Okkar rannsóknir, allra hagur
Flúðir
Flúðir úr lofti

Ný matarsmiðja verður að veruleika
Ár árinu 2010 var unnið að undirbúningi nýrrar starfsstöðvar Matís á Flúðum, sem þar með er sú áttunda utan höfuðstöðvanna í Reykjavík. Um er að ræða svokallaða matarsmiðju en smiðjur sem þessar hefur Matís byggt upp með góðum árangri á Höfn í Hornafirði og á Egilsstöðum.

Matarsmiðjan á Flúðum er í hjarta íslenskrar grænmetisframleiðslu og verður áhersla lögð á samvinnu í verkefnum á því sviði. Sveitarfélögin í uppsveitum Árnessýslu standa að stofnun matarsmiðjunnar á Flúðum ásamt Matís en einnig koma Atvinnuþróunarfélag Suðurlands og Háskólafélag Suðurlands að verkefninu. Síðast en ekki síst er verkefninu hrint í framkvæmd með góðum vilja og stuðningi garðyrkjubænda á svæðinu.

Í árslok 2010 hafði matarsmiðjunni verið fundið húsnæði að Iðjuslóð 1 og var unnið að innréttingum þess með það að markmiði að starfsemin færi í fullan gang í ársbyrjun 2011.

Líkt og í öðrum matarsmiðjum Matís er ætlunin að bjóða áhugasömum aðilum um vinnslu á matvörum heima í héraði upp á ráðgjöf og aðstöðu til að þróa vörur í markaðshæft form. Eins og áður segir er mikil áhersla lögð á grænmeti og korn, en um 80% af allri grænmetisframleiðslu landsins er á Suðurlandi. Ljóst er að miklir þróunar- og nýsköpunarmöguleikar eru í þessari framleiðslu, til dæmis hvað varðar nýtingu á afurðum sem falla til í hefðbundinni grænmetisframleiðslu og á grænmeti sem ekki selst, til að mynda í framleiðslutoppum og þegar lengra kemur fram á haustið. Því er horft til þess að bjóða upp á aðstöðu í matarsmiðjunni á Flúðum til að þróa vörur sem byggjast á geymsluaðferðum á grænmeti, svo sem frystingu, þurrkun, niðursuðu og svo framvegis. Með öðrum orðum fullvinnslu á grænmeti.

Auk þess að vinna að ýmsum garðyrkjutengdum verkefnum mun matarsmiðjan á Flúðum aðstoða alla þá aðila sem vilja þróa framleiðslu á matvælum til beinnar sölu heima í héraði. Bæði fer saman öflug matvælaframleiðsla á Suðurlandi og eitt af fjölsóttustu ferðamannasvæðum landsins. Því horfir Matís til þess að geta stutt aðila í héraðinu til að nýta tækifæri til beinnar sölu enn frekar.

Ennfremur er ætlunin að efla námskeiðahald og starfsmenntun meðal grænmetisframleiðenda og styrkja þannig nýliðun í greininni. Hugmyndir eru um að bjóða í matarsmiðjunni upp á námskeið á háskólastigi í vinnslu á grænmeti og höfða þannig til háskólafólks um að vinna sín lokaverkefni á Flúðum. Þá eru einnig hugmyndir um að flétta ýmsa menningartengda þætti inn í þetta fræðsluhlutverk matarsmiðjunnar en almennt er markmiðið að tilkoma matarsmiðju Matís á Flúðum stuðli að eflingu matarmenningar Suðurlands.

Nánari upplýsingar um Matarsmiðjuna á Flúðum má finna í bæklingi hér.

Stöðvarstjóri matarsmiðjunnar á Flúðum er Vilberg Tryggvason.


Matís á Flúðum:
Iðjuslóð 1a
845 Flúðir
Sími 422 5133
GSM 858 5133
Netfang: vilberg.tryggvason(at)matis.is

Senda grein


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica