janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
Á vef Rf er að finna s.k. Fræðsluvef Rf, Á vísan að róa, þar sem smátt og smátt hefur verið safnað margvíslegum fróðleik sem tengist fisk, sjávarútvegi og fiskvinnslu. Markmiðið er að hafa efnið aðgengilegt og fræðandi og tvær nýjungar á Fræðsluvefnum eru ágæt dæmi um þessa viðleitni.
Lesa meira
Á árunum 1972 til 1986 gaf Rf út s.k. Tæknitíðindi og var það ein helsta leið stofnunarinnar á þessum árum til að birta og miðla upplýsingum um rannsóknir sínar. Alls komu 165 tbl. út og er þetta efni nú loksins allt aðgengilegt í tölvutæku formi (pdf) hér á vef Rf.
Lesa meiraSímenntun er af hinu góða og í gær sótti 14 manna hópur sérfræðinga frá Icelandic Group námskeið á Rf til að rifja upp ýmis almenn atriði varðandi gæðamat, meðferð og geymslu á fiski. Fólkið kom frá hinum ýmsu deildum Icelandic samstæðunnar.
Lesa meira
Í morgun opnaði Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, nýja vefsíðu á Rf þar sem safnað hefur verið saman upplýsingum um efnainnihald sjávarafurða á Norðurlöndum, bæði óæskileg efni og einnig næringarefni.
Lesa meira
Rf tekur þátt í fjölþjóðlegu verkefni sem nefnist Welfare of Fish in European Aquaculture og fjallar um velferð fiska í eldi. Verkefnið er s.k. COST-verkefni, sem er stytting úr European Cooperation in the field of Scientific and Technical Research og er almennur rammi um Evrópusamstarf á sviði vísinda- og tæknirannsókna.
Nýlega kom út á Rf verkefnisskýrslan Framtíðarþorskur: geymsluþol, áferð, vöðvabygging og vinnsla eldisþorsks og er hún framhald skýrslunnar Framtíðarþorskur: gæðamat á eldisþorski, sem kom út haustið 2004. Í nýju skýrslunni birtast m.a. niðurstöður rannsókna á geymslueiginleikum og geymsluþoli flaka af aleldisþorski í samanburði við flök af villtum þorski. Á meðal þess sem í ljós kom var að lítill munur var á endanlegu geymsluþoli eldisþorsks og villts þorsks en flök af eldisþorski héldu þó ferskleikabragðinu marktækt lengur inn í geymslutímann.
Nýlega komu út á Rf tvær skýrslur með niðurstöðum rannsóknarverkefnis þar sem kannað var hvort nota mætti s.k. Radio-Frequency Heating Technology til að hita matvæli í því skyni að eyða öllum hættulegum örverum og auka þar með geymsluþolið.
Lesa meira
Fyrir rúmu ári var rannsóknastofa Rf á Ísafirði formlega opnuð og við það tækifæri sagði Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Rf m.a. að í starfi rannsóknarstofunnar á Ísafirði yrði einkum lögð áhersla á rannsóknir og þróun á sviði fiskeldis. Fljótlega var svo sagt frá því að Rf væri komið í samstarf við fyrirtæki á Vestfjörðum og erlenda vísindamenn um rannsóknir á þorskeldi í sjókvíum. Að því er fram kemur á vef Bæjarins besta í dag fer nú að draga til tíðinda í þessu samstarfi.
Lesa meira
Í nýjasta tbl. sænska tímaritsins Livsmedel i Fokus, sem er fagtímarit sem fjallar um flest það sem viðkemur matvælaiðnaði, er grein um efnahagsuppganginn á Íslandi, sem Svíar velta nú nokkuð vöngum yfir. Greininni fylgir einnig umfjöllun um Rf og viðtal er við þær Sjöfn Sigurgísladóttur, forstjóra, og Evu Yngvadóttur, efnaverkfræðing á Rf.
Lesa meira
Fyrir nokkrum dögum kom Rannísblaðið út og var því dreift með Morgunblaðinu líkt og gert hefur verið s.l. tvö ár. Í blaðinu er fjallað um rannsókna- og vísindastarf á Íslandi, starfsemi rannsókna- og menntastofnanna kynnt o. fl. Fjallað er um tvö verkefni sem unnið er að á Rf í Rannísblaðinu að þessu sinni.
Lesa meira
Kabil Sibal, vísindaráðherra Indlands, heimsótti Sjávarútvegshúsið í morgun ásamt fríðu föruneyti og skoðaði m.a. húsakynni Rf í fylgd Sjafnar Sigurgísladóttur, forstjóra Rf. Ráðherrann er hér á landi í boði Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra.
Lesa meira
Fimmtudaginn 6. okt. n.k. heldur Sveinn Margeirsson fyrirlestur sem er hluti af doktorsverkefni hans sem unnið er við véla- og iðnaðarverkfræðiskor verkfræðideildar Háskóla Íslands, en það er unnið í samvinnu við Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, þar sem hann hefur starfsaðstöðu. Fyrirlesturinn hefst kl. 16:45 í stofu 157 í VR-II við HjarðarhagaVerkfræðideildar Háskóla Íslands, Hjarðarhaga
Nýlega lauk þriggja mánaða forkönnun á “Notkun lífvirkra efna í lúðueldi”. Verkefnið var styrkt af Rf, HA, Fiskey ehf., Primex og Nýsköpunarsjóði námsmanna og unnið í sumarvinnu af Rut Hermannsdóttur, nemanda við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri.
Lesa meira
Á föstudag fer fram doktorsvörn við raunvísindadeild Háskóla Íslands, en þá ver Guðrún Ólafsdóttir, matvælafræðingur á Rf, doktorsritgerð sína Volatile compounds as quality indicators in chilled fish: Evaluation of microbial metabolites by an electronic nose, Rokgjörn efni sem gæðavísar í kældum fiski: Mat á niðurbrotsefnum örvera með rafnefi.
Lesa meira
Sjávarútvegssýningin 2005 verður haldin í Smáranum í Kópavogi 7.-10. september n.k. en sýningin er haldin hér á landi þriðja hvert ár. Rf mun taka þátt í sýningunni að þessu sinni og verður með á sameiginlegum sýningarbás Sjávarútvegsráðuneytisins, Hafrannsóknastofnunar og Fiskistofu.
Lesa meiraNýlega kom á Rf skýrsla þar sem birtar eru niðurstöður árlegs vöktunarverkefnis á vegum Umhverfisráðuneytisins fyrir árin 2003 og 2004. Markmið með þessari vöktun er að uppfylla skuldbindingar Íslands varðandi Oslóar- og Parísarsamninginn (OSPAR), auk AMAP (Artic Monitoring Assessment Program).
Dagana 14-15. okt. 2004 stóð Norræna ráðherranefndin fyrir ráðstefnunni Safe and wholesome food í Reykjavík. Nýlega kom út veglegt ráðstefnurit sem ber sama titil og ráðstefnan og þar kemur starfsfólk Rf við sögu, tveir starfsmenn Rf eru á meðal þeirra sem eiga efni í ráðstefnuritinu.
Lesa meira
Nýr starfsmaður, Ásta Margrét Ásmundsdóttir, hóf störf á RF 1. júní síðastliðinn. Hún mun starfa við uppbyggingu nýs rannsóknarsviðs innan RF er snýr að þrávirkum efnum í sjávarfangi sem verður staðsett á Akureyri.
Lesa meiraDagana 25. og 26. maí 2005 var haldin ráðstefna um skynmat í Madríd á Spáni. Samtökin European Sensory Network sem Rf er aðili að, skipulagði ráðstefnuna í samvinnu við Food Technology Insitute, sem er spænsk matvælastofnun í eigu þarlendra matvælafyrirtækja.
Lesa meira
Nýlokið er vinnu í verkefninu Aðdráttarafl beitu, en markmið þess var að finna leiðir til að auka útstreymi niðurbrotsefna frá beitu sem notuð er til línuveiða, í þeim tilgangi að laða fisk enn frekar að beitunni. Niðurstöður þóttu lofa það góðu að ákveðið hefur verið að halda rannsóknum á þessu sviði áfram í nýju verkefni.
Lesa meira
Laugardaginn 30.apríl var opið hús í fræðasetrinu Búlandi í Neskaupstað, en það hýsir starfsemi Verkmenntaskóla Austurlands, Rannsóknastofnunnar fiskiðnaðarins, Náttúrustofu Austurlands og Sorpsamlag Mið-Austurlands. Tilgangurinn var að kynna þá starfsemi fram fer í Búlandi.
Lesa meira
Óvenju litríkur hópur heimsótti Rf í morgun, þegar 12 manna hópur frá 11 þjóðlöndum heimsótti stofnunina. Hópurinn var á vegum CEDEFOP, sem er Miðstöð um þróun starfsmenntunar í löndum ESB og er fólkið statt hér á landi til að kynna sér hvernig Íslendingar standa að starfsmennun, í þessu tilfelli, í matvælaiðnaði.
Lesa meiraErindi Margrétar Bragadóttur, sem flytur miðvikudagserindi Rf 26. apríl, fjallar um rannsóknir sem gerðar hafa verið á Rf, þar sem bornar voru saman mismunandi aðferðir til þess að meta stöðugleika og þránun í fiskimjöli, með það að markmiði að finna einfalda aðferð sem hægt væri að nota við gæðaeftirlit á fiskimjöli.
Lesa meira
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins boðar til almenns fundar í Ásgarði, Vestmannaeyjum, þriðjudaginn 5. apríl nk. kl. 15.00-16.30, um leiðir til að auka virði sjávarfangs.
Lesa meira
Fáir efast lengur um heilnæmi fisks, en hingað til hefur athyglin að mestu beinst að lýsi og jákvæðum áhrifum fjölómettaðra fitusýra, sem er að finna í lýsi og holdi margra feitra fisktegunda. Í Morgunblaðinu í dag birtist athyglisverð grein eftir Margréti Geirsdóttur, matvælafræðing á Rf, þar sem hún fjallar um rannsóknir á því hvort vinna megi lífvirk peptíð úr sjávarfangi, en segja má að lífvirk peptíð sé hin hliðin á heilnæmi fisks.
Lesa meiraTaru Uusinoka heitir nýr rannsóknarmaður á Umhverfis- og gæðasviði Rf. Taru er Finni og kom hingað til lands fyrir tveimur árum til að vinna á Orkustofnun að lokaverkefni sínu í umhverfisstjórnun .
Lesa meiraÍ morgun hófst alþjóðleg neytendakönnun á fiskneyslu og fer hún fram í Danmörku, Hollandi og á Írlandi, auk Íslands. Rf sér um framkvæmd könnunarinnar hér á landi, en vonast er til að hún muni gefa góðar upplýsingar um hvernig best er að standa að bættum gæðum sjávarfangs fyrir neytendur.
Lesa meira
Á morgun, laugardag, mun Hlynur Þór Björnsson útskrifast með meistarapróf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Meistaraverkefni hans nefnist “Geymsla og flutningur. Lágmörkun hríms og rekjanleiki” og var það m.a. styrkt af Rf.
Lesa meira
Rf er aðili að viðamikilli, alþjóðlegri rannsókn á fiskneyslu, sem gerð verður samtímis í fjórum löndum á næstu vikum. Auk Íslands fer könnunin samtímis fram í Danmörku, Hollandi og á Írlandi. Rf óskar eftir fólki til að taka þátt í könnuninni hér á landi.
Lesa meiraHélène Lauzon mun flutja erindi um Helstu rannsóknir á notkun loftskiptra umbúða fyrir fiskafurðir og framtíðarmöguleikar varðandi pökkun matvæla.
Lesa meira