Raðgreiningar
Raðgreiningar
Matís býður upp á raðgreiningar á genum eða genahlutum. Viðskiptavinur kemur með genið sem PCR afurð eða á plasmíði og sérfræðingar okkar raðgreina það með þeim raðgreiningarvísum sem henta best í hverju tilviki.
Raðgreiningarhvörfin eru framkvæmd í tvíriti í ABI 3730 raðgreini. Raðirnar eru lesnar yfir og síðan sendar viðtakanda í tölvupósti.
