janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
Starfsfólk Rf óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða. Vinsamlega smellið á meira til að fá upplýsingar um opnunartíma Rf um hátíðirnar.
Lesa meiraAthygli er vakin á erindi dr. Harðar G. Kristinssonar, "Rannsóknir á áhrifum kolmónoxíðs og síaðs reyks til að auka gæði og lengja geymsluþol sjávarafurða," sem flutt verður í fundarsal á 1. hæð Skúlagötu 4, föstudaginn 20. des. kl. 13
Lesa meiraFramlög til Matvælastofnunar Evrópu, European Food Safety Authority (EFSA), sem reyndar er ekki tekin til starfa enn, hafa verið skorin niður um helming. Spurningar hafa vaknað hvort þingmenn á Evrópuþinginu séu þegar búnir að gleyma kúariðufárinu og gin og klaufaveikifaraldinum sem geysaði fyrir nokkrum misserum.
Lesa meiraMargir sænskir neytendur eru hættir að kaupa villtan þorsk vegna umræðna um ofveiði þorskstofna, m.a. í Norðursjó og Eystrasalti. Þeir hafa hins vegar tekið eldisþorski frá Noregi opnum örmum og telja að þar sé um umhverfisvæna matvöru að ræða.
Lesa meiraSú ákvörðun norska sjávarútvegsráðuneytisins fyrr í vikunni að úthluta 50 nýjum leyfum til laxeldis á næsta ári er umdeild. Þeir sem fyrir eru í greininni segja ákvörðunina vera óráð.
Lesa meiraLýðfræðileg (demographic) samsetning Evrópu breytist hratt og kallar á nýjar áherslur við markaðssetningu á vöru og þjónustu, ekki hvað síst er varðar matvöru. Eftir því sem íbúar álfunnar eldast aukast kröfur um heilnæmi matvæla.
Lesa meiraNýlega var haldinn á Spáni lokafundur í Tracefish-verkefninu, en það fjallar um rekjanleika á fiski og var því skipt í þrennt: rekjanleiki villts fisks, rekjanleiki eldisfisks og tæknihópur. Rf var þátttakandi í vinnnu við staðalinn fyrir villtan fisk.
Lesa meiraUm helgina var s.k. Evrópuhús 2002 í Perlunni, þar sem fyrirtæki og stofnanir kynntu þau verkefni sem þau hafa unnið að og styrkt hafa verið af Evrópusambandinu. Rf tók þátt í kynningunni.
Lesa meiraUm helgina verða margar stofnanir með kynningu á verkefnum sem þær hafa unnið að á s.l. árum og styrkt hafa verið af ESB. Kallast kynningin Evrópuhús 2002 og stendur yfir á laugardag og sunnudag á milli kl. 13-17. Allir eru velkomnir.
Fyrstu 10 mánuði ársins fluttu Norðmenn út sjávarafurðir fyrir um 280 milljarða íslenskra króna. Það er um 20 milljörðum króna lækkun útflutningsverðmæta frá sama tímabili í fyrra. Mestu munar um minni tekjur af útflutningi á þorski og lax til ESB-landa.
Lesa meiraÍ dag mun hópur vísindamanna birta niðurstöður um ástand þorskstofna og annarra tegunda í Norðursjó. Vísindamennirnir munu væntanlega kynna þá niðurstöðu að þorskstofnarnir á svæðinu séu að hruni komnir.
Lesa meiraSjómenn á lúðuveiðiskipum í N-Ameríku og Kanada vilja að veiðitímabilið verði lengt á næstu árum. Þeir segja að annars muni eldislúða verða allsráðandi á mörkuðum fyrir þennan fisk innan 10 ára.
Lesa meiraNý rannsókn virðist benda til þess að með því að borða fisk a.m.k. einu sinni í viku geti eldra fólk minnkað verulega líkurnar á að fá heilabilun. Frá þessu er greint í nýjasta tölublaði British Medical Journal.
Lesa meiraRf stendur fyrir fundi um rekjanleikja og merkingar sjávarafurða n.k. fimmtudag 24. október. Fundurinn verður haldinn í Sjávarútvegshúsinu, Skúlagötu 4. og er aðgangur ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir. Hann hefst kl. 14:00 og stendur til kl. 16:30.
Lesa meiraÁkveðið hefur verið að veita 17,5 milljörðum evra til vísinda og rannsókna í 6. rammaáætlun ESB, sem gengur í gildi um næstu áramót. Framkvæmdastjórn ESB hefur þegar borist meira en 12.000 tilkynningar um hugsanleg rannsóknaverkefni, s.k. Expressions of interest (EoI). Þar af tengjast um 1000 rannsóknum á matvælum.
Lesa meiraÍ vikunni var lokið við árlega gæðaúttekt á starfsemi Rf. Að þessu sinni var gerð úttekt á útibúum Rf á Ísafirði og Akureyri, auk starfseminnar í Reykjavík. Þar með má segja að ISO 17025 staðallinn hafi nú að fullu tekið gildi í starfsemi Rf.
Lesa meiraAðalbjörg Elín Halldórsdóttir hefur verið ráðin til starfa sem fjármálastjóri á Rf og var hún valin úr stórum hópi umsækjenda. Aðalbjörg er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.
Lesa meiraEnn á ný veldur hin nýja Matvælastofnun Evrópu óánægju og deilum, þrátt fyrir að hún sé varla tekin til starfa. Neytendasamtök í Evrópu gagnrýna nú harðlega hvernig staðið var að vali á stjórn stofnunarinnar sem þeir segja allt of halla undir ríkistjórnir ESB-landanna.
Lesa meiraÁ milli 70-80 manns sóttu ráðstefnu sem Rf stóð fyrir í gær í Kópavogi. Yfirskrift ráðstefnunnar var
Lesa meiraRf mun fimmtudaginn 5. september halda stutta ráðstefnu þar sem fjallað verður um leiðir til að auka verðmæti uppsjávarfisks. Ráðstefnan verður haldin í Smáraskóla í Kópavogi, við hlið Sjávarútvegssýningarinnar 2002. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Sjá nánar dagskrá.
Lesa meiraTvær skýrslur um niðurstöður mengunarvöktunar á lífríki sjávar við Ísland, sem Rf gaf út í s.l. viku, og vakið hafa talsverða athygli, eru nú komnar á netið. Veljið
Í samanburði við önnur hafssvæði er styrkur þungmálma í hafinu umhverfis Ísland almennt undir viðmiðunargildum Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Undantekning á þessu er þó kadmín, sem mælist hátt í lífríki sjávar hér við land.
Lesa meiraRf óskar eftir að ráða fjármálastjóra. Um er að ræða spennandi og fjölbreytt starf á stærstu matvælarannsóknastofnun landsins. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst n.k.
Lesa meiraSamkvæmt íslenska almanakinu kallast tímabilið frá 13. júlí til 23. ágúst hundadagar. Egyptar og Grikkir í fornöld trúðu því m.a. að hundar yrðu galnir um þetta leyti og jafnvel mannfólkið líka, en þessi árstími hefur einnig lengi verið tengdur matarsjúkdómum.
Lesa meiraÁ s.l. 4 milljónum ára hefur maðurinn þróast í það að verða fullkomnasta átvagl jarðarinnar, þ.e. sú tegund sem étið getur fjölbreyttasta fæðu allra tegunda. Nútímamataræði og þá sérstaklega aukin áhersla á hverskonar megrunarkúra er að snúa þessari þróun við.
Lesa meiraFyrirhugað er að halda næstu alþjóðlegu ráðstefnu Evrópusamtakanna WEFTA á Íslandi í júní 2003 í samvinnu við Ameríkusamtökin AFTC. Rf sér um undirbúning ráðstefnunnar sem haldin verður í Reykjavík. Ráðstefnan er titluð Trans Atlantic Fisheries Conference 2003 eða TAFT 2003
Lesa meiraNý gjaldskrá Rf tók gildi 10.júní sl. eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum. Gjaldskráin hefur verið endurskoðuð og tillit tekið til hækkunar á verðlagi frá ársbyrjun árið 2000, en þá var síðast gerð breyting á gjaldskrá Rf
Lesa meiraHvernig er best að bera sig að við að elda á grillinu í sumar, hvað ber helst að varast?
Lesa meiraVinnufundur verður haldinn við Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins á Akureyri í norrænu samstarfsverkefni sem heitir
Lesa meiraEvrópusambandið sendi nýlega frá sér bækling þar sem teknar eru saman upplýsingar um fiskeldi í einstökum ríkjum sambandsins, helstu tegundir, magn þeirra og verðmæti. Bæklingurinn er ágætt, einfalt yfirlit yfir þessa atvinnugrein í löndum ESB - Skoða PDF
Ársskýrsla Rf um starfsemi stofnunarinnar árið 2004 er komin út. Skýrslan er 25 bls og ert þar tíundað það helsta úr starfsemi Rf á síðasta ári. Nýbreytni er að skýrslan er ekki prentuð heldur er hægt að nálgast hana sem pdf-skjal.
Guðjón Atli Auðunsson, efnafræðingur á Rf, stjórnaði þeim umfangsmiklu umhverfisrannsóknum sem gerðar voru á vegum Gatnamálstofu vegna hins nýja fráveitukerfis höfuðborgarsvæðisins. Þetta er eitt stærsta umhverfisverkefni sem unnið hefur verið að á Íslandi.
Lesa meiraEkki hefur tekist að sýna á óyggjandi hátt fram á það að lífrænt ræktuð matvæli séu hollari eða bragðbetri en önnur matvæli. Þetta segja vísindamenn á Nýja Sjálandi
Lesa meiraCodex Alimentarius er latneskt heiti á alþjóðlegum viðmiðunarreglum um matvæli sem hafa verið í gildi s.l. 40 ár. Nú stendur fyrir dyrum að endurskoða þessar reglur til að þær endurspegli sem best aðstæður í matvæaframleiðslu í dag.
Lesa meiraSjávarútvegsráðherra hefur skipað dr. Sjöfn Sigurgísladóttur í stöðu forstjóra Rf frá og með 1. maí n.k. Sjöfn er matvælafræðingur að mennt og hefur gegnt starfi forstöðumanns Matvælasviðs Hollustuverndar ríkisins s.l. tvö ár. Starfsfólk Rf býður Sjöfn velkomna í hópinn.
Með lögum nr.169/2000 um breytingu á lögum nr. 93/1995 um matvæli segir: "Eftirlitsaðilar og þeir sem framleiða matvæli eða dreifa þeim skulu tilkynna til hlutaðeigandi stofnana, sem eru ráðuneytum til ráðgjafar samkvæmt ákvæðum III. kafla laganna, ef gögn sem þessir aðilar hafa undir höndum eða aðrar ástæður benda til hættu á heilsutjóni vegna neyslu matvæla. Sama tilkynningarskylda á við um þá sem starfa við rannsóknir og greiningu á matvælum ef þeir greina í matvælum örverur sem geta valdið sjúkdómum í mönnum sem eru tilkynningarskyldir samkvæmt ákvæðum sóttvarnarlaga, nr. 19/1997, eða reglna settra með stoð í þeim lögum".
Lesa meiraEnn og aftur sýna rannsóknir hversu hollt það er að borða fisk. Í hinu virta tímariti New England Journal of Medicine, sem út kom í dag, er greint frá því að regluleg fiskneysla geti dregið úr líkum á dauða vegna hjartaáfalls um allt að 81%.
