Ráðstefnur
Dagana 11 - 14 júní 2003 var haldin í Reykjavík ráðstefnan TAFT 2003, en að henni stóðu tvenn samtök vísindamanna á sviði rannsókna og nýjunga í fiskvinnslu, annars vegar WEFTA (Western European Fish Technologist’s Association) frá Evrópu og hins vegar AFTC (Atlantic Fisheries Technology Conference) frá N-Ameríku. Var þetta í fyrsta sinn sem samtökin stóðu sameiginlega að slíkri ráðstefnu.
Það var Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins sem annaðist undirbúing og skipulagningu ráðstefnunnar, sem var viðamikið verkefni, enda sóttu ráðstefnuna rúmlega 200 manns frá meira en 20 þjóðlöndum víðs vegar að úr heiminum.

