Þjónusta
Líftækni - þjónusta
Líftækni er vinnsla á lífefnum úr frumum eða frumuhlutum. Má þar nefna ensím, peptíð, amínósýrur eða annars konar lífrænar sameindir, t.d. vítamín, andoxunarefni, fjöl- og fásykrur.
Þjónusta
- Sala á ensímum: ensímlisti
- Leit að nýjum ensímum
- Endurbætur á ensímum
- Framleiðsla á ensímum
- Notkun ensíma við framleiðslu á lífefnum
Líftæknideild Matís hefur unnið að ýmsum þróunarverkefnum tengdum líftækni. Má þar nefna:
- þróun og framleiðslu á ensímum sem nýta má í lyfjaiðnaði
- þróun og framleiðslu á ýmis konar ensímum sem nýta má í erfðatækni
- þróun og framleiðslu á peptíðum
- þróun og framleiðslu á umbreyttum fásykrum
Matís hefur verið í samstarfi við alþjóðleg fyrirtæki við þróun á nýjum ensímum í matvæla- fóður og efnaiðnaði. Má þar nefna matvælafyrirtækin Nestlé, og Roquette, efnafyrirtækin Wacker Chemie og Jülich Chiral Solutions og fleiri.
