Matarsmiðjan á Höfn er rekin í samvinnu við sveitarfélagið Hornafjörð. Matís, sem rekstraraðili, sér um útleigu en mögulegt er að leigja hálfan eða heilan dag, eða vinnu við einstök tæki. Matís sér um að allur aðbúnaður sé eins og kröfur heilbrigðisyfirvalda kveða á um. Notandinn þarf að fá útgefið framleiðsluleyfi heilbrigðisyfirvalda áður en vinnsla og sala afurða hefst. Hann heldur utan um framleiðsluna m.a. með skráningu í móttökuskýrslu, framleiðslueftirlit og söluskýrslu.
Framleiðandinn útbýr flæðirit yfir hverja þá vöru sem hann hyggst framleiða. Í flæðiritinu er allri vinnslunni skipt í vinnsluþrep frá móttöku til afhendingar. Koma þar fram upplýsingar um hráefnisbirgja, framleiðsluaðferð, hitastig og tíma í hverju þrepi fyrir sig ásamt því að allar hættur eru skrásettar og viðbrögð við þeim skilgreind sem mögulegt er að finnast í hráefni eða við vinnslu þess.
Nánari upplýsingar um Matarsmiðjuna á Höfn má finna í bæklingi hér.

