Á Akureyri stundar Matís rannsóknir, þróun og nýsköpun í samstarfi við Háskólann á Akureyri og aðrar stofnanir og fyrirtæki á Norðurlandi jafnt sem annars staðar á landinu. Starfsemi Matís er til húsa í Rannsóknahúsinu að Borgum og hefur þar verið byggð upp aðstaða til vöktunar á óæskilegum efnum svo sem varnarefnum og PCB efnum í íslenskum matvælum. Einnig fara þar fram rannsóknir á sviði örverufræði, efnarannsókna, ónæmisvefjafræði, sameindafræði og myndgreiningar matvæla.
Við uppbyggingu Matís á Akureyri hefur áhersla verið lögð á aðkomu nemenda í rannsóknatengdu meistaranámi í víðtæku samstarfi við fjölda innlendra jafnt sem erlendra háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja.
Á starfsstöð Matís á Akureyri starfa 3 sérfræðingar auk rannsóknamanns og nemenda í rannsóknatengdu framhaldsnámi við verkefni sem unnin eru á vegum Matís.
Stöðvarstjóri Matís á Akureyri er Rannveig Björnsdóttir, fagstjóri hjá Matís og dósent við Háskólann á Akureyri.
Matís ohf - Akureyri:
Borgum við Norðurslóð
600 Akureyri
Fax: 462 5216
Starfsmenn:
- Rannveig Björnsdóttir rannveig.bjornsdottir()matis.is, s: 422 5108 / 858 5108
- María Pétursdóttir maria.petursdottir()matis.is, s: 422 5092
- Jónína Jóhannsdóttir jonina.johannsdottir()matis.is, s: 422 5075
- Vordís Baldursdóttir vordis.baldursdottir()matis.is: 422 5018


