gámafisks sem fluttur er frá Íslandi til Bretlands, hefur einnig skilað árangri.
Umbætur í virðiskeðju matvæla er unnið í samstarfi við verslanir, kjötvinnslur, hugbúnaðarfyrirtæki og samtök hagsmunaaðila og hafa verið greindir þeir staðir í virðiskeðju kjötafurða sem hafa mest áhrif á rýrnun í framleiðslunni.
Fagstjóri:
Aðrir starfsmenn:
