Okkar rannsóknir, allra hagur
Höfn í Hornafirði
Nýheimar

Á Hornafirði hefur Matís haft starfstöð frá 2006.  Starfstöðin er í þekkingarsetrinu Nýheimum sem er vettvangur skapandi samvinnu á svæðinu.  Helstu áherslur í starfseminni á svæðinu felast í uppbyggingu á smáframleiðslu matvæla, útflutning á lifandi skel og krabbadýrum og rannsóknir á leturhumri. 

Í nóvember 2008 var Matarsmiðja Matís opnuð í tengslum við starfstöðina á Höfn.  Í Matarsmiðju Matís býðst frumkvöðlum og litlum fyrirtækjum tækifæri til að stunda vöruþróun og hefja smáframleiðslu á matvælum gegn vægu leigugjaldi. Þannig spara þeir sér fjárfestingu í dýrum tækjabúnaði strax í upphafi rekstrar. Með þessu gefst einstakt tækifæri til að prófa sig áfram bæði við framleiðsluna og á markaði. Sérstök áhersla er á uppbyggingu í tengslum við staðbundin matvæli  og matarferðaþjónustu. 

Aðstaðan er hugsuð til notkunar á landsvísu. Forsenda þess að komast í aðstöðuna er að kaupa ráðgjöf um góða framleiðsluhætti í upphafi. Þannig munu notendur læra rétt vinnubrögð frá upphafi. Með aðstöðunni í Matarsmiðjunni á Hornafirði gefst einstakt tækifæri til nýsköpunar í smáframleiðslu matvæla. Nú þegar er fjöldi verkefna komin í gang í Matarsmiðjunni og koma frumkvöðlar m.a. úr Reykjavík til vöruþróunar og smáframleiðslu. 

Stöðvarstjóri Matís á Höfn er Vigfús Þ. Ásbjörnsson.


Matís á Höfn í Hornafirði:
Nýheimum, Litlu brú 2 - 780 Höfn
Fax: 422 5005

Starfsmenn:

 

Senda grein


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica