Okkar rannsóknir, allra hagur

2007

Síld: Geymsla í 20 gráðu frosti hefur áhrif gæði - 27.12.2007

“Aðlástæðan fyrir gæðavandamálum í síld er hátt innihald efnasambanda sem stuðla að þránun og hafa áhrif á lit- og áferðarbreytingar, ásamt tapi næringarefna," segir í skýrslu Matís um hvernig hægt er að bæta gæði síldar til neyslu. Þá segir að betri gæði leiða af sér aukna samkeppni í framleiðslu síldar á Norðurlöndum, ásamt jákvæðu viðhorfi neytenda gagnvart síldarafurðum. Lesa meira
 

Hægt að lækka fóðurverð fyrir eldisþorsk um 30% - 18.12.2007

Hægt er að lækka fóðurverð fyrir eldisþorsk um allt að því 30% og lækka þar með framleiðslukostnað um 15% með því að draga úr próteinnotkun og auka fitu. Þá er hægt að lækka fóðurkostnað því að nota ódýrara fiskimjöl og hráefni úr jurtaríkinu í fóðrið, aðallega hjá stærri fiski, að því er fram kemur í rannsókn á þróun sjófiskafóðurs. Lesa meira
 

Starfsmenn Matís vinna verkefni á Sri Lanka - 11.12.2007

Starfsmenn Matís hafa lokið við gerð skýrslu um vatn og ís í fiskvinnslu á Sri Lanka. Þeir hafa haft umsjón með rannsóknum á þessu sviði undanfarin eitt og hálft ár og önnuðust lokaniðurstöður skýrslurnnar. Lesa meira
 

Vill fólk borða stressaðan eldisfisk? - 10.12.2007

Neytendum finnst stressaður eldisfiskur álíka góður og óstressaður. Þó virðist ábatasamt fyrir framleiðendur að mæta auknum kröfum um velferð dýra, segir í umfjöllun Morgunblaðsins um erindi Emilíu Martinsdóttur á haustráðstefnu Matís. Þar segir að velferð dýra og umhverfisvæn matvælaframleiðsla hafi í auknum mæli vakið áhuga almennings á sama tíma og áhersla hafi verið lögð á að koma á reglugerðum um fiskeldi. Lesa meira
 

Skrifstofa Matís flytur í Borgartún 21 - 6.12.2007

Skrifstofa Matís er flutt á 2. hæð í Borgartúni 21 (Höfðaborg). Móttaka sýna verður hins vegar áfram í Skúlagötu 4. Aðalnúmer Matís er 422 5000 og þar er hægt að fá samband við skrifstofu eða upplýsingar um móttöku sýna. Faxnúmer í Borgartúni 422 5003. Faxnúmer á Skúlagötu er 422 5001.
 

Matís og SINTEF: Aukið alþjóðlegt samstarf - 29.11.2007

SINTEFMatís (Matvælarannsóknir Íslands) og norska rannsóknafyrirtækið SINTEF hafa gert með sér samkomulag sem hefur það að markmiði að efla rannsóknir, þróun og virði í sjávarútvegi og matvælaiðnaði á Íslandi og í Noregi. Samkomulagið gerir Matís kleift að taka þátt í rannsóknaverkefnum í samstarfi við SINTEF og norsk fyrirtæki í fiskeldi og matvælarannsóknum. Þá mun samkomulagið auka möguleika Matís á því að kynna starfsemi sína á erlendum vettvangi og taka þátt í fleiri alþjóðlegum og samevrópskum rannsóknaverkefnum.

Lesa meira
 

Myndir frá undirritun samkomulags Matís og HÍ - 29.11.2007

Matís og Háskóli Íslands skrifuðu undir samkomulag á dögunum um að vinna náið að því að stórefla rannsóknir og menntun í matvælafræðum, matvælaverkfræði, líftækni og matvælaöryggi. Í samkomulaginu er ennfremur stefnt að því að fjölga verulega nemendum í grunn- og framhaldsnámi í þessum greinum við Háskóla Íslands. Hægt er að skoða myndir frá undirritun samkomulagsins þegar smellt er á LESA MEIRA. Lesa meira
 

Sérfræðistarfið verður á Ísafirði - 27.11.2007

Starfsstöð Matís á ÍsafirðiVegna fréttar bæjarins besta á Ísafirði um að sérfræðistarf hjá Matís á Vestfjörðum verði flutt til höfuðborgarsvæðisins vill fyrirtækið koma því á framfæri að aldrei hafi staðið annað til en að stöðugildið verði áfram á Vestfjörðum. Einn núverandi starfsmanna Matís á Ísafirði flytur sig um set um áramót. Unnið er að því að finna annan starfsmann, sem er búsettur á Vestfjörðum, í hans stað. Nú eru fjögur stöðugildi hjá Matís á Vestfjörðum og hefur þeim fjölgað á síðustu misserum.
 

Nýr starfsmaður á Ísafirði - 27.11.2007

Matis_Logo_4CCecilia Elizabeth Garate Ojeda hefur tekið við starfi sérfræðings hjá Matís á Ísafirði. Ceclia, sem er frá Perú, lauk BCs í iðnarverkfræði frá Universidad Nacional de San Agustin Arequipa í Perú árið 2000 og svo MBA námi frá Industrial Business School í Madríd á Spáni árið 2006. Lesa meira
 

Stórefldar rannsóknir og aukin menntun í matvælafræðum - 23.11.2007

Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís.Háskóli Íslands og Matís (Matvælarannsóknir Íslands) hafa ákveðið að vinna náið að því að stórefla rannsóknir og menntun í matvælafræðum, matvælaverkfræði, líftækni og matvælaöryggi. Stefnt er að því að fjölga verulega nemendum í grunn- og framhaldsnámi í þessum greinum við Háskóla Íslands samkvæmt samstarfssamningi sem HÍ og Matís hafa undirritað. Lesa meira
 

Enn meira af Matís ráðstefnunni - 20.11.2007

Rúmlega 160 manns fylltu Gullteig salinn á Grand Hótel á fimmtudaginn var þegar ráðstefna Matís, Matur og framtíð, var haldin, í fyrsta skipti. Í sal fyrir utan ráðstefnuna var svo hægt að kynnast matarhönnun og nýsköpun í matvælaiðnaði, eins og fjallakonfekti, blóðbergsdrykkjum og eldisfiskum. Ennfremur gafst gestum tækifæri á því að bragða á harðfiski frá Gullfiski.

Lesa meira
 

Heilsufullyrðingar: Númer vinninga - 19.11.2007

matisBúið er að draga út vinningsnúmer úr hópi þeirra sem tóku þátt í heilsufullyrðingakönnun Matís. Glæsilegir vinningar eru í boði frá Mjólkursamsölunni. Sjá númer vinningshafa hér. Lesa meira
 

Ráðherra skálar í blóðbergsdrykk og smakkar á fjallakonfekti - 15.11.2007

Ráðherra gæðir sér á fjallakonfekti.Einar K. Guðfinnsson landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra skálaði í bóðbergsdrykk og gæddi sér á fjallakonfekti, sem var í boði í upphafi ráðstefnu Matís, Matur og framtíð, í dag. Á ráðstefnunni er leitast við að svara spurningum á borð við hvers vegna grænmeti sé hollt, hvort þorskeldi eigi framtíð fyrir sér á Íslandi, hvers vegna fólk vill ekki stressaðan eldisfisk og hvort fólk viti yfirhöfuð hvaðan maturinn þeirra kemur.

Lesa meira
 

Innlent grænmeti yfirleitt ferskara og af meiri gæðum - 14.11.2007

Ólafur Reykdal, Matís.Innlent grænmeti er yfirleitt ferskara og af meiri gæðum en það innflutta. Næringargildið er svipað en minna er um varnarefni í því innlenda, segir Ólafur Reykdal verkefnastjóri hjá Matís í samtali við 24 stundir. "Það er mjög stutt frá haga til maga," segir Ólafur Lesa meira
 

Haustráðsefna Matís verður á fimmtudag - 12.11.2007

matis

Matur og framtíð, haustráðstefna Matís, fer fram á Grand Hótel þann 15. nóvember 2007. Á ráðstefnunni, sem er frá 12:30 til 16:30, verður leitast við að svara spurningum á borð við hvers vegna grænmeti sé hollt, hvort þorskeldi eigi framtíð fyrir sér á Íslandi, hvers vegna fólk vill ekki stressaðan eldisfisk og hvort fólk viti yfirhöfuð hvaðan maturinn þeirra kemur.

Lesa meira
 

Matís finnur áður óþekkta hverabakteríu - 11.11.2007

Matís hefur fundið áður óþekkta hverabakteríu, sem virðist bundin við Ísland. Tegundin fannst í háu hlutfalli í hver á Torfajökulssvæðinu og hefur nú tekist að rækta hana. Lesa meira
 

Rafrænar upplýsingar um matvöru til neytenda - 23.10.2007

Ýmsir telja að rafrænar merkingar muni leysa hefðbundin strikamerki af hólmi á næstu árum. Matís hefur sl. ár tekið þátt í þróunarverkefni sem miðar að því að merkja fiskiker með rafrænum hætti. Slíkar merkingar munu gefa aukna möguleika á hagnýtingu rekjanleika og m.a. gera fyrirtækjum kleift að senda rafrænar upplýsingar til kaupenda um það hvar afurðin er veidd, hvar hún hefur verið verkuð og hvaða leið hún hefur farið á markað. Lesa meira
 

Gæðaúttekt á Matís - 19.10.2007

Í vikunni fór fram gæðaúttekt Swedac og Einkaleyfastofu á rannsóknaraðferðum Matís, en slíkar úttektir voru gerðar árlega hjá Rf og Rannsóknastofu Umhverfisstofnunar um margra ára skeið.

Lesa meira
 

Aukin umsvif á Ísafirði - 18.10.2007

Jon_AtliMatís (Matvælarannsóknir Íslands) hefur fjölgað starfsfólki á starfsstöð sinni á Ísafirði. Jón Atli Magnússon hefur tekið til starfa á starfsstöðinni en hann mun sinna verkefnum á sviði vinnslu- og eldistækni. Lesa meira
 

Matís vekur athygli á Matur-inn - 15.10.2007

Matur-innMatís á Akureyri tók þátt í matvælasýningunni Matur-inn sem fram fór í Verkmenntaskólanum um síðustu helgi. Þar kynnti Matís starfsemi sína á Akureyri; rannsóknir á mengunarefnum og óæskilegum efnum í matvælum. Þá var ÍSGEM gagnagrunnurinn kynntur til sögunnar, en hann er með upplýsingar um efnainnihald 900 fæðutegunda. Lesa meira
 


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica