Rf hefur lengi átt gott samstarf við ýmsar menntastofnanir hér á landi og m.a. lagt til kennara, námsefni o.fl. Má þar t.d. nefna Fiskvinnsluskólann í Hafnarfirði, Sjómannaskólann í Reykjavík og, síðast en ekki síst, þá á Rf gott samstarf við menntastofnanir á háskólastigi.
Samstarf Matís við íslenska háskóla
Háskóli Íslands. B.S. og M.S. nám í matvælafræði við H.Í. fór að hluta til fram hjá Matís ohf. og nokkrir starfsmenn fyrirtækisins hafa kennt við skólann. Þess má geta að þrír starfsmenn Matís kenna nú við Matvæla- og næringafræðaskor Raunvísindadeildar H.Í. Þetta eru þeir Franklín Georgsson, M.Sc., lektor, Guðjón Þorkelsson M.Sc., dósent og Sigurjón Arason, M.Sc., dósent. Loks er einn úr stjórn Matís starfandi við Matvæla- og næringafræðiskor H.Í., Ágústa Guðmundsdóttir, Ph.D., prófessor.

Háskólinn á Akureyri. Samstarf Matís og HA fól m.a. í sér að sérfræðingar fyrirtækisins önnuðust kennslu við Auðlindadeild HA, samkvæmt hæfismati (lektor - dósent - prófessor) á ákveðnum sviðum sem tengjast auðlindafræðum.
Rannveig Björnsdóttir, deildarstjóri Matís á Akureyri, er jafnframt lektor við HA.
Hólaskóli. Samningur Matís og Hólaskóla kveður m.a. á um að kennarar og nemendur skólans munu vinna að rannsóknar- og þróunarverkefnum með sérfræðingum Matís og að sérfræðingar fyrirtækisins muni koma að kennslu við skólann, einkum hvað varðar leiðsögn við nemenda- og rannsóknarverkefni. Mikilvægur þáttur í samstarfinu felst í því að sameiginlegur starfsmaður Matís og Hólaskóla mun vinna að rannsóknum á vegum beggja aðila.
Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Kennsla við SSþ var orðinn hluti af reglulegri starfsemi Matís síðustu árin. Hafrannsóknastofnun hefur veg og vanda af rekstri skólans, en hann er rekinn í góðu samstarfi við Matís, Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands. Skólinn er starfræktur samkvæmt sérstöku samkomulagi við Háskóla Sameinuðu þjóðanna og er fjármögnun hans að mestu leyti hluti af framlögum Íslands til þróunaraðstoðar. Skólinn veitir sex mánaða nám og starfsþjálfun fyrir fagfólk og sérfræðinga frá þróunarlöndunum og ríkjum fyrrum lýðvelda Sovétríkjanna.

