Okkar rannsóknir, allra hagur
Ráðstefnur

þorskeldi framtíð fyrir sér á Íslandi-ráðstefna Matís 15. nóvember Matur og framtíð, haustráðstefna Matís, fer fram á Grand Hótel þann 15. nóvember 2007. Á ráðstefnunni, sem er frá 12:30 til 16:30, verður leitast við að svara spurningum á borð við hvers vegna grænmeti sé hollt, hvort þorskeldi eigi framtíð fyrir sér á Íslandi, hvers vegna fólk vill ekki stressaðan eldisfisk og hvort fólk viti yfirhöfuð hvaðan maturinn þeirra kemur.




Dagskrá ráðstefnunnar:

13:00 Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra setur ráðstefnuna.

13:15 Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís, um Matís, hlutverk fyrirtækisins og framtíðarsýn.

I MATARMENNING

13:25 Þór V. Jónatansson, Maritech, og Sveinn Margeirsson, Matís: Veistu hvaðan maturinn þinn kemur?

13:40 Emilía Martinsdóttir, Matís. Hvers vegna vill fólk ekki stressaðan eldisfisk? Aukin vitund um fiskeldi hefur áhrif á neytendur.

13:55 Gunnar Karl Gíslason, yfirkokkur á Vox á Nordica Hótel. Nýr norrænn matur. Möguleikar til verðmætasköpunar sem felast í matvælaframleiðslu og matarmenningu á viðkomandi stað.

14:10 Sigríður Sigurjónsdóttir, Listaháskóla Íslands: Matarhönnun: Stefnumót við bændur.

14:25 Ólafur Reykdal, Matís. Af hverju að borða íslenskt grænmeti? Samanburður á efnainnihaldi innlends og innflutts grænmetis.

14:40 HLÉ KYNNING Í BÁSUM

II Á FISKELDI MÖGULEIKA Á ÍSLANDI?

15:10 Þorleifur Ágústsson, Matís. Rannsóknir í þorskeldi: Lykill að verðmætasköpun.

15:25 Björn Þrándur Björnsson og Ragnar Jóhannsson, Matís. Eiga tilapia og barramundi heima hér? Nýjar tegundir í fiskeldi.

III HVAR LIGGJA TÆKIFÆRIN Í LÍF- OG ERFÐATÆKNI Í MATVÆLAFRAMLEIÐSLU

15:40 Ragnar Jóhannsson, Matís. Matur framtíðarinnar fyrir hugsandi fólk.

15:55 Sigríður Hjörleifsdóttir, Matís. Erfðarannsóknir frá miðum til maga.

16:05 Sigmundur Guðbjarnarson, Saga Medica. Hvers vegna er grænmeti hollt? Tækifæri í lífvirkum efnum jurta.

16:25 Samantekt og ráðstefnuslit.

Fundarstjóri er Stefán Pálsson.

16:35 Móttaka og kynning í básum.

BÁS I:
Matarhönnun, vöruþróun og nýsköpun í matvælaframleiðslu frá Vöruhönnunardeild Listaháskóla Íslands. Blóðbergsdrykkir og súkkulaðifjöll.

BÁS II: 
Líf- og erfðatækni í matvælaframleiðslu. Foreldragreiningar.

BÁS III: 
Möguleikar í fiskeldi. Tilapia og barramunda. Gestir fá tækifæri á því að skoða og smakka á framandi eldistegundum.

BÁS IV:
Rannsóknir Matís: Hvannalömb, fiskneysla Íslendinga, harðfiskur sem heilsufæði, vöktun á lífríki sjávar. 




Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica