janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember

Nýlega bættust fjórir nemendur í rannsóknatengdu meistaranámi við fiskeldishóp Rf á Akureyri og stunda þau öll nám við Viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri. Þetta eru þau Rut Hermannsdóttir, Bjarni Jónasson og G.Stella Árnadóttir, sem öll luku BS prófi frá Auðlindadeild Háskólans á Akureyri s.l. vor, og Eyrún Gígja Káradóttir sem lauk BS prófi frá Háskóla Íslands s.l. vor.
Lesa meiraÞriðjudaginn 3. október n.k. mun Runólfur Guðmundsson verja meistaraverkefni sitt, ,,Ákvarðanataka og bestun í sjávarútvegi”. Vörnin fer fram í húsnæði Verkfræðideildar Háskóla Íslands (VRII), Hjarðarhaga 6, stofu V-158 og hefst kl. 13.45.
Lesa meiraDagana 21-22 september s.l. var haldinn á Rf fundur í Evrópuverkefninu Chill-on, sem er stórt samþætt verkefni sem hófst nú í sumar. Verkefnið er styrkt af ESB og nemur styrkurinn alls um 9,8 milljónir Evra og er umfang þess alls um 15,1 m. Evra eða um 1,4 miljarðar íslenskra króna.
Í síðustu viku var haldinn tveggja daga fundur hér á Rf í einum hluta SEAFOODplus klasaverkefnisins. Um er að ræða verkefnið Seabac, sem er eitt af fjórum flokkum sem heyra undir þriðju stoð (3.rd pillar) Sfplus.
Lesa meira
Um næstu helgi, 15. - 17. sept. verður slegið upp mikilli fiskiveislu á um 80 veitingastöðum út um allt land, og er ætlunin að hvetja bæði unga og aldna til að fara út að snæða sjávarafurðir meðan á hátíðinni stendur. Um er að ræða sérstakt átaksverkefni á sjávarútvegsráðuneytisins í samstarfi við Klúbb matreiðslumeistara á Íslandi. Óhætt er að hvetja landsmenn til að skella sér í fjörið!
Lesa meira
Nýlega kom út bókin Seafood research from fish to dish- Qality, safety and processing of wild and farmed fish, sem hefur að geyma fjölda samantekta (abstrakta) frá 35. fundi WEFTA-samtakanna sem fram fór í Antwerpen í Belgíu dagana 19.-22. september 2005. Starfsfólk Rf kemur nokkuð við sögu í þessari stóru bók.
Lesa meira
Í gær birtist á vefnum Sciencedirect.com útdráttur greinar frá Rf sem birtast mun bráðlega í hinu virta vísindatímariti Journal of Food Engineering. Greinin nefnist Influencing factors on yield, gaping, bruises and nematodes in cod (Gadus morhua) fillets.
Lesa meira