Skiptiborð lokað 24. desember 2004 til 3. janúar 2005
-
23.12.2004
Um leið og Rf óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs er rétt að geta þess að skiptaborð stofnunarinnar verður lokað frá 24. des til 3 janúar frá kl 10. Tekið skal fram að stofnunin verður opin um hátíðarnar þó svo margir verði í jólafríi. Hægt er að ná í starfsfólk, einkum á þjónustu- og örverusviði með því að hringja í bein númer viðkomandi (sjá Um Rf / Starfsfólk ).
Þeir sem þurfa að koma sýnum, vörum eða öðru geta haft samband við eftirfarandi deildir í bein símanúmer
Örverustofa 530 8602
Efnastofa 530 8622
Snefilefnastofa 530 8654
Þjónustustjóri 898 8062
Grímur Valdimarsson, forstöðumaður fiskiðnaðarsviðs fiskideildar Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) heldur fyrirlestra á vegum Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, dagana 15.-17. desember. Í fyrirlestrunum verður fjallað um veiðistjórnun, alþjóðlega þróun í viðskiptum með sjávarafurðir, neytendavernd og notkun áhættumats í matvælaiðnaði.
Fyrirlestrarnir verða haldnir í fundarsal á fyrstu hæð Sjávarútvegshússins, Skúlagötu 4. Fyrirlestrarnir verða fluttir á ensku.
Allir eru velkomnir.
Lesa meira
Þann 25.-26. nóv. sl. var haldinn verkefnafundur í Horsens í Danmörku í norrænu verkefni sem er styrkt af Nordic Industrial Fund. Verkefnið heitir Fóður fyrir þorsk (
Feed for Atlantic cod). Verkefnið er til þriggja ára en það hófst fyrir um það bil ári síðan.
Lesa meira
Þriðjudaginn 23. nóv. sl. héldu Rf og Auðlindadeild HA málþing á Akureyri undir yfirskriftinni Matvælarannsóknir á Norðurlandi. Um 60 manns sóttu fundinn, sem þótti takast vel. Á fundinum kom fram vilji til áframhaldandi samstarfs Rf og HA varðandi uppyggingu matvælarannsókna norðan heiða. Fundurinn var haldinn í Borgum, hinu nýja rannsókna- og nýsköpunarhúsi HA, en fyrir utan glæsilega kennsluaðstöðu eru ýmis fyrirtæki og stofnanir þar með aðstöðu, þar á meðal Rf.
Lesa meira
Rf og Iðntæknistofnun (ITÍ) stóðu á sínum tíma saman að rannsókn eða vistferilgreiningu á umhverfiskostnaði við þorskveiðar hér við landi og birtust niðurstöður rannsóknarinnar í fyrra. Í rannsókninni var í fyrsta skipti beitt s.k. vistferilgreiningu til að fá skýra mynd af umhverfiskostnaði við fiskveiðar hér við land.
Lesa meira
Sérfræðingurinn verður í tvískiptri stöðu, annarsvegar sem sérfræðingur á Rf og hinsvegar sem lektor, dósent eða prófessor við Tækniháskóla Íslands (THÍ) eftir því sem dómnefnd metur og í samræmi við gildandi lög og reglur þar um. Starfssvið sérfræðingsins verður uppbygging rannsókna og kennslu á sviði reiknitækni við THÍ og úrlausn verkefna á því sviði við Rf.
Lesa meira
Háskólinn á Akureyri og Rf standa sameiginlega að fundi um matvælarannsóknir á Akureyri þriðjudaginn 23. nóvember n.k. Fundurinn verður haldinn í Borgum, nýja rannsókna- og nýsköpunarhúsi HA á Sólborg og stendur frá kl. 13 -16:30.
DAGSKRÁ:
Lesa meira
Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni var Rf fengið til þess á sínum tíma til að semja kennsluefni fyrir háskóla í Viet nam og hefur lítill hópur starfsmanna Rf unnið að þessu verkefni og m.a. farið þrisvar til Viet nam. Nú er komið að því að ljúka verkefninu af hálfu Rf og af því tilefni kom sendinefnd frá Viet nam hingað til lands.
Lesa meira
Um 70 manns sóttu haustfund Rf, sem haldinn var í Saltfisksetrinu í Grindavík 12. nóvember. Hér er hægt að nálgast flesta þá fyrirlestra sem fluttir voru á fundinum.
Lesa meira
Á meðal fyrirlesara á haustfundi Rf í Grindavík á föstudag eru tveir erlendir fyrirlesarar, sem fullyrða má að akkur sé í að fá hingað til lands. Frá Noregi kemur Øyvind LIE, en hann kemur frá Matvælarannsóknastofnunini í Noregi (Nasjonalt Institutt for Ernærings og Sjömatforskning). Lie er jafnframt prófessor við Háskólann í Bergen. Frá Bandaríkjunum kemur Steven Dillingham, stofnandi ráðgjafarfyrirtækisins Strategro International í New York.
Lesa meira
Eins og komið hefur fram mun Rf halda Haustfund 2004 í Saltfisksetrinu í Grindavík n.k. föstudag kl: 13-17. Til að auðvelda fólki að sækja fundinn hyggst Rf bjóða upp á rútuferðir til og frá Grindavík á fundardaginn.
Lesa meira
Rf heldur ársfund sinn föstudaginn 12. nóv. og verður hann haldinn í Saltfisksetrinu í Grindavík. Auk sérfræðinga frá Rf munu margir góðir gestir taka þátt í fundinum, þ.á.m. tveir erlendir fyrirlesarar. Fundurinn stendur frá kl. 13 -17.
Lesa meira
Laugardaginn 23. október sl. brautskráðust 302 kandídatar frá Háskóla Íslands og þar á meðal voru tveir starfsmenn Rf sem lauku meistaraprófi. Þetta eru þær Birna Guðbjörnsdóttir og Helga Halldórsdóttir.
Lesa meira
Nýtt Rannsóknar- og nýsköpunarhús HA verður formlega tekið í notkun í dag. Fyrir utan að vera viðbót við húsnæði HA, verða ýmsar rannsóknastofnanir, þ.á.m. Rf, með aðstöðu í húsinu.
Lesa meira
Íslendingar, eins og reyndar fleiri þjóðir, horfa nú vonaraugum til fiskeldis og þá sérstaklega eldis sjávarfiska eins og þorsks og lúðu. Nokkur útgerðarfyrirtæki hafa reynt fyrir sér með áframeldi þorsks, sem veiddur hefur verið snemma vors og síðan alinn í sjókvíum. Í áframeldinu hefur fiskurinn stundum tvöfaldað þyngd sína, en los í holdi hefur valdið vandræðum. Um þetta er m.a. fjallað í nýrri skýrslu frá Rf, sem nefnist
Framtíðarþorskur: Gæðamat á eldisþorski. Höfundur skýrslunnar er Soffía Vala Tryggvadóttir
Lesa meira
Fiskeldishópur AVS og Landsamband fiskeldisstöðva, halda ráðstefnu á Hótel Loftleiðum, næstkomandi föstudag, 22. október. Á ráðstefnunni verður athyglinni einkum beint að vænlegum eldistegundum í íslensku fiskeldi og stöðu einstakra eldistegunda og þörfinni fyrir rannsókna- og þróunarvinnu. Á annað hundruð manns hafa þegar boðað þátttöku.
Lesa meira
Að beiðni Sjávarútvegsráðuneytisins hefur Rf tekið saman skýrslu um magn óæskilegra aðskotaefna í sjávarafurðum af Íslandsmiðum. Er skýrslan byggð á viðamiklum mælingum sem gerðar voru í fyrra og fram haldið á þessu ári. Tilgangurinn með þessum rannsóknum er að kanna ástand þessara mála hér við land og að hafa haldbær vísindaleg gögn til að geta svarað fullyrðingum um meinta hættu sem stafar af neyslu sjávarafurða, en slíkar upphrópanir gerast nú æ tíðari, t.d. í fjölmiðlum.
Lesa meira
Árleg úttekt SWEDAC (sænsku löggildingarstofnunarinnar) á gæðakerfi og faggildingu mælinga á Þjónustusviði Rf í Reykjavík og á Neskaupstað var gerð í gær. Voru úttektaraðilar ánægðir með það sem þeir sáu og heyrðu á Rf.
Lesa meira
Dagana 14-15 október verður ráðstefnan Safe and Wholesome Food: Nordic reflections, haldin á Nordica hótelinu í Reykjavík. Á meðal gestafyrirlesara eru háttsettir aðilar frá Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO), Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) og hinni nýju Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA).
