Vestmannaeyjar hefur lengi verið einn mikilvægasti útgerðarstaður á Íslandi, enda stutt að sækja þaðan á ýmis af fengsælustu fiskimiðum landsins. Mikilvægasta atvinnugreinin þar hefur því verið og er enn sjávarútvegur og fiskvinnsla, enda henta staðhættir öðrum matvælagreinum s.s. landbúnaði illa.
Starfsemi Matís í Vestmannaeyjum er einkum fólgin í því að vinna með fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækjum á staðnum að aukinni nýtingu á sjávarafla og finna leiðir til að auka verðmæti hans. Einnig hefur verið unnið að nýtingu nýrra afurða og má þar nefna verkefni sem tengist veiðum og vinnslu á makríl. Starfsmaður Matís í Vestmannaeyjum hefur einnig unnið með matvælaframleiðslufyrirtækjum við þróun nýrra afurða.
Starfstöð Matís ohf. er til húsa í Þekkingarsetri Vestmannaeyja. Stöðvarstjóri er Ragnheiður Sveinsþórsdóttir.
Matís í Vestmannaeyjum:
Strandvegur 50
900 Vestmannaeyjar
Starfsmenn:
- Heather Philip, verkefnastjóri.
heather.philip()matis.is
GSM: 858 5105 - Ragnheiður Sveinþórsdóttir, verkefnastjóri.
ragnheidur.sveinthorsdottir()matis.is
(í fæðingarorlofi)

