Okkar rannsóknir, allra hagur

Fréttir

Gaspökkun saltfisks í tilraunaeldhúsi Rf

Saltfiskur tilbúinn í pottinn og á pönnuna - 30.11.2006

Nýlega kom út skýrsla á Rf úr verkefninu Þíddur saltfiskur í neytendapakkningum, þar sem m.a. voru rannsakaðir þættir eins og hvernig hægt væri að hámarka geymsluþol útvatnaðra þorskflaka.

Lesa meira

 
Eyjólfur Reynisson

Fyrirtæki í Ástralíu notar rannsóknir frá Rf til að auglýsa vörur sínar - 23.11.2006

Fyrirtæki í Ástralíu hefur stuðst við niðurstöður úr vísindagrein frá Rf til að auglýsa tæki sem það framleiðir. Aðalhöfundur greinarinnar, sem birtist nýlega á vísindaritinu Journal of Microbiological Methods er Eyjólfur Reynisson, líffræðingur á Rannsóknasviði Rf.

Lesa meira

 
Eldisþorskur í sjókví

Minni notkun próteins í fóðri - aukin arðsemi í þorskeldi? - 17.11.2006

Nýlega lauk verkefninu Próteinþörf þorsks þar sem leitað var leiða til að draga úr kostnaði við þorskeldi og gera þessa ungu atvinnugrein þ.a.l. arðbærari. Fóðurkostnaður er 40-60% af heildarframleiðslukostnaði í eldinu og því beindist athyglin að því hvort og hvernig hægt væri að minnka hann. Í nýrri Rf skýrslu er greint frá niðurstöðum þessarar rannsóknar.

Lesa meira
 
Afhending McFee verðlaunanna 2006

Vísindamaður á Rf hlaut heiðursverðlaun á alþjóðlegri ráðstefnu - 7.11.2006

Dr. Guðrún Ólafsdóttir, matvælafræðingur á Rf, hlaut á dögunum heiðursverðlaun sem kennd eru við Earl P. McFee. Verðlaunin voru afhent á hátíðardagskrá í tengslum við ráðstefnuna TAFT 2006, sem fram fór í Quebec City í Kanada dagana 29. okt. til 1. nóv.

Lesa meira

 
Á leið heim af fiskmarkaði á Sri lanka

Unnið að gæðamálum fiskihafna á Sri lanka - 1.11.2006

Eins og greint var frá hér á vefnum fyrr á árinu, fóru tveir starfsmenn Rf til Sri Lanka í maí s.l. á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) til að gera úttekt á gæðamálum fiskihafna þar í landi og var tilgangurinn að útbúa námskeið til að koma þessum málum í betra horf. Í fréttabréfi ÞÞSÍ er greint frá því að nýlega hafi fyrsta námskeiðið verið haldið þar ytra.

Lesa meira

 

Erindi Sjafnar á Málþingi í morgun - 31.10.2006

Í morgun var haldið málþing Stofnunar stjórnsýslufræða við H.Í. og Félags forstöðumanna ríkisstofnana þar sem rætt var um kosti og galla hlutafélagaformsins í opinberri starfsemi og það borið saman við hefðbundið form opinbers rekstrar. Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Rf og verðandi forstjóri Matís ohf var á meðal þeirra sem fluttu erindi á málþinginu.

Lesa meira
 
Úttekt SWEDAC 24. október 2006

Þjónustusvið Rf fær góða umsögn SWEDAC - 25.10.2006

Í gær fór fram árleg úttekt sænsku löggildingarstofunnar SWEDAC vegna faggildingar á þjónustumælingum á Rf. Þetta var í 10 skiptið sem slík úttekt er gerð á Rf og jafnframt í síðasta sinn því Rf sameinast tveimur öðrum stofnunum í Matís ohf um næstu áramót.

Lesa meira
 
New York Times: lógó

Fjallað um kosti fiskneyslu í leiðara New York Times - 20.10.2006

Í leiðara bandaríska stórblaðsins NYT í gær var fjallað um mat tveggja virtra stofnanna þar í landi um kosti og galla þess að borða fisk. Er skemmst frá því að segja að báðar stofnanir komast að því að kostirnir séu margfaldir á við hugsanlega áhættu. Lesa meira
 
Þorsksýni tekin úr ofni

Neytendakönnun á Rf byrjar vel - 19.10.2006

Eins og glöggir gestir Rf - síðunnar hafa væntanlega tekið eftir var nýlega óskað eftir fólki til að taka þátt í neytendakönnunum á þorski hér á Rf. Fyrri hluti könnunarinnar hófst í dag og munu alls um 100 manns taka þátt í henni í dag. Lesa meira
 
Þvottabúnaðurinn á Rf

Lækkun þrifakostnaðar í fiskvinnslu - 17.10.2006

Nýlega lauk verkefni hér á Rf þar sem kannað var hvort mögulegt sé að nota minna af þvottaefnum við venjubundin þrif á fiskvinnslubúnaði, en með sama árangri. Lækkun á styrk þvottaefna getur þýtt fjárhagslega hagræðingu fyrir fiskvinnslufyrirtækin og ekki síst umhverfisvænni vinnubrögð. Lesa meira
 
Forsíða Rf skýrslu

Haustvertíð á Rf - margar nýjar skýrslur komnar út - 11.10.2006

Segja má að hálfgerð haustvertíð hafi verið í útgáfu skýrslna á Rf, en á síðustu tveimur vikum hefur verið lokið við níu Rf skýrslur, sem er óvenju mikið á svo stuttum tíma. Flestar þessara skýrslna eru opnar og aðgengilegar á vef Rf.

Lesa meira

 
Úr tilraunaeldhúsi Rf

Rf óskar eftir þátttakendum í neytendakönnun á þorski - 7.10.2006

Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins (Rf) er að leita að fólki til að taka þátt í neytendakönnunum á þorski. Kannanirnar verða gerðar um miðjan október og standa fram í nóvember næstkomandi.

Lesa meira

 
Sjofn_Sigurgisladottir

Fréttatilkynning frá Matís ohf. - 2.10.2006

Sjöfn Sigurgísladóttir hefur verið ráðin forstjóri Matís ohf. en það er hið nýja fyrirtæki sem verður til við sameiningu Rf, RUST og Matvælarannsókna á Keldnaholti. Nýja fyrirtækið sendi í morgun frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu: Lesa meira
 
Rannsókna- og þróunarsetrið Akureyri

Fréttabréf frá Akureyri - 28.9.2006

Nýlega bættust fjórir nemendur í rannsóknatengdu meistaranámi við fiskeldishóp Rf á Akureyri og stunda þau öll nám við Viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri. Þetta eru þau Rut Hermannsdóttir, Bjarni Jónasson og G.Stella Árnadóttir, sem öll luku BS prófi frá Auðlindadeild Háskólans á Akureyri s.l. vor, og Eyrún Gígja Káradóttir sem lauk BS prófi frá Háskóla Íslands s.l. vor.

Lesa meira
 

Meistaravörn 3. október - 27.9.2006

Þriðjudaginn 3. október n.k. mun Runólfur Guðmundsson verja meistaraverkefni sitt, ,,Ákvarðanataka og bestun í sjávarútvegi”.  Vörnin fer fram í húsnæði Verkfræðideildar Háskóla Íslands (VRII), Hjarðarhaga 6, stofu V-158 og hefst kl. 13.45. 

Lesa meira
 
Þátttakendur á Chill-on fundi í Rvík 22 sept. 2006

Fundur í Chill-on verkefninu - 26.9.2006

Dagana 21-22 september s.l. var haldinn á Rf fundur í Evrópuverkefninu Chill-on, sem er stórt samþætt verkefni sem hófst nú í sumar. Verkefnið er styrkt af ESB og nemur styrkurinn alls um 9,8 milljónir Evra og er umfang þess alls um 15,1 m. Evra eða um 1,4 miljarðar íslenskra króna.

Lesa meira

 
Verkefnisfundur Seabac í Reykjavík

Fundur á Rf í Seabac - hluta SEAFOODplus - 25.9.2006

Í síðustu viku var haldinn tveggja daga fundur hér á Rf í einum hluta SEAFOODplus klasaverkefnisins. Um er að ræða verkefnið Seabac, sem er eitt af fjórum flokkum sem heyra undir þriðju stoð (3.rd pillar) Sfplus.

Lesa meira
 
Neytendakönnun á Rf

Viltu smakka fisk? - 22.9.2006

Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins (Rf) er að leita að fólki til að taka þátt í neytendakönnunum á fiski. Kannanirnar verða gerðar um miðjan október og standa fram í nóvember næstkomandi. Lesa meira
 

Nýir starfsmenn á Rf - 21.9.2006

Tveir starfsmenn tóku til starfa á Rf fyrr í þessum mánuði, annar í Reykjavík en hinn á Höfn í Hornafirði. Björn Þorgilsson mun starfa á Umhverfis- og gæðasviði Rannsóknarsviðs Rf og Guðmundur Heiðar Gunnarsson á Höfn í Hornafirði. Lesa meira
 
Vísindavaka Rannís

Rf tekur þátt í Vísindavöku Rannís 2006 - 20.9.2006

Föstudaginn 22. sept. stendur Rannís fyrir s.k. Vísindavöku - – stefnumóti við vísindamenn í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu. Rf verður með og ætlar að kynna hvernig hægt er að nota skynfærin í vísindum. Lesa meira
 

Matís ohf stofnað - 14.9.2006

Í dag var tilkynnt um stofnun nýs hlutafélags, Matís ohf, en í því sameinast þrjár ríkisstofnanir, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Matvælarannsóknir Keldnaholti (MATRA) og loks Rannsóknastofa Umhverfisstofnunar. Frá þessu er greint á vef sjávarútvegsráðuneytisins. Lesa meira
 
Nýtt tæki á Rf: Ernst Schmeisser og tæknimaður

Ný tæki á Rf skapa tækifæri til rannsókna á nýjum sviðum - 14.9.2006

Rf hefur fest kaup á tækjabúnaði sem vonast er til að geti opnað fyrir möguleika á nýjum rannsóknarverkefnum, bæði innlendum og erlendum. Stefnt er að því að byggja upp nýtt rannsóknarsvið á Rf í kringum tækjabúnaðinn og hefur erlendur sérfræðingur verið ráðinn til að leiða það starf. Lesa meira
 
fiskur á pönnu

Fiskirí: Glæsilegt framtak til að reyna að auka fiskneyslu - 13.9.2006

Um næstu helgi, 15. - 17. sept. verður slegið upp mikilli fiskiveislu á um 80 veitingastöðum út um allt land, og er ætlunin að hvetja bæði unga og aldna til að fara út að snæða sjávarafurðir meðan á hátíðinni stendur. Um er að ræða sérstakt átaksverkefni á sjávarútvegsráðuneytisins í samstarfi við Klúbb matreiðslumeistara á Íslandi. Óhætt er að hvetja landsmenn til að skella sér í fjörið!

Lesa meira
 
Forsíða Seafood research from fish to dish

Nýkomið út rit um rannsóknir á sjávarfangi - 8.9.2006

Nýlega kom út bókin Seafood research from fish to dish- Qality, safety and processing of wild and farmed fish, sem hefur að geyma fjölda samantekta (abstrakta) frá 35. fundi WEFTA-samtakanna sem fram fór í Antwerpen í Belgíu dagana 19.-22. september 2005. Starfsfólk Rf kemur nokkuð við sögu í þessari stóru bók.

Lesa meira
 
Sveinn Margeirsson

Grein frá Rf til birtingar í virtu vísindatímariti - 7.9.2006

Í gær birtist á vefnum Sciencedirect.com útdráttur greinar frá Rf sem birtast mun bráðlega í hinu virta vísindatímariti Journal of Food Engineering. Greinin nefnist Influencing factors on yield, gaping, bruises and nematodes in cod (Gadus morhua) fillets.  

Lesa meira
 
Vædderen

Kafað í hafið í leit að nýjum lyfjum? - 30.8.2006

Margir Danir fylgjast nú af áhuga með leiðangri danska varðskipsins Vædderen, sem Íslendingar þekkja vel, enda hefur skipið haft reglulega viðkomu á Íslandi á undanförnum árum á leið sinni til og frá Grænlandi. Skipið er nú í átta mánaða vísindaleiðangri, sem nefnist Galatha 3 verkefnið, þar sem siglt er umhverfis jörðina og ýmsar rannsóknir gerðar.

Lesa meira

 
Prokaria

Starfsfólk Rf í heimsókn í Prokaria - 25.8.2006

Fyrirtækið Prokaria bauð starfsmönnum Rf að heimsækja fyrirtækið í dag til að kynna fyrir þeim starfsemina sem fram fer að Gylfaflöt í Grafarvogi, en eins og áður hefur komið fram hér á síðunni mun sérstakt fyrirtæki í eigu Rf fljótlega taka yfir erfðagreininga- og ensímsvið Prokaria.

Lesa meira

 
Judith Reichert

Góður gestur kveður Rf - 17.8.2006

Rf hefur tekið virkan þátt í menntun nemenda á háskólastigi hér á landi um all langt skeið, t.d. fer B.S. nám í matvælafræði við H.Í. að hluta til fram á Rf og fastir kennarar H.Í. í matvælavinnslu og verkfræði eru með aðstöðu á Rf. Mörg verkefni í framhaldsnámi nemenda í matvælafræði, iðnaðarverkfræði og sjávarútvegsfræðum eru einnig unnin á og styrkt af Rf. Þá hafa á undanförnum árum nokkrir ungir, erlendir vísindamenn einnig dvalið tímabundið við starfsþjálfun hér á Rf. Einn slíkur, Judith Reichert frá Þýskalandi, lýkur tæplega hálf árs dvöl sinni á Rf í dag.

Lesa meira

 
Ungt fólk að snæðingi

Verkefni á Rf kynnt á Norrænum Næringarráðgjafadögum - 14.8.2006

Dagana 9. - 12. ágúst var haldin norræn ráðstefna hér á landi á vegum Nordisk Dietistförening, en það eru samtök norrænna næringarfræðinga/ráðgjafa. Á meðal fyrirlesara á ráðstefnunni var Emilía Martinsdóttir, deildarstjóri á Rf.   Lesa meira
 
María Guðjónsdóttir í Nottingham

Ungur vísindamaður frá Rf vakti athygli í Nottingham - 24.7.2006

Dagana 16.-19. júlí var ráðstefnan The 8th International Conference on The Application of Magnetic Resonance in Food Science haldin í Nottingham í Englandi. Ráðstefna sem þessi er haldin á tveggja ára fresti og á þeim er fjallað um helstu nýjungar í notkun kjarnspunatækni (Nuclear Magnetic Resonance) í matvælarannsóknum hverju sinni. Ungri vísindakonu á Rf, Maríu Guðjónsdóttur, var nokkuð óvænt boðið að halda erindi á ráðstefnunni að þessu sinni.

Lesa meira

 
Forsíða Ársskýrslu Rf 2005

Ársskýrsla Rf fyrir árið 2005 komin út - 12.7.2006

Ársskýrsla Rf 2005, þar sem það helsta úr starfsemi Rf á árinu 2005 er tíundað, er nú komin út og er aðgengileg hér á vefnum sem pdf-skjal. Skjalið er tæplega 6MB að stærð, enda er skýrslan all mikil að vöxtum, tæplega 50 bls.

Lesa meira
 
Sri Lanka: Fiskihöfnin í Beruwella

Rf aðstoðar við uppbyggingu á Sri Lanka - 5.7.2006

Nýlega fóru tveir starfsmenn Rf til Sri Lanka á vegum Þróunarsamvinnustofnunar (ICEIDA), Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna (UNU-FTP) og National Aquatic Resources Research and Development Agency (NARA) á Sri Lanka. Tilgangurinn var að gera úttekt á gæðamálum fiskihafna á Sri Lanka og aðstoða við færa þau mál til betra horfs í tengslum við uppbyggingu eftir náttúruhamfarirnar miklu þ. 26. desember 2004.

Lesa meira

 
Gunnþórunn og Kolbrún

Neytendakönnun á Rf: heppnir vinningshafar dregnir út - 4.7.2006

Könnun á viðhorfi ungs fólks til fiskneyslu hófst þann 1. júní sl og lauk í gær, 3 júlí. Könnunin, sem er liður í umfangsmiklu verkefni sem unnið er að á Rf, náði til ungs fólks á aldrinum 18-45 ára og var þátttökutilboð sent til 3500 manna slembiúrtaks fólks úr þjóðskrá á þessum aldri og viðkomandi boðið að taka þátt í viðhorfskönnun um fiskneyslu. Góð þátttaka var í könnuninni, enda glæsilegir vinningar í boði fyrir heppna þátttakendur.

Lesa meira

 
Jón Gunnar Schram

Nýr starfsmaður Rf á Ísafirði: Jón Gunnar Schram - 3.7.2006

Um mánaðarmótin hóf nýr starfsmaður, Jón Gunnar Schram, störf á Rf. Jón mun starfa á Ísafirði og taka þátt í þeirri uppbyggingu á starfsemi Rf sem þar á sér stað um þessar mundir, sértaklega á sviði fiskeldis.

Lesa meira
 
Fuglar á spegilsléttum sjó

Árlegt vöktunarverkefni: Gott ástand lífríkis í hafinu við Ísland - 28.6.2006

Niðurstöður nýrrar skýrslu úr árlegu vöktunarverkefni, þar sem fylgst er með mengun og ástandi lífríkis sjávar umhverfis Ísland, sýna litlar breytingar frá fyrri árum, t.d. eru lítil merki um að styrkur þungmálma og þrávirkra lífrænna efna færist í vöxt í hafinu umhverfis landið. Þetta má m.a. lesa má úr skýrslunni Monitoring of the Marine Biospheare around Iceland in 2004-2005 sem kom út á Rf í dag.

Lesa meira
 
Björn Þrándur og Sjöfn

Þekktur vísindamaður gengur til liðs við Rf - 23.6.2006

Eins og greint var frá í frétt á vef Rf nýlega í tengslum við fiskeldisráðstefnu á Ísafirði, þá hefur Dr. Björn Þrándur Björnsson, prófessor við háskólann í Gautaborg, verið ráðinn í hlutastarf á Rf. Björn Þrándur er einn helsti sérfræðingur í Evrópu á sviði fiskalífeðlisfræði og og mun hann taka þátt í stefnumótun Rf á þessu sviði.

Lesa meira

 
Sigrún Guðmundsdóttir

Doktorsmenntuðu starfsfólki á Rf fjölgar - 22.6.2006

Í síðustu viku fjölgaði í hópi þeirra starfsmanna Rf sem lokið hafa doktorsprófi, en þá varði Sigrún Guðmundsdóttir, líffræðingur á Rf, doktorsritgerð sína Listeria monocytogenes, from humans, food and food processing plants in Iceland - Molecular typing, adhesion and virulence testing.”

Lesa meira

 
Mynd 21. júní 2006

Rf stofnar fyrirtæki á sviði erfðagreininga og ensímtækni - 21.6.2006

Í morgun sendu Rf og Arkea hf, sem er móðurfélag líftæknifyrirtækisins Prokaria, út sameiginlega fréttatilkynningu þar sem fram kemur að þau hafi undirritað samning um að sérstakt fyrirtæki í eigu Rf muni taka yfir erfðagreininga- og ensímsvið Prokaria.

Lesa meira
 
Eldisþorskur

Þorskeldisrannsóknir komnar á fulla ferð - 16.6.2006

Á Ísafirði er mikill uppgangur í rannsóknum tengdum þorskeldi og hefur verið ákveðið að halda fund um ný og umfangsmikil verkefni sem hlotið hafa styrki að undanförnu. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra mun setja fundinn en hann hefst miðvikudaginn 21. júní nk. kl. 9:30 Lesa meira
 
Hildigunnur Rut Jónsdóttir

Meistaraverkefni um bætta afkomu í lúðueldi lokið - 9.6.2006

Föstudaginn 9.júní 2006 varði Hildigunnur Rut Jónsdóttir rannsóknarverkefni sitt til meistaraprófs í fiskeldisfræðum frá auðlindadeild Háskólans á Akureyri. Verkefni Rutar bar heitið "Notkun bætibaktería til stýringar örveruflóru fyrir og eftir klak lúðulirfa"

Lesa meira

 
Guðrún Ólafsdóttir í Bonn

Stýring á kælikeðjunni til umræðu í Bonn - 2.6.2006

Tveggja daga ráðstefna um stýringu á kælikeðju matvæla var nýlega haldin í Bonn í Þýskalandi og var dr. Guðrúnu Ólafsdóttur, matvælafræðingur á Rf á meðal fyrirlesara. Nýjungar um merkingar og mælingar fyrir viðkvæm matvæli sem segja til um hitastig og tímaálag vöru voru meðal annars kynntar.

Lesa meira

 
Eva Yngvadóttir

Nýtt Evrópuverkefni á Rf: QALIBRA-Heilsuvogin - 2.6.2006

Nýlega var haldinn í Hollandi fyrsti fundur í nýju ESB-verkefni sem heitir á ensku “Quality of Life – Integarted Benefit and Risk Analysis. Web-based tool for assessing food safety and health benefits” skammstafað QALIBRA en hefur fengið nafnið Heilsuvogin á íslensku.

Lesa meira

 
Heimsókn frá Whole Foods Market 30 maí 2006

Hópur frá Whole Foods Market heimsækir Rf - 30.5.2006

Fjórir fulltrúar frá verslunarkeðjunni Whole Foods Market heimsóttu Sjávarútvegshúsið í morgun, til að fræðast um íslenskan fisk, rannsóknir á sjávarafurðum og hvernig Íslendingar stjórna fiskveiðum sínum. Lesa meira
 
Heimsókn frá Marks og Spencer og Coldwater, 24. maí 2006

Markaðs- og tæknimenn frá Marks Spencer og Coldwater í kynningu í Sjávarútvegshúsinu - 24.5.2006

Í vikunni voru fjórir starfsmenn fyrirtækjanna Marks & Spencer og Coldwater í Bretlandi á ferð hér á landi til að kynna sér sjávarútveg, fiskvinnslu, fyrirtæki og rannsóknir er lúta a sjávarafurðum á Íslandi. Fjórmenningarnir voru ánægðir eftir heimsókn í Sjávarútvegshúsið í morgun.

Lesa meira
 
Mayonnaise úr lonðulýsi

Hugvitssamleg notkun loðnulýsis - Grein frá Rf í nýjasta tbl. Ægis - 23.5.2006

Í nýjasta tbl. tímaritsins Ægis er m.a. að finna forvitnilega grein eftir Margréti Bragadóttur, matvælafræðing á Rf, um hugsanlegar leiðir til að nýta loðnulýsi í auknum mæli til manneldis, t.d. í majónes, salatsósur o.fl.

Lesa meira
 
Hjólandi starfsmenn Rf 2006

Mens Sana in Corpore Sano - 19.5.2006

Eins og margir hafa ugglaust tekið eftir þá hefur óvenju mikið verið um hjólreiðafólk á götum og gangstéttum um land allt upp á síðkastið og ólíklegasta fólk hefur sést á ferli. Bæði er nú vorið loksins komið en einnig stóð átakið Hjólað í vinnuna yfir dagana 3. - 16. maí. Rf lét ekki sitt eftir liggja.  Lesa meira
 
Sendinefnd frá Argentínu í heimsókn í Sjávarútvegshúsinu 15. maí

Sendinefnd frá Argentínu í heimsókn í Sjávarútvegshúsinu - 15.5.2006

Í morgun var sendinefnd frá Argentínu í heimsókn í Sjávarútvegshúsinu og kynnti sér starfemi Rf, Hafrannsóknastofnunar og sjávarútvegsráðuneytisins.

Lesa meira
 

Rf auglýsir eftir sérfræðingi á nýju sviði - 12.5.2006

Rf auglýsir eftir sérfræðingi á sviði áhættumats á matvælum. Hlutverk hans verður að taka þátt í rannsóknum á áhrifum fisks á heilsu (risk-benefit analysis of food). Starfið felur m.a. í sér uppbyggingu gagnagrunna og hönnun vefviðmóts. Lesa meira
 
Kvarnir fjarlægðar í rannsóknarskyni

Ráðið í ástand lífríkis með því að skoða eyrun á þorski - 10.5.2006

Við rannsóknir á fiskum geta vísindamenn nýtt sér kvarnir til að aldurs- og tegundagreina hann. Í öllum beinfiskum eru steinar úr kalkefnasamböndum í innra eyra þeirra sem kallast kvarnir. Þær gegna margvíslegu hlutverki, þ.á.m. er heyrnar- og jafnvægisskyn fisksins í sjónum, en hægt er að ráða ýmislegt fleira með því að skoða þær. Í vikunni var verið að fjarlægja kvarnir smáþorsks á Rf, m.a. til að athuga ástand lífríkissins í hafinu umhverfis Ísland.  

Lesa meira

 
Nýtt ker frá Sæplast kynnt í Brussel

Ráðherra afhjúpar nýja tegund af fiskikeri í Brussel - 9.5.2006

Fyrirtækið Sæplast ehf á Dalvík hefur þróað nýtt byltingarkennt fiskiker í samvinnu við Rf, FISK Seafood hf og Háskóla Íslands. Fiskikerið var formlega afhjúpað af sjávarútvegsráðherra, Einari K. Guðfinnssyni á sjávarútvegssýningunni í Brussel í dag. Frá þessu segir á vefsíðu AVS sjóðsins, en hann styrkti einmitt þetta verkefni.

Lesa meira
 
Sjóeldiskvíar Rf á Vestfjörðum

Perlan Vestfirðir 2006 - 5.5.2006

Nú um helgina verður sýningin Perlan Vestfirðir í Perlunni og er aðgangur ókeypis og öllum heimill kl. 11 -17 laugardag og sunnudag. Meira en 100 fyrirtæki og stofnanir á Vestfjörðum taka þátt í sýningunni og er markmið hennar að kynna allt það helsta sem Vestfirðir hafa upp á að bjóða á sviði ferðaþjónustu, atvinnulífs og mannlífs almennt.  Rf er á meðal þeirra sem kynna starfsemi sína á Vestfjörðum.

Lesa meira
 
Seafoodnet logo

Skýrsla um framgang norræns verkefnis um öryggi fiskafurða - 4.5.2006

Árið 2004 var ákveðið að setja á fót upplýsinga- og tengslanet varðandi öryggi sjávarafurða á Norðurlöndum og var markmiðið að auka samræmi í norrænum gögnum um efnainnihald í sjávarfangi. Verkefnið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni (NSK og NEF) og Rf, sem jafnframt leiðir verkefnið. Í vikunni kom út framvinduskýrsla í verkefninu.

Lesa meira

 
Fiskeldiskvíar á Vestfjörðum

Rf auglýsir eftir verkefnastjórum í fiskeldi á Akureyri og Ísafirði - 28.4.2006

Rf auglýsir eftir tveimur verkefnastjórum til starfa á fiskeldisdeild Rf. Annað starfið er á Akureyri en hitt á Ísafirði. Ekki er um sams konar starf að ræða, enda mismunandi áherslur í starfsemi fiskeldisdeildar Rf á áðurnefndum stöðum.

Lesa meira
 
Genesis 35 EL

Frostþurrkun sjávarafurða lofar góðu - 19.4.2006

Út er komin skýrsla á Rf sem ber yfirskriftina Frostþurrkun sjávarfangs: könnun á möguleikum, en þar eru birtar niðurstöður úr þróunarverkefni sem unnið var á síðasta ári á Rf. Markmið þess var að kanna möguleika á framleiðslu og sölu á frostþurrkuðum vörum úr íslensku sjávarfangi .