Lesa meira
Nýjung á vefsíðu Rf: í umræðunni
-
16.9.2004
Sú nýbreytni hefur verið tekin upp á vefsíðu Rf að safna saman undir einn hatt skýrslum o.fl. efni sem hvað mest er í deiglunni hverju sinni og snertir Rf. Er þennan nýja málaflokk að finna til hægri á síðunni undir heitinu í umræðunni
Á milli 30-40 manns sóttu fund um hreinlæti í mjólkuriðnaði, sem Rf, ásamt VTT Biotechnology í Finnlandi, stóðu að. Fundurinn var styrktur af Norræna nýsköpunarmiðstöðinni, Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði og Framleiðnisjóði landbúnaðarins. Hægt er að nálgast glærur fyrirlesara á fundinum.
Lesa meira
Í sjöunda tbl. Ægis 2004 er að vanda að finna ýmsa forvitnilega umfjöllun sem tengist sjávarútvegi og vinnslu sjávarfangs. Þar á meðal eru tvær greinar eftir sérfræðinga Rf, sú fyrri um þörfina á samræmdu mati á ferskleika fisks og sú seinni um vinnslu lífvirkra peptíða úr sjávarfangi.
Lesa meira
Þrátt fyrir nýlegar fréttir af óvenju hraðri hlýnun á Norðurskautinu taka breytingar í náttúrunni sem betur fer oftast langan tíma. Rf hefur í mörg ár tekið þátt í verkefni þar sem fylgst er með mengun og ástandi lífríkis sjávar umhverfis Ísland og niðurstöður mælinga sem ná til áranna 2002-2003 sýna litlar breytingar frá fyrri árum, t.d. eru lítil merki um að styrkur þungmálma og þrávirkra lífrænna efna færist í vöxt. Þetta má m.a. lesa má úr skýrslunni Monitoring of the Marine Biospheare around Iceland in 2002-2003.
Lesa meira
Kynning á 6. matvælaáætlun ESB þri. 7. september
-
6.9.2004
Á morgun, þri. 7. sept. kl. 9:00, verður kynning á 6. matvælaáætlun ESB. Það eru Rannís, Rf og Samtök iðnaðarins sem standa saman að þessari kynningu, sem haldin verður á Grand hótel Reykjavík og hefst kl. 9:00. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Dagskrá á pdf.
Þann 9. september verður haldinn fundur á Grand Hotel Reykjavik um hreinlæti í mjólkuriðnaði. Rf skipuleggur þennan fund í samvinnu við VTT Biotechnology í Finnlandi. Fundurinn er styrktur af Nordic Innovation Centre, Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði og Framleiðnisjóði landbúnaðarins.
Lesa meira
Á ríkisstjórnarfundi í gær kynnti sjávarútvegsráðherra skýrslu sem Rf tók nýlega saman fyrir ráðuneytið um leiðir til að tryggja að íslenskar sjávarafurðir eigi framvegis, sem hingað til, greiðan aðgang að helstu mörkuðum okkar.
Lesa meira
Árni Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, opnaði formlega rannsóknarstofu Rf á Ísafirði í morgun. Við opnunina fluttu ráðherra og Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Rf, ávörp en síðan hófs ráðstefna um horfur í fiskeldi á Vestfjörðum. Frá þessu er greint á heimasíðu Bæjarins besta á Ísafirði.
Lesa meira
Þriðjudaginn 10. ágúst n.k. verður haldinn kynningarfundur á Ísafirði undir yfirskriftinni
“Þorskeldi – verðmætasköpun í norðri.” Tilefni fundarins er að opna formlega rannsóknarstofu Rf á Ísafirði.
Lesa meira
Vegna sumarleyfa verður afgreiðsla Rf lokuð frá 19. - 31. júlí. Þó skiptiborðið sé lokað geta þeir sem þess þurfa haft samband við þá starfsmenn Rf sem eru að störfum á þessu tímabili.
Lesa meira
Skýrsla með yfirliti um starfsemi Rf á árinu 2003 er nú einnig komin út á ensku. Er skýrslan örlítið styttri en íslenska útgáfan eða 43 bls í stað 48. Hægt er að nálgast báðar skýrslurnar sem pdf-skjöl hér á heimasíðunni.
Lesa meira
Útflutningur á fersku sjávarfangi hefur aukist jafn og þétt á s.l. árum og líkti Morgunblaðið í gær þessari aukningu við sprengingu. Bretland er ennþá mikilvægasti markaðurinn fyrir íslenskar sjávarafurðir og þar eru neytendur kröfuharðir, enda löng hefð fyrir fiskneyslu þar í landi. Billingsgate market í London er stærsti fiskmarkaður í Bretlandi og þar kynntu menn sér nýlega kosti þess að nota gæðastuðulsaðferðina QIM.
Lesa meira
Út er komin ársskýrsla Rf og er þar að finna yfirlit yfir starfsemi Rf árið 2003. Árið var óvenju viðburðarríkt og má þar t.d. nefna áherslubreytingar í rekstri, umfangsmikla stefnumótunarvinnu, fjölbreytileg rannsóknarverkefni, fjölda vísindagreina sem birtust í erlendum vísindatímaritum og loks fjölmennar ráðstefnur sem voru haldnar á árinu.
Lesa meira
Á síðustu árum hafa rannsóknir á Rf í æ ríkari mæli verið á sviði líftækni og nýrrar vinnslutækni þar sem unnið er að þróun nýrra afurða úr sjávarfangi, ekki síst úr bræðslufiski, vannýttum tegundum og aukahráefni. Verkefnið
Nýjar próteinafurðir úr síld er eitt slíkt verkefni.
Lesa meira
Á nýlegu Fiskiþingi flutti Sveinn V. Árnason, vélaverkfræðingur á Rf, erindi sem hann nefndi: Rekjanleiki - Ný forsenda markaðsstarfs. Í erindinu gerði Sveinn m.a. að umtalsefni hvað rekjanleiki merkir og ræddi einnig tilurð reglugerðar ESB 178/2002, en hún tekur gildi um næstu áramót.
Lesa meira
Komin er út skýrslan
Áhrif roðkælingar á gæði fiskflaka, en verkefni sem ber sama heiti hófst á Rf á s.l. ári og hefur það markmið að auka þekkingu á áhrifum vægrar frystingar á eðlis- og efnafræðilega þætti fiskholds og einnig að bera afurðir unnar með hinni nýju vinnslutækni saman við hefðbundnar afurðir.
Lesa meira
Nú um mánaðarmótin verða töluverðar breytingar á rekstri og starfsmannahaldi á Rf, sérstaklega á útibúunum Í Vestamannaeyjum, á Ísafirði og á Akureyri. Eru þær breytingar til komnar vegna áður boðaðra skipulagsbreytinga á viðkomandi stöðum. Þá láta tveir starfsmenn í Reykjavík af störfum eftir langan og farsælan starfsferil.
Lesa meira
Rf verður með bás á sýningarsvæði Útflutningsráðs Íslands á Sjávarútvegssýningunni í Brussel 4.-6. maí. Miðvikudaginn 5. maí mun Rf standa að námsstefnu um mat á ferskum fiski og er aðgangur ókeypis, en áhugasamir eru hvattir til að skrá sig fyrirfram. Vitað er að fjöldi Íslendinga mun heimsækja sýninguna, m.a. verður leiguflug héðan á mánudag.
Lesa meira
Handbókin Skynmat á ferskum fiski eftir Emilíu Martinsdóttur, efnaverkfræðing á Rf, kom út árið 1995 og var hún hluti af ritröð er nefndist Handbók fiskvinnslunnar, en á meðal annarra rita í þeim flokki má t.d. nefna handbækur um skreiðarvinnslu og saltfiskverkun. Af þessum ritum má segja að Skynmat á ferskum fiski hafi slegið rækilega í gegn en nú er búið að gefa bókina út á 11 tungumálum.
Lesa meira
Samtök mjöl og fóðurframleiðenda í Bretlandi, The Grain and Feed Trade Association, veitir tvisvar á ári viðurkenningar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem þau telja að uppfylli ýtrustu kröfur um mælingar á mjöli og fóðurmjöli. Nýlega endurnýjuðu samtökin viðurkenningu til handa Rf.
Lesa meira
Um 50 manns sóttu fund Rf og Örverufræðingafélags Íslands um
Listeriu, sem haldinn var nýlega. Eitt af því sem er athyglisvert við þessa bakteríu er að hún finnst stundum í meira magni í lokaafurðum, þ.e.
eftir að búið er að vinna hráefnið í matvælavinnslu.
Lesa meira
Rf óskar eftir að ráða í tvær stöður sérfræðinga, annars vegar í
Vestmannaeyjum og hins vegar á
Ísafirði. Viðkomandi sérfræðingum er ætlað að leiða ýmis verkefni er miða að því að auka verðmæti sjávarafurða.
Lesa meira
Í grein í Morgunblaðinu í dag fjallar Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Rf, um nauðsyn markvissra rannsókna og þróunar sem lykilatriðis í því að auka verðmæti íslenskra sjávarafurða til frambúar.
Lesa meira
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Örverufræðifélag Íslands boða til fræðslufundar þriðjudaginn 30 mars kl. 13.00 -16.00 á Grand Hótel Reykjavík. Fundarefnið er Listeria í mönnum, dýrum og matvælum.
Lesa meira
Í nýjasta tölublaði vísindaritsins Trends in Food Science and Technology er að finna grein sem nefnist Multisensor for fish quality determination. Aðalhöfundur hennar er Guðrún Ólafsdóttir, matvælafræðingur á Rf.
Lesa meira
Rf hefur gefið út bæklinginn
Mikilvægi góðrar meðhöndlunar á fiski, sem, eins og titillinn gefur til kynna, fjallar um mikilvægi fyrstu meðhöndlunar á fiski eftir að hann veiðist, svo sem blóðgun, slægingu, þvott og kælingu. Þessi grundvallaratriði skipta höfuðmáli um það hversu mikil verðmæti hægt er að gera úr fiski.
Lesa meira
Flair Flow er heiti á Evrópusambandsverkefni sem hófst fyrir 12 árum og hafði þann tilgang að miðla upplýsingum úr þeim rannsóknum sem ESB styrkir og tengjast matvælaiðnaði. Til stóð að verkefninu lyki um síðustu áramót en nú virðist sem ekki séu allir á eitt sáttir með það.
Lesa meira
Verið er að taka í notkun á Rf nýtt tæki, Capillary electrophoresis, sem m.a. verður notað til að rannsaka hvort hægt sé að mynda peptíð með lífvirkni úr kolmunna. Lífvirkni er forsenda þess að unnt sé að nota kolmunna sem markfæði.
Lesa meira
Nýlega lauk 3. ára norrænu verkefni sem Rf stjórnaði, þar sem reynt var að meta hvort hægt sé að nota vistferilgreiningu (Life Cycle Assessment) til að meta heildarumhverfisáhrif fiskveiða og fiskvinnslu.
Lesa meira
Sjávarútvegssýningin í Bremen, sem haldin er annað hvert ár, var haldin um síðustu helgi. Að sögn Guðrúnar Ólafsdóttur og Rósu Jónsdóttur, starfsmanna á Rf sem skoðuðu sýninguna, vakti það sérstaka athygli þeirra hversu mörg og áberandi fisksölufyrirtæki frá Asíu voru meðal sýnenda.
Lesa meira
Nýlega var haldinn í Bremerhaven í Þýskalandi fundur í verkefninu Fishnose, en það fjallar um notkun rafnefs til að meta gæði reykts lax. Verkefnið felst í því að þróa/aðlaga rafnef frá fyrirtækinu AlphaMOS í Frakklandi til að meta reyktan lax, þ.e. hvort laxinn er farinn að skemmast.
Lesa meira
Sjávarútvegsnefnd Alþingis sótti Rf heim í morgun og kynnti sér starfsemi stofnunarinnar. Í nefndinni sitja 9 þingmenn og heldur nefndin sína reglulegu fundi á mánudagsmorgnum. Undir nefndina heyra flest þau mál sem varða sjávarútveg hér á landi, nýtingu fiskimiða, meðferð og vinnslu sjávarafla.
Lesa meira
Í nýútkominni bók er nefnist Advances in Seafood Byproducts: 2002 Conference Proceedings og gefin er út af Alaska Sea Grant College Program, birtist grein eftir Sigurjón Arason, efnaverkfræðing á Rf og einn helsta sérfræðing Rf á þessu sviði.
Lesa meira
Nýlega hófst verkefni á Rf sem felur í sér þátttöku í norrænni aðferðaþróun á neysluvatni á vegum NMKL (Norræna matvælarannsóknanefndin). Verkefnið er styrkt af EK-LIVS ( Norræna embættisnefndin um matvæli). Þess má geta að hér á landi er neysluvatn skilgreint sem matvæli og í gildi er sérstök reglugerð sem kveður á um gæði þessi og öryggi fyrir neytendur.
Lesa meira
Í nýjasta tbl. hins virta vísindarits Food Microbioloy er grein eftir Birnu Guðbjörnsdóttur, matvælafræðing á Rf, og fleiri, er segir frá niðurstöðum viðamikillar hreinlætisúttektar m.t.t mengunar af völdum
Listeriu í kjöt-, fisk- og fuglakjötsvinnslum á Norðurlöndum.
Lesa meira
Töluverðar breytingar munu verða á starfsemi Rf á næstu mánuðum, sérstaklega hvað varðar starfsemi á útibúum Rf. Markmið breytinganna er annars vegar að auka vægi rannsókna og þróunar í starfsemi Rf og jafnframt að draga úr samkeppnisrekstri.
Lesa meira
“Þróun beitu til línuveiða” er heiti á athyglisverðu Evrópusambandsverkefni sem Rf hefur unnið að og er nú lokið. Meginmarkmið verkefnisins var að þróa beitu úr ódýru hráefni í stað þess að nota fisk sem hæfur er til manneldis sem beitu. Núna er verið að setja upp verksmiðju á Ísafirði og er búist við að framleiðsla á beitunni hefjist strax í febrúar.
Lesa meira
Tæplega 40 manns sóttu kynningarfund um roðkælingu á fiski á Akureyri s.l. mánudag. Fyrir utan heimamenn sóttu fundinn aðilar frá nágrannabyggðunum, s.s. frá Dalvík og Ólafsfirði, en einnig voru þarna menn sem komnir voru langt að, frá Vopnafirði og jafnvel Eskifirði, að sögn Emilíu Martinsdóttur, deildarstjóra á Rf. Hér má skoða glærur frá fundinum.
Lesa meira
Alls voru gefnar út 31 skýrsla á Rf á síðasta ári, sem er aukning frá árinu 2002, en þá voru skýrslurnar 20. Skýrslurnar endurspegla ágætlega fjölbreytni þeirra verkefna sem unnið er að á Rf´ um þessar mundir, en þar má t.d. nefna rannsóknir á bættum vinnsluferlum í fiskvinnslu, umhverfisrannsóknum, fiskeldi o.fl.
Lesa meira
Í vikunni komu þær Birna Guðbjörnsdóttir og Guðrún Ólafsdóttir, matvælafræðingar á Rf, aftur úr ferðalagi til Víetnam, en þangað fóru þær og héldu þrjú námskeið með háskólafóki í Vietnam og aðilum úr fiskiðnaði. För þeirra er framhald tveggja heimsókna frá Rf til landsins árið 2003.
Lesa meira
Á milli 70-80 manns sóttu kynningarfund um roðkælingu á fiski, sem Rf og Skaginn hf. héldu í Sjávarútvegshúsinu í dag. Er ljóst að mikill áhugi er á þessari nýjung í vinnslu og flutningum á ferskum fiski. Fresta þótt fundi um sama efni sem halda átti á Akureyri í gær, en hann verður haldinn þar innan tíðar.
Lesa meira
Neytendur í Bretlandi virðast ákveðnir í að láta viðvaranir við neyslu á eldislaxi sem vind um eyru þjóta, en í grein, sem birtist í tímaritinu Science í síðustu viku og sagt var frá hér í gær, voru sett spurningamerki við hollustu slíkrar vöru. Samkvæmt fréttum frá Bretlandi virðist sem Bretar hafi borðað fisk, þ.m.t. eldislax, sem aldrei fyrr eftir að grein Science birtist.
Lesa meira
Grein, sem birtist nýlega í tímaritinu Science, þar sem m.a. var varað við of mikilli neyslu á eldislaxi, hefur vakið talsverð viðbrögð laxabænda og lýðheilsufrömuða víða um heim. Samtök laxeldisfyrirtækja í Bresku Kólumbíu í Kanada birtir t.d. á
heimasíðu sinni umsagnir ýmissa málsmetandi aðila í Kanada og Bandaríkjunum, þar sem fólk er hvatt til að borða áfram eldislax.
Lesa meira
Ný vinnslutækni, sem Skaginn hf. á Akranesi hefur þróað, þykir boða byltingu í vinnslu á ferskum fiski. Hugsanlega er þarna að finna svar íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja við harðnandi samkeppni á fiskmörkuðum, einkum frá löndum í SA-Asíu, og sem stundum hefur verið kölluð "ógnin frá Kína"
Lesa meira
Breyting á gjaldskrá Rf
-
6.1.2004
Lítilsháttar breyting varð á gjaldskrá Rf um áramótin. Að sögn Heiðu Pálmadóttur, deildarstjóra þjónustusviðs Rf, nemur hækkunin að meðaltali um 3% og stafar einkum af hækkun vísitölu.