Okkar rannsóknir, allra hagur
Egilsstaðir
Egilsstadir_ur_lofti

Á Egilsstöðum hefur Matís starfstöð en hún gengur undir nafninu Matvælamiðstöð Austurlands.  Matvælamiðstöð Austurlands var sett á laggirnar haustið 2009 en hún er samstarfsverkefni Matís, Þróunarfélags Austurlands, Fljótsdalshéraðs, Búnaðarfélags Austurlands og Auðhumlu. Starfstöðin er salur í Mjólkurstöðinni en MS er með framleiðslu annarsstaðar í húsinu.  Einn sérfræðingur er þar í fullu starfi.  Áherslur starfseminnar felst í uppbyggingu á smáframleiðslu matvæla á svæðinu.

Í Matvælamiðstöðinni býðst frumkvöðlum og litlum fyrirtækjum tækifæri til að stunda vöruþróun og hefja smáframleiðslu á matvælum gegn vægu leigugjaldi. Þannig spara þeir sér fjárfestingu í dýrum tækjabúnaði strax í upphafi rekstrar. Með þessu gefst einstakt tækifæri til að prófa sig áfram bæði við framleiðsluna og á markaði. Sérstök áhersla er á uppbyggingu í tengslum við staðbundin matvæli  og matarferðaþjónustu. 

Aðstaðan er hugsuð til notkunar á landsvísu. Forsenda þess að komast í aðstöðuna er að kaupa ráðgjöf um góða framleiðsluhætti í upphafi. Þannig munu notendur læra rétt vinnubrögð frá upphafi. Með aðstöðunni  í Matvælamiðstöð Austurlands gefst einstakt tækifæri til

nýsköpunar í smáframleiðslu matvæla.

Stöðvarstjóri Matís á Egilsstöðum er Þórarinn Egill Sveinsson.


Matís á Egilsstöðum / Matvælamiðstöð Austurlands
Kaupvangi 39
700 Egilsstaðir
Sími 858 5060
Netfang mma@matis.is

Senda grein


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica