Okkar rannsóknir, allra hagur

Fréttir

Breyttur opnunartími á Rf - 30.9.2005

Frá byrjun október verður afgreiðsla Rf opin frá kl. 8:15 - 16:00
 
Lúðulirfur

Lífvirk efni á fyrstu stigum lúðueldis - 29.9.2005

Nýlega lauk þriggja mánaða forkönnun á “Notkun lífvirkra efna í lúðueldi”. Verkefnið var styrkt af Rf, HA, Fiskey ehf., Primex og Nýsköpunarsjóði námsmanna og unnið í sumarvinnu af Rut Hermannsdóttur, nemanda við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri.

Lesa meira
 
Einar K. Guðfinnsson í heimsókn á Rf

Nýr ráðherra í heimsókn á Rf - 28.9.2005

Nýr ráðherra, Einar Kristinn Guðfinnsson, tók til starfa í sjávarútvegsráðuneytinu í dag. Á meðal þess sem ráðherrann tók sér fyrir hendur á þessum fyrsta formlega vinnudegi sínum í nýju embætti var að heimsækja Rf Lesa meira
 
Sjávarútvegsráðherra ávarpar Haustfund Rf

Fjölmenni á Haustfundi Rf 2005 - 26.9.2005

Um 100 manns sóttu Haustfund Rf sem haldinn var á Grand hótel þann 23. sept. sl. Fundurinn var að nokkru leyti sögulegur þar sem hann var haldinn á 40 ára starfsafmæli Rf og ávarp Árna M. Mathiesen í byrjun fundarins var jafnframt eitt síðasta opinbera embættisverk hans sem sjávarútvegsráðherra. Lesa meira
 

Haustfundur Rf föstudaginn 23. september - 16.9.2005

Haustfundur Rf verður haldinn á Grand hótel Reykjavík föstudaginn 23. september og verður umföllunarefni fundarins einkum um heilnæmi fisks. Þetta er þriðja árið í röð sem Rf heldur slíkan fund og sem fyrr eru allir velkominr á meðan húsrúm leyfir, en fólki er þó vinsamlega beðið um að skrá sig fyrirfram. Lesa meira
 
Rf á Sjávarútvegssýningunni 2005

Góð aðsókn að Sjávarútvegssýningunni - 8.9.2005

Sjávarútvegssýningin í Kópavogi, sem sett var í gær fór rólega af stað en strax eftir hádegi opnunardaginn fór aðsóknin vaxandi og hefur verið góð síðan. Rf er með á sameiginlegum sýningarbás Sjávarútvegsráuneytisins, Hafrannsóknastofnunar og Fiskistofu. Lesa meira
 

Tvær greinar frá Rf í virtu vísindatímariti. - 2.9.2005

Greinarnar tvær birtust í septemberhefti Journal of Food Science sem nýkomið er út grein. Er Rósa Jónsdóttir, matvælafræðingur á Rf fyrsti höfundur annarar greinarinnr, en einn af höfundum hinnar er Kínverjinn Zeng, en hann stundaði nám við Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna árin 2003 og 2004.
Lesa meira
 


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica