Mikilvægir gæðaþættir í matvælaiðnaði
Bragð og lykt matvæla, ásamt áferð þeirra, eru mikilvægir gæðaþættir í matvælaiðnaði enda hefur bragð og bragðskynjun mikil áhrif á fæðuval okkar. Matís býður upp á ýmis konar bragð- og lyktarefnarannsóknir sem skipta máli fyrir bragðgæði matvæla, geymslu- og framleiðsluaðferðir.
Má þar nefna:
Gasgreinamælir sem er notaður til að kortleggja magn og tegund þeirra efna sem mestu máli skipta í lykt.
Hárpípurafdráttur (CE, capillary electrophoresis) er notaður til að að mæla peptíð og amínósýrur sem geta haft áhrif á bragð.
Rafnef er notað sem fljótvirk mæliaðferð til að meta skemmdir af völdum örveruvaxtar sem hefur áhrif á bragðgæði, geymsluþol og öryggi afurða. Rafnef hefur einnig verið notað til að meta lyktarmengun.
