Starfsemin byggist að stærstum hluta á þjónustumælingum þar sem helstu skiptavinir eru fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtæki, Heilbrigðiseftirlit Austurlands, Fjarðaál og Landsvirkjun. Matís veitir þjónustu á sviði efnagreininga og örverumælinga á innsendum sýnum.
Helstu efnamælingar hjá Matís í Neskaupstað eru: mælingar á próteini, vatni, fitu, salti, ösku, og ammoníaki í fiski og fiskimjöli, mælingar á óbundnum fitusýrum og vatni og óhreinindum í lýsi, mælingar á svifögnum, BOD, leiðni, gruggi, Ph og olíu í afrennslisvatni frá álveri Fjarðaáls á Reyðarfirði, loftmengunarmælingar á Reyðarfirði sem Matís annast sem undirverktaki fyrir Nýsköpunarmiðstöð Íslands og mælingar á fallryki fyrir Landsvirkjun í tengslum við byggingu og starfsemi Kárahnjúkavirkjunar. Einnig er mæld leiðni, grugg og ammoníak í neysluvatnssýnum fyrir Heilbrigðiseftirliti Austurlands.
Helstu örvergreiningar hjá Matís í Neskaupstað eru salmonella, iðagerlar, heildarörverufjöldi, coli-gerlar, E.coli, saurkólígerlar, Listería, bacillus cereus og sthaphylococcus aureus. Þeir viðskiptavinir sem nýta sér þessa þjónustu eru aðallega fiskvinnslufyrirtæki, vinnsluskip og Heilbrigðiseftirlit Austurlands.
Stöðvarstjóri Matís á Neskaupstað er Þorsteinn Ingvarsson.
Matís ohf. - Neskaupstað:
Mýrargötu 10
740 Neskaupstaður
Sími: 477 1250 / GSM: 858 5141
Fax: 477 1923
Starfsmenn:
-
Þorsteinn Ingvarsson, thorsteinn.ingvarsson()matis.is
- Lilja H. Auðunsdóttir, lilja.h.audunsdottir()matis.is
- Karl R. Róbertsson, karl.r.robertsson()matis.is


