janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
Þessa dagana er sendinefnd frá Úganda í heimsókn hér á landi til þess m.a. að kynna sér möguleika á samstarfi við Ísland og kynna í leiðinni fyrir landanum viðskipta- og fjárfestingatækifæri í Úganda. Nokkrir úr sendinefndinni heimsóttu Rf í morgun.
Lesa meiraSem kunnugt er tekur Rf þátt í verkefninu SeafoodPlus, en það er eitt af sex matvælaverkefnum sem ESB mun styrkja á næstu árum og jafnframt stærsta einstaka verkefnið sem Rf hefur tekið þátt í. Áformað er að verkefnið hefjist formlega um næstu áramót, en undirbúningur verkefnisins er vel á veg kominn.
Lesa meira
Sigurjón Arason, efnaverkfræðingur á Rf, er nýkominn úr ferðalagi til Nígeríu, en þar skoðaði hann m.a. fiskmarkaði ásamt starfsmönnum Fiskmiðlunar Norðurlands en það fyrirtæki er stærsti útflytjandi hertra fiskafurða frá Íslandi til Nígeríu. Rf hefur um árabil rannsakað og þróað aðferðir við þurrkun á fiski og hefur aðstoðað mörg íslensk fyrirtæki sem sérhæft hafa sig í vinnslu á aukaafurðum, s.s. þurrkuðum þorskhausum.
Lesa meiraStarfið felst m.a. í undirbúningi sýna og ýmsum efnagreiningum. BS próf í raungreinum eða sambærileg menntun er æskileg og reynsla af störfum á rannsóknarstofu er kostur.
Lesa meira
Á Rf er nú unnið að gerð bæklings um bætta meðferð afla, sem ætlunin er að dreifa í öll íslensk fiskiskip. Verkefnið er stutt af AVS-sjóðinum og er á meðal þess sem kynnt verður á Haustfundi Rf á Nordica Hóteli í dag.
Lesa meiraFimmtudaginn 13. nóvember býður Rf til opins fundar undir yfirskriftinni "Árangur rannsókna - sóknarfæri." Á fundinum verður starfsemi Rf og ýmis verkefni í fortíð, nútíð og framtíð m.a. kynnt. Fundurinn verður haldinn á Nordica Hóteli og hefst kl. 12:20.
Lesa meira
Tveir starfsmenn Rf, Sveinn V. Árnason og Sigurjón Arason, komu til landsins í gær eftir ferðalag til Vietnam, þar sem þeir héldu námskeið fyrir háskólafólk og embættismenn um ýmsa þætti er lúta að vinnslutækni og gæða- og öryggismálum matvæla.
Lesa meiraMei Manxue, sem undanfarin tvö ár hefur unnið að meistaraverkefninu "Nýting aukaafurða við vinnslu á flakabitum," var á meðal þeirra sem útskrifuðust frá Háskóla Íslands s.l. laugardag. Leiðbeinendur Mei voru þrír sérfræðingar á Rf, sem jafnframt kenna við H.Í.
Lesa meiraNýlega flutti Sveinn Margeirsson, M.S. nemandi við Verkfræðideild H.Í. erindi um verkefni sitt
Lesa meiraNýlega flutti Sveinn Margeirsson, M.S. nemandi við Verkfræðideild H.Í. erindi um verkefni sitt Lesa meira
Mældur hefur verið heildarstyrkur kvikasilfurs í átta sýnum af hrefnukjöti úr vísindaveiðum Íslendinga. Öll dýrin voru tarfar og spannar lengd dýranna allar stærðir tarfanna eða frá þeim minnsta til þess stærsta. Tarfar eru líklegri til að hafa hærri styrk heildarkvikasilfurs en kýr og því hærri sem dýrin verða eldri/stærri. Styrkur kvikasilfurs í þessum hrefnukjötssýnum er á milli 10 og 35% af lægra hámarksgildi fyrir kvikasilfur í sjávarfangi og því vel undir gildandi mörkum. Meðaltal mælinganna var um 90µg/kg eða meir en tvöfalt lægra en meðaltal kvikasilfurs í hrefnu, sem Norðmenn veiddu 2002, en það var um 230µg/kg. Þetta meðaltal fyrir hrefnuna í veiðum Norðmanna er jafnframt hærra en hæsta mælda gildið í íslenska hrefnukjötinu en þess að geta að norskt hrefnukjöt er á íslenskum markaði.
Fóstri í móðurkviði og nýburum er meiri hætta búin af völdum kvikasilfurs og með nýútgefnum ráðleggingum til barnshafandi kvenna og kvenna með börn á brjósti er viðkvæmt lífsstig látið njóta vafans og standa því ráðleggingar til þessa hóps um að takmarka neyslu hrefnukjöts við tvær máltíðir á viku eða sjaldnar.
Rf hefur nýlega gerst aðili að samtökum sem nefnast European Hygienic Engineering & Design Group (EHEDG), en samtök þessi vinna m.a. að því að auka öryggi í matvælaframleiðslu og við pökkun matvæla.
Lesa meiraEftirfarandi er greinargerð frá embætti yfirdýralæknis, Landlæknisembættinu, Lýðheilsustöð/Manneldisráði, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Umhverfisstofnun varðandi neyslu á hrefnukjöti og öðru sjávarfangi
Lesa meiraÍ dag mun Birna Guðbjörnsdóttir, matvælafræðingur á Rf, heimsækja Hamraskóla og fræða nemendur í 9. og 10. bekk um örverur og persónulegt hreinlæti. Heimsóknin er hluti af átakinu
Lesa meiraÁrleg úttekt SWEDAC á gæðakerfi og faggildingu þjónustusviðs Rf fór fram í síðustu viku. Úttektaraðilar heimsóttu að þessu sinni útibú Rf í Vestmannaeyjum og í Neskaupstað auk þess sem úttekt var gerð á þjónustusviði Rf í Reykjavík
Lesa meiraÍ vikunni var undirritaður samstarfssamningur milli Rf og Hólaskóla á sviði rannsókna og kennslu í fiskeldi og tengdum greinum. Samningnum er ætlað að mæta vaxandi þörf fyrir menntun á háskólastigi á þessu sviði
Lesa meiraÍ morgun hófst kennsla við Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna í sjötta sinn. Að þessu sinni stunda 22 nemendur frá 15 löndum nám við skólann og er það stærsti hópurinn til þessa, en 19 nemendur voru við skólann á síðasta skólaári.
Lesa meiraÁ heimasíðu RANNÍS er fjallað um verkefni sem unnið var að hér á Rf um þídd sjófryst MAP-flök með skipum á erlendan markað. Það var einmitt RANNÍS sem styrkti þetta verkefni, sem hófst árið 2000 og lauk fyrr á þessu ári
Í niðurstöðum nýlegrar vistferilgreiningar á þeim umhverfisáhrifum sem framleiðsla á hefðbundnum þorskafurðum hefur, kemur m.a. í ljós að fullvinnsluskip losar um 1,7 kg af gróðurhúsalofttegundinni CO2 við það að veiða 1 kg af þorski
Lesa meiraHvaða áhrif hefur það á umhverfið að veiða, vinna, geyma, flytja og loks matreiða þorsk sem veiddur er á Íslandsmiðum? Þetta er á meðal þess sem kannað var í nýlegri rannsókn og kynnt verður á fundi í Kornhlöðunni kl. 12:15 á fimmtudag
Lesa meiraRannsóknastofnun fiskiðnaðarins tekur þátt í umfangsmiklu verkefni um heilnæmi sjávarfangs á vegum Evrópusambandsins Markmiðið er að auka neyslu á fiski, rannsaka áhrif hans á heilsu og vellíðan fólks, stuðla að auknu öryggi sjávarafurða og frekari fullvinnslu sjávarfangs þ.m.t markfæði
Lesa meiraTækniháskóli Íslands og Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins auglýsa eftir sérfræðingi á sviði reiknitækni. Starfssvið sérfræðingsins verður uppbygging rannsókna og kennslu á sviði reiknitækni við THÍ og úrlausn verkefna á því sviði við Rf.
Nýlega var lokið vinnu í verkefninu “Stýring örveruflóru í startfóðurkerjum lúðulirfa,” sem unnið í samvinnu Rf, Háskólans á Akureyri og Fiskey ehf. (Fiskeldis Eyjafjarðar). Verkefnið hlaut samtals 12 milljónir í styrk úr Tæknisjóði Rannís 2001-2003 og var það hæsti styrkur sem veittur var úr sjóðnum á því tímabili
Lesa meiraFóðurkostnaður í þorskeldi er mikill, enda er fóðrið að mestu leyti unnið úr hágæða fiskimjöli og lýsi. Hugsanlega er hægt að draga verulega úr þessum kostnaði án þess að það komi niður á gæðum fisksins. Nýtt verkefni á Rf hefur það að markmiði að rannsaka þetta.
Lesa meiraÁrsskýrsla Rf fyrir árið 2002 er komin út. Hún er einungis gefin út í tölvutæku formi (pdf).
Í gær lauk TAFT-ráðstefnunni, sem staðið hefur yfir s.l. fjóra daga. Ráðstefnan þótti takast einkar vel og ríkti einhugur um að framhald yrði á þeirri alþjóðlegu samvinnu sem stofnað var til í Reykjavík. Rf hlaut mikið lof fyrir framkvæmd ráðstefnunnar
Lesa meiraÁrni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra setti í morgun alþjóðlega ráðstefnu um rannsóknir og nýjungar í fiskvinnslu á Grand Hótel Reykjavík. Rúmlega 200 manns sitja ráðstefnunna
Lesa meiraÍ gær var undirritaður samningur á milli Rf og Tækniháskóla Íslands um eflingu samstarfs um tækni og nýsköpun á sviði matvælavinnslu, gæða og öryggis matvæla. Ráðinn verður starfsmaður í reiknitækni fljótlega sem verður í hálfu starfi hjá hvorri stofnun
Lesa meiraNú, þegar rúm vika er þar til TAFT-ráðstefnan hefst eru um 170 þátttakendur búnir að skrá sig á ráðstefnuna. Um sannkallaða alþjóðaráðstefnu er að ræða enda eru ráðstefnugestir frá a.m.k. 22 löndum. Mikill áhugi virðist vera á því að nota ráðstefnuna til að koma á tengslum (Networking) vegna rannsókna um nýtingu sjávarfangs o.fl.
Lesa meiraHugbúnaður, sem unnið hefur verið að á Rf í samvinnu við innlend og erlend fyrirtæki og skóla, getur hugsanlega sparað hundruðir milljóna króna og um leið dregið verulega úr losun gróðurhúsaáhrifa. Hugbúnaðurinn nefnist ORKUSPAR og hægt er að nálgast hann ókeypis á netinu.
Lesa meiraÞrír þýskir fréttamenn heimsóttu Rf gær og héldu e.k. óformlegan fréttamannafund með sérfræðingum stofnunarinnar. Á fundinum fengu þeir þýsku margvíslegar upplýsingar um atriði er tengjast íslensku sjávarfangi og afurðum úr því og vakti margt athygli þeirra.
Lesa meiraÚt er komin bókin "Quality of Fish from Catch to Consumer: Labelling, Monitoring and Traceability." Um er að ræða vandaða samantekt tveggja stórra Evrópuverkefna sem Rf hefur m.a. tekið þátt í á undanförnum árum
Lesa meiraRf stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu, TAFT 2003 í júní n.k. og von er á fjölda erlendra vísindamanna hingað af þessu tilefni. Á ráðstefnunni verður áhersla m.a. lögð á að koma á fót víðtæku samstarfi (networking) vísindamanna og fiskiðnaðar beggja vegna Atlantsála
Lesa meiraFjórir starfsmenn Rf snéru aftur í vikunni eftir velheppnaða ferð til Viet Nam, þar sem þeir kynntu sér þörf heimamanna fyrir fræðslu og þjálfun
Lesa meiraNæstkomandi föstudag, 11. apríl, kl. 13:00-16:30 verður haldið á Hótel Loftleiðum opið málþing um Campylobacter, faraldsfræði og íhlutandi aðgerðir. Málþingið verður haldið í sal 5 og er aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Lesa meiraRf hefur hlotið styrk úr Tæknisjóði Rannís til verkefnis sem fengið hefur nafnið ”Framtíðarþorskur.” Markmið verkefnisins er að móta gæðakerfi við slátrun á eldisþorski, en reynslan hefur sýnt að aðstæður við slátrun skipta verulegu máli hvað gæði afurðanna varðar
Lesa meiraÁ Rf er að fara af stað verkefni um fiskprótein sem fæðubótarefni en prótein sem notuð eru í fæðubótarefni eru aðallega framleidd úr sojabaunum eða mjólkurafurðum.
Lesa meiraRannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Háskóli Íslands auglýsa til umsóknar styrk til doktorsnáms í matvælafræði. Umsækjandi þarf að hafa lokið MS prófi í raunvísindum frá viðurkenndum háskóla.
Lesa meiraRf og Sjávarútvegskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna (SSþ) hafa gert samning um að Rf taki að sér að semja kennsluefni fyrir háskóla í Víetnam. SSþ tók til starfa fyrir 5 árum og hefur Rf séð um hluta kennslunnar við skólann.
Lesa meiraÍslensk nýjung úr sjávarfangi, poppkornsfiskur, hlaut 2. verðlaun á sjávarútvegssýningunni í Boston í vikunni en verðlaunin voru veitt fyrir bestu nýju framleiðsluna. Það var Icelandic USA (SH) sem þróaði þessa nýju vöru.
Lesa meiraNiðurstöður nýrrar rannsóknar í Evrópu virðist benda til að geislun matvæla sé ekki eins hættulaus og áður var talið. Nú er jafnvel talið að neysla matvæla sem hafa verið geisluð geti leitt til ristilkrabbameins og DNA-skemmda.
Lesa meiraFramámaður í norsku fiskeldi varar við því að norskt efnahagslíf sé að verða of háð útflutningi á olíu, með tilheyrandi neikvæðum afleiðingum fyrir aðrar útflutningsgreinar, s.s. sjávarútveg. Hann líkir nosku efnahagslífi við Kúveit.
Lesa meiraRf í Reykjavík hefur skipt um símanúmer. Nýja númerið er 530 8600 og nýtt faxnúmer er 530 8601. Bein innvalsnúmer til starfsmanna má finna hér á vefnum undir tenglinum Starfsmenn – Símaskrá
Nýleg könnun í Bandaríkjunum sýnir að snarl af ýmsu tagi er að mörgu leyti farið að leysa hefðbundnar máltíðir af hólmi. Könnunin sýnir líka að neytendur velja tilbúna rétti og þá sem er fljótlegt að matreiða fram yfir þá sem eru hollari en tímafrekari að undirbúa og neyta.
Lesa meiraÍ dag verður útskrifaður 5. árgangur Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Skólinn er starfræktur samkvæmt sérstöku samkomulagi við Háskóla S.Þ. og er fjármögnun hans að mestu leyti hluti af framlögum Íslands til þróunaraðstoðar.
Lesa meiraLítilsháttar breyting varð á gjaldskrá Rf um síðustu áramót. Um er að ræða 2% hækkun sem stafar af hækkun vísitölu síðan síðasta gjaldskrá Rf tók gildi þann 10. júní 2002.
Lesa meiraNýkomin er út greinargerð um þær kröfur, sem gera þarf til þess fráveituvatns sem losað er í fráveitukerfi Reykjavíkurborgar m.t.t. þátta svo sem tæringar, rekstrartruflana og annarra óæskilegra áhrifa á kerfið
Lesa meiraUm þessar mundir stendur Rf fyrir námskeiðum fyrir starfsmenn fiskmarkaða, þar sem kennt er hvernig meta á fisk samkvæmt gæðastuðulsaðferðinni (QIM). Alls verða sex námskeið haldin á þremur stöðum á landinu
Lesa meiraEvrópusambandið gaf í fyrradag út tilskipun sem miðar að því að lækka leyfilegt hámarksmagn af litarefninu canthaxanthin, sem notað er t.d. í laxeldi til að fiskurinn fái sinn rauða lit. Rannsóknir sýna að efnið getur leitt til blindu sé þess neytt í of miklu magni.
Lesa meiraESB mun ákveða í vor hvort það afléttir ótímabundnu banni við notkun fiskimjöls og lýsis í fóðri jórturdýra, en bannið var sett í kjölfar kúariðufársins. Framleiðendur mjöls og lýsis fá tækifæri til að skýra sín sjónarmið í apríl.
Lesa meiraNormenn ætla sér stóra hluti hvað varðar þorskeldi á næstu árum. Norskt fyrirtæki, Cod Culture Norway (CCN), sem framleiðir þorskseiði, áætlar að ársframleiðsla á eldisþorski í Noregi muni meira en tífaldast á næstu 5 árum.
Lesa meiraÍ nýrri skýrslu eru matvælarisar á borð við Heinz,General Foods o.fl. sökuð um að reyna að hafa áhrif á matvælareglugerðir sem stofnanir á borð við Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) og Matvælastofnun S.Þ. (FAO) setja.
Lesa meiraVísindamenn reyna nú að finna leiðir til að bæta heilnæmum fitusýrum við fóður eldisfiska í þeim tilgangi að bæta heilsufar neytenda. Fiskar geta innihaldið hlutfallslega meira af fitusýrunum en nokkur önnur dýr.
Lesa meira