Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hópur nemenda frá Háskólanum í Bodö í Noregi heimsótti Sjávarútvegshúsið eftir hádegi í dag, í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi Rf og Hafrannsóknastofnunarinnar. Heimsóknin er hluti af þéttskipaðri dagsskrá hópsins hér á landi.
Lesa meira
Rf hefur, ásamt ýmsum samstarfsaðilum, unnið að fjölda verkefna um aukið verðmæti sjávarfangs á undanförnum árum. Þar á meðal eru nokkur verkefni um aukna nýtingu á próteinum úr aukafurðum og uppsjávarfiskum til manneldis, bæði með því að þróa nýja vinnsluferla, nýjar vörur og með því að kanna markaði fyrir heilsufæði og markfæði.
Lesa meira
Eins og sagt var frá hér á vefnum í nóvember, tekur Rf þátt í stóru Evrópuverkefni um velferð fiska í fiskeldi. Nýlega var fyrsti fundur stýrihópsins sem fulltrúi Rf situr í haldinn í Brussel og hér má lesa ágrip af því sem þar var rætt.
Dr. Kristin Lauritzen, sérfræðingur við Fiskeriforskning í Tromsø í Noregi, flutti í morgun fyrirlestur um rannsóknir á breytingum sem verða á þurrkuðum saltfiski við geymslu og flutning.
Um helgina auglýsti Rf eftir því að ráða verkefnastjóra til starfa á Höfn í Hornafirði. Um er að ræða nýtt starf sem unnið verður í nánum tengslum við starfsemi Frumkvöðlasetur Austurlands ehf.
Eins og greint var frá í fréttum í vikunni, hefur Rf flutt próteinfyrirtæki sitt, Iceprotein ehf, til Sauðárkróks. Fyrirtækið, sem stofnað var árið 2005, er þróunar-, framleiðslu- og markaðsfyrirtæki sem þróar, framleiðir og mun selja blautprótein fyrir fiskiðnað á Íslandi og þurrkuð prótein fyrir heilsu- og fæðubótarmarkaðinn.
Lesa meiraRaunvísindaþing H.Í. 2006 hefst í dag í Öskju, Náttúrufræðihúsi H.Í. í Vatnsmýrinni og stendur það yfir í tvo daga. Markmið þingsins er að kynna hinar miklu og fjölbreyttu rannsóknir í raunvísindum sem stundaðar eru við Háskóla Íslands og stofnanir hans. Á þinginu verða rannsóknir kynntar í erindum og á veggspjöldum og kynnir Rf sjö rannsóknir á veggspjöldum.
Lesa meira
Annað hvert ár eru haldnar á Norðurlöndum ráðstefnur sem fjalla að mestu um skynmat og neytendarannsóknir og hefur Rf tekið þátt í undirbúningi þeirra. Næsta ráðstefna verður haldin í Osló dagana 3.-5. maí og ber hún yfirskriftina Focus on the Nordic Consumer.
Lesa meira