Lesa meiraVinsældir s.k. markfæðis hafa aukist verulega í Bretlandi, eins og víðar í iðnvæddum ríkjum, á síðustu árum. Sala á mat og drykkjum af þessu tagi jókst um 159% á árunum 1999-2001 í Bretlandi og talið er að enn séu verulegir möguleikar fyrir hendi til að auka söluna enn frekar.
Lesa meiraÍ dag er sérstakur dagur, þar sem foreldrar voru hvattir til að leyfa dætrum sínum á aldrinum 9-15 ára til að koma með sér í vinnuna. Auður í krafti kvenna nefnist þetta sérstaka átak og milli 40 og 50 stúlkur hafa af þessu tilefni verið í heimsókn í Sjávarútvegshúsinu í dag. Þetta eru dætur starfsfólks Sjávarútvegsráðuneytisins,Hafró, Rf og Fiskistofu.
Lesa meiraÍ dag lýkur tveggja daga námsstefnu um s.k. vistferilgreiningu í sjávarútvegi og fiskiðnaði á Rf. Þátttakendur, sem koma víða að, munu flytja fyrirlestra og skiptast á skoðunum og upplýsingum sem snerta sjávarútveg og umhverfismál.
Lesa meiraRáðstefna um góða framleiðsluhætti (GMP) í fiskiðnaði og um borð í fiskiskipum og á fiskmörkuðum verður haldin í Flórens á Ítalíu dagana 15.-17. apríl n.k. Ráðstefnan er lokafundur í tveimur ESB- verkefnum um gæðamerkingar fisks og aðferðir til að meta ferskleika og gæði sem Rf er þátttakandi í.
Lesa meiraVinnu við verkefnið "Þróun á nýrri tegund beitu til línuveiða," sem Rf vinnur að ásamt fleiri aðilum, miðar vel áfram. Í gær var fundur á Rf þar sem þeir aðilar, sem að verkefninu koma, báru saman bækur sínar.
Lesa meiraSvein Ludvigsen, sjávarútvegsráðherra Noregs, segir að hægt sé að auka útflutningsverðmæti norskra sjávarafurða úr um 30 milljörðum norskra króna í dag í um 200 milljarða á næstu 20-30 árum. Það er álíka mikið og Normenn reikna með að fá fyrir norska olíu og gas á þessu ári.
Lesa meiraMaritech International og Surefish Inc. hafa gert samning um yfirtöku Surefish á WiseFresh (áður QimIT) hugbúnaðinum frá Maritech sem mun hér eftir heita SureFresh. Rf átti stóran þátt í þeirri vinnu sem hugbúnaðurinn byggir á.
Lesa meiraNiðurstöður könnunar, sem birt var á Ítalíu í dag, sýnir að þar í landi eru menn ekki ýkja hrifnir af erfðabreyttum matvælum. Flestir sögðust ekki myndu kaupa matvæli sem innihéldu slík efni, hvort sem þau brögðuðust betur eða væru ódýrari.
Lesa meiraFyrir nokkrum vikum var haldin ráðstefna í Svíþjóð á vegum Norræna iðnþróunarsjóðsins sem bar yfirskriftina "The future for Nordic food innovation." Þar spáðu m.a. vísindamenn, stjórnmálamenn, talsmenn neytenda og iðnaðar í framtíðina. Hér má lesa stutta samantekt af því sem þar kom fram.
Lesa meiraFlestir vita að í þörmum fólks dafnar fjölskrúðugt líf ýmissa nytsamra gerla sem hafa bætandi áhrif á heilsu þess. Nýlega var opnuð vefsíða á vegum ESB þar sem safnað hefur verið saman upplýsingum um ýmsar rannsóknir sem gerðar hafa verið á þessu sviði
Lesa meiraAnnar fundur í verkefninu ORKUSPAR var haldinn í Reykjavík um s.l. helgi. Ef allt gengur að óskum gæti afrakstur verkefnisins leitt til verulegs fjárhagslegs- og umhverfislegs ávinnings fyrir bæði atvinnulífið og þjóðfélagið í heild
Lesa meiraNotkun timburs í matvælaiðnaði hefur minnkað verulega síðustu áratugi, á meðan notkun plasts og málma hefur aukist að sama skapi. Ekki eru allir á eitt sáttir varðandi þessa þróun. Á ráðstefnu í Kaupmannahöfn í apríl n.k. verður timbur í matvælaiðnaði á dagskrá
Lesa meiraFramadagar, en svo nefnist sérstakt kynningarátak háskóla á Íslandi, eru nú haldnir í áttunda sinn. Rf og fleiri aðilar úr íslensku atvinnulífi kynna m.a. starfsemi sína á framadögum í Háskólabíó í dag.
Lesa meiraÍ nýlegri skýrslu kanadískra umhverfisverndarsamtaka eru þarlend yfirvöld gagnrýnd fyrir að gera lítið úr þeirri hættu sem villtum laxi stafar af sjólús (Lepeophtheirus salmonis) frá laxeldisstöðvum. Hér er hægt að skoða umrædda skýrslu (PDF)
Vísindamenn eru nú að þróa tækni sem byggir á því að nota vatnsþrýsting til að eyða skaðlegum örverum í matvælum. Aðferðin mun hugsanlega einkum koma framleiðendum og neytendum tilbúinna matvæla til góða
Lesa meiraVeitingahúsakeðja í Bretlandi, sem sérhæfir sig í sjávarréttum, hefur ákveðið að hætta að bjóða upp á skötusel, skötu og sverðfisk. Ástæðan er sú að umhverfisverndarsamtök þar í landi telja þessar fisktegundir ofveiddar
Lesa meiraBráðabirgðatölur norsku hagstofunnar yfir heildarafla og verðmæti landaðs afla þar í landi á síðasta ári sýnir svipaðan heildarafla og árið 2000,eða um 2,6 milljónir tonna. Aflaverðmætið nemur um 11,2 milljörðum norskra króna, eða um 126 milljörðum íslenskra króna.
Lesa meiraPólsk yfirvöld hafa lagt á tímabundið bann við innflutningi á öllu fiskimjöli. Ástæðan er sú að leifar af sýklalyfi, sem getur verið skaðlegt fólki, fannst nýlega í fóðri í Þýskalandi. Fóðrið hafði m.a. verið unnið úr fiskimjöli.
Lesa meiraReiknað er með að rúmlega 1 milljón tonn af Atlantshafslaxi verði sett á markað á þessu ári. Norðmenn eru sem fyrr langstærstir á þessum markaði, þó svo hlutdeild þeirra á heimsmarkaði hafi minnkað úr 57% árið 1997 í 42% í fyrra
Lesa meiraHatrammar deilur hafa risið vegna skilgreiningar ESB á því hvenær sósa telst ekki lengur vera sósa heldur grænmeti. Kjánalegt? Það finnst sumum af stærstu matvælafyrirtækjum í heimi ekki, enda um mikla hagsmuni að ræða.
Lesa meiraRf vekur athygli á grein sem birtist í 11. tölublaði tímaritsins Ægis árið 2001.Greinina rita þau Eva Yngvadóttir og Sigurjón Arason, sérfræðingar á Rf, og ber hún yfirskriftina ORKUSPAR. Það er heiti verkefnis sem miðar að því að bæta orkunýtingu skipa og í fiskiðnaði. Hugsanlega er hér um að ræða nýjung sem getur skilað Íslendingum verulegum umhverfislegum- og fjárhagslegum ávinningi
Búið er að setja ýmsar skýrslur, sem gefnar voru út árið 2000, út á netið. Hægt er að lesa þær, ásamt ýmsum eldri skýrslum, í heild sinni með því að smella á Útgáfa og svo Eldra efni.