Lesa meira
 
Saltfiskur

Lengi von á einum: Tvær skýrslur á Rf - 12.4.2006

Nýlega komu út tvær skýrslur á Rf, þar sem birtar eru niðurstöður tilrauna sem gerðar voru á Rf fyrir 12-15 árum, en hafa ekki verið birtar áður. Ástæðan fyrir því að þær eru grafnar upp núna er að niðurstöður þessara tilrauna nýtast nú í verkefnum sem unnið er að á Rf um þessar mundir.

Lesa meira
 

Fiskiþing haldið föstudaginn 7. apríl - 4.4.2006

65. Fiskiþing verður haldið á Radisson Hótel Sögu í Reykjavík föstudaginn 7. apríl, 2006. Það hefst kl. 13:30 og því verður slitið kl. 17. Fiskiþing er opið málþing um málefni er varða sjávarútveginn. Þema þingsins er "Sjávarútvegur og umhverfið".  Einn fyrirlesari verður frá Rf, Emilía Martinsdóttir, deildarstjóri Neytenda og öryggisdeildar á Rannsóknarsviði Rf.

Lesa meira

 
SEAFOODplus Council Reykjavik, March 29. 2006

Stjórn SEAFOODplus fundaði í Reykjavík - 29.3.2006

Í dag lauk tveggja daga fundi stjórnar SEAFOODplus - risaverkefnisins, en fundurinn var haldinn í Sjávarútvegshúsinu. Sem kunnugt er tekur Rf þátt í SEAFOODplus og Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Rf, situr í stjórn verkefnisins. Lesa meira
 
Heimsókn frá Bodö 23.03.06

Heimsókn frá Noregi - 23.3.2006

Hópur nemenda frá Háskólanum í Bodö í Noregi heimsótti Sjávarútvegshúsið eftir hádegi í dag, í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi Rf og Hafrannsóknastofnunarinnar. Heimsóknin er hluti af þéttskipaðri dagsskrá hópsins hér á landi.

Lesa meira
 
Seafoodplus_logo

Heilsubætandi áhrif lífvirkra fiskpróteina - 21.3.2006

Rf hefur, ásamt ýmsum samstarfsaðilum, unnið að fjölda verkefna um aukið verðmæti sjávarfangs á undanförnum árum. Þar á meðal eru nokkur verkefni um aukna nýtingu á próteinum úr aukafurðum og uppsjávarfiskum til manneldis, bæði með því að þróa nýja vinnsluferla, nýjar vörur og með því að kanna markaði fyrir heilsufæði og markfæði.

Lesa meira
 
Eldisþorskur rannsakaður á Rf

Fyrsti fundur í verkefninu Welfare of Fish in European Aquaculture - 16.3.2006

Eins og sagt var frá hér á vefnum í nóvember, tekur Rf þátt í stóru Evrópuverkefni um velferð fiska í fiskeldi. Nýlega var fyrsti fundur stýrihópsins sem fulltrúi Rf situr í haldinn í Brussel og hér má lesa ágrip af því sem þar var rætt.

Lesa meira

 
Kristín Lauritzen

Gestavísindamaður flutti fyrirlestur í morgun um saltfiskrannsóknir - 15.3.2006

Dr. Kristin Lauritzen, sérfræðingur við Fiskeriforskning í Tromsø í Noregi, flutti í morgun fyrirlestur um rannsóknir á breytingum sem verða á þurrkuðum saltfiski við geymslu og flutning.

Lesa meira

 

Rf óskar eftir að ráða verkefnastjóra til starfa á Höfn í Hornafirði - 13.3.2006

Um helgina auglýsti Rf eftir því að ráða verkefnastjóra til starfa á Höfn í Hornafirði.  Um er að ræða nýtt starf sem unnið verður í nánum tengslum við starfsemi Frumkvöðlasetur Austurlands ehf.

Lesa meira

 
Verið, Sauðárkróki

Próteinfyrirtæki Rf flytur á Sauðárkrók - 9.3.2006

Eins og greint var frá í fréttum í vikunni, hefur Rf flutt próteinfyrirtæki sitt, Iceprotein ehf, til Sauðárkróks. Fyrirtækið, sem stofnað var árið 2005, er þróunar-, framleiðslu- og markaðsfyrirtæki sem þróar, framleiðir og mun selja blautprótein fyrir fiskiðnað á Íslandi og þurrkuð prótein fyrir heilsu- og fæðubótarmarkaðinn.

Lesa meira
 
Þátttakendur frá Rf á Raunvísindaþingi 2006

Rf á Raunvísindaþingi 2006 - 3.3.2006

Raunvísindaþing H.Í. 2006 hefst í dag í Öskju, Náttúrufræðihúsi H.Í. í Vatnsmýrinni og stendur það yfir í tvo daga. Markmið þingsins er að kynna hinar miklu og fjölbreyttu rannsóknir í raunvísindum sem stundaðar eru við Háskóla Íslands og stofnanir hans. Á þinginu verða rannsóknir kynntar í erindum og á veggspjöldum og kynnir Rf sjö rannsóknir á veggspjöldum.

Lesa meira
 
Skynmatsaðstaðan á Rf

Athyglisverð skynmatsráðstefna í Osló í byrjun maí. - 1.3.2006

Annað hvert ár eru haldnar á Norðurlöndum ráðstefnur sem fjalla að mestu um skynmat og neytendarannsóknir og hefur Rf tekið þátt í undirbúningi þeirra. Næsta ráðstefna verður haldin í Osló dagana 3.-5. maí og ber hún yfirskriftina Focus on the Nordic Consumer.

Lesa meira
 

Tvær greinar frá starfsfólki Rf í Journal of Food Science - 28.2.2006

Í marshefti vísindaritsins The Journal of Food Science 2006 er að finna tvær greinar, sem að mestu leyti eru ritaðar af starfsfólki Rf. Fjallar önnur um að viðhalda gæðum saltfisks í neytendapakkningum eftir útvötnun og hin fjallar um ofurkælingu á þorskflökum.

Lesa meira
 
IFL Headquarters in Reykjavik

Rf óskar eftir skrifstofumanni - 24.2.2006

Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins í Reykjavík óskar eftir að ráða starfsmann í skrifstofustarf. Um er að ræða 100% starf. Starfið felur í sér sérhæfð skrifstofustörf.

Lesa meira
 

Hvert stefnir fiskneysla Íslendinga? Fróðleg grein í Ægi - 22.2.2006

Eins og sagt var frá hér á vefnum í janúar, var nýlega kynnt verkefni um mögulegar leiðir til að auka á ný fiskneyslu, sérstaklega ungs fólks, en rannsóknir sýna að hún á að mörgu leyti á brattann að sækja hjá þeim aldurshóp. Á dögunum birtist í tímaritinu Ægi fróðleg samantek á verkefninu og er hægt að lesa hana hér á pdf-formi.

Lesa meira
 
Guðrún Ólafsdóttir á Rimini í feb. 2006

Fleira gert á Rimini en að flatmaga í sólinni... - 17.2.2006

Nýlega var haldin ráðstefna á Rimini á Ítalíu, sem nefndist Mediterranean Seafood Expositon 2006 og er stærsta sjávarafurðasýning sem haldin er á Ítalíu. Í tengslum við sýninguna var haldinn þar fundur þar sem fjallað var um hvernig nýta megi nýjustu tækni til að tryggja gæði ög öryggi sjávarafurða. Á meðal þeirra sem boðið var að flytja þarna erindi var dr. Guðrún Ólafsdóttir, sérfræðingur á Rf.

Lesa meira

 
Þvottabúnaðurinn á Rf

Minni sápa - meiri virkni? - 15.2.2006

Framleiðsla á öruggum, heilnæmum matvælum krefst þess að þau séu framleidd úr góðu hráefni, en ekki síður að fyllsta hreinlætis sé gætt við framleiðslu þeirra. Þrif í matvælaiðnaði eru hins vegar dýr og því mikilvægt að þau gegni sínu hlutverki, án þess að kosta fyrirtækin og umhverfið of mikið.

Lesa meira
 
Fréttamannafundur 9. 02. 2006

Óæskileg efni í íslensku sjávarfangi langt undir hættumörkum - 9.2.2006

Á fréttamannafundi sem haldinn var í Sjávarútvegshúsinu í dag voru kynntar niðurstöður úr vöktunarverkefni sem Rf vinnur að fyrir sjávarútvegsráðuneytið. Niðurstöðurnar sýna að íslenskt sjávarfang inniheldur mjög lítið af óæskilegum efnum

Lesa meira
 
Verkhópur í Oxunárverkefni rannsakar loðnu á Rf

Loðnan klippt og skorin á Rf - 8.2.2006

Markaður fyrir tilbúin fersk matvæli hefur vaxið ört á undanförnum árum, sérstaklega í Evrópu og margir hafa séð í þeirri þróun möguleika á að auka verðmæti sjávarfangs. Það kann þó að vera snúið þar sem torvelt er að nota sjávarfang í tilbúin matvæli. Það sem helst hefur komið í veg fyrir að hægt sé að nýta sjávarfang í tilbúna rétti er að fiskur er mjög viðkvæmt hráefni vegna hás hlutfalls af fjölómettuðum fitusýrum sem geta oxast og valdið óbragði.

Lesa meira

 
Bólusetning þorskseiðis

Forvarnir í fiskeldi: Ný skýrsla á Rf - 7.2.2006

Nýlega kom út skýrslan Forvarnir í fiskeldi, sem er framvinduskýrsla í samnefndu verkefni er hófst árið 2004 og lýkur árið 2007. Í verkefninu er m.a. rannsakað hvernig þróa megi aðferðir til að greina og bæta umhverfisþætti í lúðu- og þorskeldi á frumstigi eldisins, þ.e. frá klaki til lirfuskeiðs, en á því tímabili eru afföllin í eldinu hvað mest.

Lesa meira
 

Ný gjaldskrá fyrir mælingar á Rf: Þrjú prósent hækkun - 6.2.2006

Um áramótin hækkaði gjaldskrá fyrir efna- og örverumælingar á Rf um þrjú prósent. Hækkunin stafar einkum af hækkun vísitölu.  Smellið hér til að skoða gjaldskrána 
 
Starfsfólk Rf í Neskaupstað

Sjávarútvegsráðuneytið: Loðnukvótinn aukinn í 210 þús tonn - 3.2.2006

Á vef Mbl.is er sagt frá því að Sjávarútvegsráðuneytið hafi, að tillögu Hafrannsóknarstofnunar, ákveðið að auka loðnukvótann á vetrarvertíðinni 2006 í 210 þúsund lestir eða um 110 þúsund lestir. Þar af koma 103 þúsund lestir í hlut íslenskra skipa. Útibússtjóri Rf í Neskaupstað er ánægður með gæði loðnunar.

Lesa meira
 

Starfsmaður Rf á leið til Ástralíu - 31.1.2006

Katrín Ásta Stefánsdóttir, starfsmaður Vinnslu - og þróunardeildar Rannsóknarsviðs Rf hyggur á framhaldsnám í meistaranám í matvælafræði. Þetta væri svo sem ekki í frásögur færandi nema að Katrín fer ekki stystu leið að markmiði sínu heldur fer Jörðina á enda.

Lesa meira
 
Emilía Martinsdóttir á fundi um fiskneyslu

Kynning á fiskneyslu í nútíð (og framtíð?) - 25.1.2006

Íslendingar eru á meðal mestu fiskneysluþjóða í heimi og tengja það oft langlífi og góðu heilsufari þjóðarinnar almennt, en nú eru vissar blikur á lofti í þeim efnum, enda hefur fiskneysla, sérstaklega ungs fólks dregist verulega saman á undanförnum árum.

Lesa meira
 

Fjallað um omega-3 fitusýrur í The Economist - 24.1.2006

Hið virta vikurit The Economist birtir í nýjast tbl. sínu tvær greinar um omega-3 fitusýrur, þar sem í annarri er m.a. fjallað um rannsókn sem gerð var í Bretlandi á áhrifum neyslu omega-3 fitusýra barnshafandi kvenna á þroska barnanna. Í stuttu máli virðist rannsóknin sýna enn og aftur fram á að jákvæðu hliðar fiskneyslu séu margfalt fleiri en þeir neikvæðu.   

Lesa meira
 
Auðar hillur í Sjávarútvegsbókasafni

Sjávarútvegsbókasafnið tekur breytingum - 19.1.2006

Tómlegt er nú um að litast á bókasafninu sem er til húsa í Sjávarútvegshúsinu. Miklar breytingar hafa staðið þar yfir síðan um mitt síðasta ár og sem stendur eru flest rit safnsins niðurpökkuð í kassa.

Lesa meira
 

Óskað eftir fyrirtækjum sem framleiða markfæði - 13.1.2006

Rf hefur borist fréttatilkynning frá Danmörku þar sem auglýst er eftir litlum og meðalstórum fyrirtækjum (SME´s) til að taka þátt í evrópsku netverkefni fyrirtækja sem framleiða markfæði (functional food).  Lesa meira
 
Verið, Sauðárkróki

Fundur á Sauðárkróki: Glærur komnar á vefinn - 10.1.2006

Fimmtudaginn 5. janúar var haldinn fjölmennur fundur í Verinu, nýju Þróunarsetri Hólaskóla, sem staðsett er á Háeyri 1 við höfnina á Sauðárkróki. Tilefni fundarins var að kynna 6 milljón króna styrk sem sjávarútvegs- og iðnaðarráðuneytin hafa veitt til að styrkja rannsóknir á sviði fiskeldis, vinnslu sjávarafla og matvælavinnslu á Sauðárkróki og við Hólaskóla.

Lesa meira
 

Vinnsla próteina á Rf umfjöllunarefni í Innovate - 9.1.2006

Norræna nýsköpunarmiðstöðin gefur m.a. út fréttabréfið Innovate á ensku og í síðasta tbl. ársins 2005 er að finna viðtöl við þær Sjöfn Sigurgísladóttur forstjóra og Margréti Geirsdóttur, matvælafræðing á Rf. Umræðuefnið er þeir möguleikar sem felast í vinnslu hágæðapróteina úr fiski. Lesa meira
 
Fiskeldiskvíar á Vestfjörðum

GENIMPACT: Netverkefni um mat á hugsanlegum erfðafræðilegum áhrifum fiskeldis - 5.1.2006

Erfðabreytt matvæli hafa verið talsvert til umræðu á síðustu árum og eru ekki allir á eitt sáttir um áhrif þeirra. Umræðan hefur verið af tvennum toga, annars vegar hvort matvælin geti haft skaðleg áhrif á heilsu manna og hinsvegar hvaða áhrif ræktun erfðabreyttra nytjaplantna hafi á umhverfið og lífríkið í heild. Þessi umræða hefur einnig náð til fiskeldisiðnaðarins, þar sem ýmsir hafa áhyggjur af hugsanlegum áhrifum eldisfisks á villta stofna.

Lesa meira
 

Fréttatilkynning: Kynningarfundur 5. janúar á Sauðárkróki - 4.1.2006

Sameiginlegur kynningarfundur Rf, Hólaskóla og Fisk Seafood um uppbyggingu á rannsókna- og þróunarstarfsemi í Þróunarsetrinu Verinu á Sauðárkróki verður haldinn n.k. fimmtudag 5. janúar kl. 16:00-18:00 í Verinu, rannsókna- og kennsluhúsnæði Hólaskóla á Sauðárkróki.

Lesa meira
 
Salmonella (t.h.) í ræktun

Hraðvirkari mælingar á örverum en áður - 3.1.2006

Í viðskiptum er tíminn oft dýrmætur og sérstaklega ef höndlað er með viðkvæma vöru með stutt geymsluþol, eins og t.d. ferskan fisk. Í athyglisverðu verkefni sem unnið hefur verið að á Rf, í samvinnu við Danmarks Fødevarforsikring, var unnið að því að stytta verulega þann tíma sem líður þar til niðurstöður úr örverumælingum á sjávarafurðum liggja fyrir.   

Lesa meira

 
Flök af þorski metin

Grein frá Rf í nýjasta tbl. Ægis - 2.1.2006

Í desemberblaði tímaritsins Ægir er að finna grein um rannsóknir sem gerðar voru á Rf um samanburð á geymsluþoli annars vegar eldisþorsks og hins vegar villts þorsks. Eins og áður hefur komið fram hafa niðurstöðurnar vakið athygli víða. Lesa meira
 


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica