Um Matís
Þekking, þróun og nýsköpun
Matís er öflugt þekkingarfyrirtæki sem sinnir fjölbreyttu rannsókna- þjónustu- og nýsköpunarstarfi í matvæla- og líftækniiðnaði.
Matís veitir ráðgjöf og þjónustu til fyrirtækja í sjávarútvegi og landbúnaði, sem og íslenska ríkinu. Sem dæmi kemur Matís að þróun á nýjum vörum og ferlum fyrir fyrirtæki og hefur mikilvægu hlutverki að gegna varðandi gæði og öryggi matvæla.
Helstu markmið Matís eru:
- Efla nýsköpun og auka verðmæti matvæla
- Stuðla að öryggi matvæla
- Stunda öflugt þróunar- og rannsóknastarf
- Efla samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu á alþjóðlegum vettvangi
Verkefni Matís tengjast fjölmörgum sviðum innan matvæla- og líftækni og skiptist í starfsemin í 5 fagsvið:
- Öryggi, umhverfi og erfðir - Anna K. Daníelsdóttir
- Vinnsla, virðisaukning og eldi - Arnljótur Bjarki Bergsson
- Mælingar og miðlun - Franklín Georgsson
- Nýsköpun og neytendur - Haraldur Hallgrímsson
- Líftækni og lífefni - Hörður G. Kristinsson
Helstu verkefni sem unnið er að hjá Matís:
- Aðfangastjórnun
- Erfðatækni
- Fiskeldi
- Framleiðslutækni
- Líftækni
- Matvælaöryggi
- Rekjanleiki
- Umhverfismál
- Vöruþróun
- Vinnslutækni


