Okkar rannsóknir, allra hagur

2005

Skemmtilegar nýjungar á Fræðsluvef Rf - 21.12.2005

Á vef Rf er að finna s.k. Fræðsluvef Rf, Á vísan að róa, þar sem smátt og smátt hefur verið safnað margvíslegum fróðleik sem tengist fisk, sjávarútvegi og fiskvinnslu. Markmiðið er að hafa efnið aðgengilegt og fræðandi og tvær nýjungar á Fræðsluvefnum eru ágæt dæmi um þessa viðleitni.  

Lesa meira
 

Rafrænt fréttabréf Rf kemur út í dag - 12.12.2005

Í dag verður 1. tbl. af rafrænu fréttabréfi Rf sent út, en þar verður m.a. að finna ýmiss konar fréttaefni af vef Rf, tilkynningar o.s.frv. og er áformað að fréttabréfið komi út 1-2 í mánuði. Þeir sem áhuga hafa á að gerast áskrifendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig á póstlista Rf, en það er hægt að gera á forsíðu vefs Rf.
 

Flýgur fiskisagan: Rannsókn Rf á geymslueiginleikum eldisþorsks vekur athygli erlendis - 12.12.2005

Í síðasta mánuði var sagt frá skýrslunni Framtíðarþorskur: geymsluþol, áferð, vöðvabygging og vinnsla eldisþorsks sem nýlega kom út hér á Rf. Niðurstöður skýrslunnar hafa vakið talsverða eftirtekt langt út fyrir landsteinana. Lesa meira
 

Öll Tæknitíðindi Rf komin á vefinn - 8.12.2005

Á árunum 1972 til 1986 gaf Rf út s.k. Tæknitíðindi og var það ein helsta leið stofnunarinnar á þessum árum til að birta og miðla upplýsingum um rannsóknir sínar. Alls komu 165 tbl. út og er þetta efni nú loksins allt aðgengilegt í tölvutæku formi (pdf) hér á vef Rf.

Lesa meira
 

Markaðsfólk á námskeiði hjá Rf - 1.12.2005

Símenntun er af hinu góða og í gær sótti 14 manna hópur sérfræðinga frá Icelandic Group námskeið á Rf til að rifja upp ýmis almenn atriði varðandi gæðamat, meðferð og geymslu á fiski. Fólkið kom frá hinum ýmsu deildum Icelandic samstæðunnar.

Lesa meira
 

Sjávarútvegsráðherra opnar nýja vefsíðu um öryggi sjávarafurða - 29.11.2005

Í morgun opnaði Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, nýja vefsíðu á Rf þar sem safnað hefur verið saman upplýsingum um efnainnihald sjávarafurða á Norðurlöndum, bæði óæskileg efni og einnig næringarefni.

Lesa meira
 

Rf tekur þátt í verkefni um velferð eldisfiska - 23.11.2005

Rf tekur þátt í fjölþjóðlegu verkefni sem nefnist Welfare of Fish in European Aquaculture og fjallar um velferð fiska í eldi. Verkefnið er s.k. COST-verkefni, sem er stytting úr European Cooperation in the field of Scientific and Technical Research og er almennur rammi um Evrópusamstarf á sviði vísinda- og tæknirannsókna.

Lesa meira

 

Eldisþorskur heldur ferskleikaeinkennum lengur en villtur þorskur - 14.11.2005

Nýlega kom út á Rf verkefnisskýrslan Framtíðarþorskur: geymsluþol, áferð, vöðvabygging og vinnsla eldisþorsks og er hún framhald skýrslunnar Framtíðarþorskur: gæðamat á eldisþorski, sem kom út haustið 2004. Í nýju skýrslunni birtast m.a. niðurstöður rannsókna á geymslueiginleikum og geymsluþoli flaka af aleldisþorski í samanburði við flök af villtum þorski. Á meðal þess sem í ljós kom var að lítill munur var á endanlegu geymsluþoli eldisþorsks og villts þorsks en flök af eldisþorski héldu þó ferskleikabragðinu marktækt lengur inn í geymslutímann.

Lesa meira

 

RF-hitun: Nýstárleg tækni notuð til að hita fisk - 7.11.2005

Nýlega komu út á Rf tvær skýrslur með niðurstöðum rannsóknarverkefnis þar sem kannað var hvort nota mætti s.k. Radio-Frequency Heating Technology til að hita matvæli í því skyni að eyða öllum hættulegum örverum og auka þar með geymsluþolið.

Lesa meira
 

Þorskurinn gabbaður á Vestfjörðum! - 3.11.2005

Fyrir rúmu ári var rannsóknastofa Rf á Ísafirði formlega opnuð og við það tækifæri sagði Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Rf m.a. að í starfi rannsóknarstofunnar á Ísafirði yrði einkum lögð áhersla á rannsóknir og þróun á sviði fiskeldis. Fljótlega var svo sagt frá því að Rf væri komið í samstarf við fyrirtæki á Vestfjörðum og erlenda vísindamenn um rannsóknir á þorskeldi í sjókvíum. Að því er fram kemur á vef Bæjarins besta í dag fer nú að draga til tíðinda í þessu samstarfi.

Lesa meira
 

Íslenskur fiskiðnaður og Rf í sænskum fókus - 2.11.2005

Í nýjasta tbl. sænska tímaritsins Livsmedel i Fokus, sem er fagtímarit sem fjallar um flest það sem viðkemur matvælaiðnaði, er grein um efnahagsuppganginn á Íslandi, sem Svíar velta nú nokkuð vöngum yfir. Greininni fylgir einnig umfjöllun um Rf og viðtal er við þær Sjöfn Sigurgísladóttur, forstjóra, og Evu Yngvadóttur, efnaverkfræðing á Rf.

Lesa meira
 

Er kraftur í íslenskum sæbjúgum? - 28.10.2005

Þessari spurningu varpaði Margrét Geirsdóttir, matvælafræðingur, fram á Haustfundi Rf nýlega og svaraði henni sjálf, JÁ!. Talið er að í sæbjúgum sé að finna eftirsótt og dýrmæt lífvirk efni, sem hægt er að nota í fæðubótarefni og markfæði. Nýlega kom út skýrsla á Rf sem fjallar um rannsóknir á nýtingu lífvirkra efna úr sæbjúgum.

Lesa meira

 

Verkefni frá Rf í Rannísblaðinu - 25.10.2005

Fyrir nokkrum dögum kom Rannísblaðið út og var því dreift með Morgunblaðinu líkt og gert hefur verið s.l. tvö ár. Í blaðinu er fjallað um rannsókna- og vísindastarf á Íslandi, starfsemi rannsókna- og menntastofnanna kynnt o. fl.  Fjallað er um tvö verkefni sem unnið er að á Rf í Rannísblaðinu að þessu sinni.

Lesa meira
 

Tilkynning um lokun í dag!!! - 24.10.2005

Vegna baráttufundar kvenna mun skiptiborð og afgreiðsla Rf loka kl. 14:08 í dag, mánudag - Viðskiptavinum er bent á að bein símanúmer starfsfólks stofnunarinnar er að finna hér á síðunni til hægri (Starfsfólk).    
 

Árlegri úttekt á þjónustusviði Rf lokið - 21.10.2005

Árlegri úttekt SWEDAC (sænsku löggildingarstofnunarinnar) á gæðakerfi þjónustusviðs Rf er lokið. Útibú Rf á Neskaupstað var heimsótt s.l. föstudag en efna-og örverustofa í Reykjavík var tekin út í gær. Lesa meira
 

Vísindaráðherra Indlands heimsækir Rf - 20.10.2005

Kabil Sibal, vísindaráðherra Indlands, heimsótti Sjávarútvegshúsið í morgun ásamt fríðu föruneyti og skoðaði m.a. húsakynni Rf í fylgd Sjafnar Sigurgísladóttur, forstjóra Rf. Ráðherrann er hér á landi í boði Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra.

Lesa meira
 

Alþjóðleg neytendakönnun á fiski: Mismunandi bragðlaukar eftir löndum - 13.10.2005

Fyrr á þessu ári fór fram viðamikil alþjóðleg neytendakönnun á fiskneyslu á Íslandi, í Danmörku, Hollandi og á Írlandi. Rf sá um framkvæmd könnunarinnar hér á landi og er nú verið að vinna úr þeim gögnum sem söfnuðust. Í nýlegri frétt á heimasíðu SEAFOODplus - verkefnisins er greint frá fyrstu niðurstöðum. Lesa meira
 

Loðnulýsi í salatsósuna - 11.10.2005

Að undanförnu hefur Margrét Bragadóttir matvælafræðingur hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins unnið að því að kanna mögulega notkun á loðnulýsi til manneldis. Verkefnið var fjármagnað af AVS og Rf. Margrét kynnti niðurstöður sínar nýverið á ráðstefnu WEFTA ( West European Fish Technologists Assosiation) í Antwerpen í Belgíu. Lesa meira
 

Fyrirlestur í doktorsverkefni um vinnsluspá fyrir þorsk - 4.10.2005

Fimmtudaginn 6. okt. n.k. heldur Sveinn Margeirsson fyrirlestur sem er hluti af doktorsverkefni hans sem unnið er við véla- og iðnaðarverkfræðiskor verkfræðideildar Háskóla Íslands, en það er unnið í samvinnu við Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, þar sem hann hefur starfsaðstöðu. Fyrirlesturinn hefst kl. 16:45 í stofu 157 í VR-II við HjarðarhagaVerkfræðideildar Háskóla Íslands, Hjarðarhaga

Lesa meira
 

Breyttur opnunartími á Rf - 30.9.2005

Frá byrjun október verður afgreiðsla Rf opin frá kl. 8:15 - 16:00
 


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica