Okkar rannsóknir, allra hagur

Fréttir

Síldarvinnsla í Neskaupsstað.

Síld: Geymsla í 20 gráðu frosti hefur áhrif gæði - 27.12.2007

“Aðlástæðan fyrir gæðavandamálum í síld er hátt innihald efnasambanda sem stuðla að þránun og hafa áhrif á lit- og áferðarbreytingar, ásamt tapi næringarefna," segir í skýrslu Matís um hvernig hægt er að bæta gæði síldar til neyslu. Þá segir að betri gæði leiða af sér aukna samkeppni í framleiðslu síldar á Norðurlöndum, ásamt jákvæðu viðhorfi neytenda gagnvart síldarafurðum. Lesa meira
 
Eldisþorskur.

Hægt að lækka fóðurverð fyrir eldisþorsk um 30% - 18.12.2007

Hægt er að lækka fóðurverð fyrir eldisþorsk um allt að því 30% og lækka þar með framleiðslukostnað um 15% með því að draga úr próteinnotkun og auka fitu. Þá er hægt að lækka fóðurkostnað því að nota ódýrara fiskimjöl og hráefni úr jurtaríkinu í fóðrið, aðallega hjá stærri fiski, að því er fram kemur í rannsókn á þróun sjófiskafóðurs. Lesa meira
 
Starfsmenn Matís á Sri Lanka

Starfsmenn Matís vinna verkefni á Sri Lanka - 11.12.2007

Starfsmenn Matís hafa lokið við gerð skýrslu um vatn og ís í fiskvinnslu á Sri Lanka. Þeir hafa haft umsjón með rannsóknum á þessu sviði undanfarin eitt og hálft ár og önnuðust lokaniðurstöður skýrslurnnar. Lesa meira
 
Sjalfbaerni

Vill fólk borða stressaðan eldisfisk? - 10.12.2007

Neytendum finnst stressaður eldisfiskur álíka góður og óstressaður. Þó virðist ábatasamt fyrir framleiðendur að mæta auknum kröfum um velferð dýra, segir í umfjöllun Morgunblaðsins um erindi Emilíu Martinsdóttur á haustráðstefnu Matís. Þar segir að velferð dýra og umhverfisvæn matvælaframleiðsla hafi í auknum mæli vakið áhuga almennings á sama tíma og áhersla hafi verið lögð á að koma á reglugerðum um fiskeldi. Lesa meira
 

Skrifstofa Matís flytur í Borgartún 21 - 6.12.2007

Skrifstofa Matís er flutt á 2. hæð í Borgartúni 21 (Höfðaborg). Móttaka sýna verður hins vegar áfram í Skúlagötu 4. Aðalnúmer Matís er 422 5000 og þar er hægt að fá samband við skrifstofu eða upplýsingar um móttöku sýna. Faxnúmer í Borgartúni 422 5003. Faxnúmer á Skúlagötu er 422 5001.
 

Matís og SINTEF: Aukið alþjóðlegt samstarf - 29.11.2007

SINTEFMatís (Matvælarannsóknir Íslands) og norska rannsóknafyrirtækið SINTEF hafa gert með sér samkomulag sem hefur það að markmiði að efla rannsóknir, þróun og virði í sjávarútvegi og matvælaiðnaði á Íslandi og í Noregi. Samkomulagið gerir Matís kleift að taka þátt í rannsóknaverkefnum í samstarfi við SINTEF og norsk fyrirtæki í fiskeldi og matvælarannsóknum. Þá mun samkomulagið auka möguleika Matís á því að kynna starfsemi sína á erlendum vettvangi og taka þátt í fleiri alþjóðlegum og samevrópskum rannsóknaverkefnum.

Lesa meira
 
Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís, Einar K. Guðfinnsson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, og Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ.

Myndir frá undirritun samkomulags Matís og HÍ - 29.11.2007

Matís og Háskóli Íslands skrifuðu undir samkomulag á dögunum um að vinna náið að því að stórefla rannsóknir og menntun í matvælafræðum, matvælaverkfræði, líftækni og matvælaöryggi. Í samkomulaginu er ennfremur stefnt að því að fjölga verulega nemendum í grunn- og framhaldsnámi í þessum greinum við Háskóla Íslands. Hægt er að skoða myndir frá undirritun samkomulagsins þegar smellt er á LESA MEIRA. Lesa meira
 

Sérfræðistarfið verður á Ísafirði - 27.11.2007

Starfsstöð Matís á ÍsafirðiVegna fréttar bæjarins besta á Ísafirði um að sérfræðistarf hjá Matís á Vestfjörðum verði flutt til höfuðborgarsvæðisins vill fyrirtækið koma því á framfæri að aldrei hafi staðið annað til en að stöðugildið verði áfram á Vestfjörðum. Einn núverandi starfsmanna Matís á Ísafirði flytur sig um set um áramót. Unnið er að því að finna annan starfsmann, sem er búsettur á Vestfjörðum, í hans stað. Nú eru fjögur stöðugildi hjá Matís á Vestfjörðum og hefur þeim fjölgað á síðustu misserum.
 

Nýr starfsmaður á Ísafirði - 27.11.2007

Matis_Logo_4CCecilia Elizabeth Garate Ojeda hefur tekið við starfi sérfræðings hjá Matís á Ísafirði. Ceclia, sem er frá Perú, lauk BCs í iðnarverkfræði frá Universidad Nacional de San Agustin Arequipa í Perú árið 2000 og svo MBA námi frá Industrial Business School í Madríd á Spáni árið 2006. Lesa meira
 

Stórefldar rannsóknir og aukin menntun í matvælafræðum - 23.11.2007

Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís.Háskóli Íslands og Matís (Matvælarannsóknir Íslands) hafa ákveðið að vinna náið að því að stórefla rannsóknir og menntun í matvælafræðum, matvælaverkfræði, líftækni og matvælaöryggi. Stefnt er að því að fjölga verulega nemendum í grunn- og framhaldsnámi í þessum greinum við Háskóla Íslands samkvæmt samstarfssamningi sem HÍ og Matís hafa undirritað. Lesa meira
 
matis_grandhotel_151107_18

Enn meira af Matís ráðstefnunni - 20.11.2007

Rúmlega 160 manns fylltu Gullteig salinn á Grand Hótel á fimmtudaginn var þegar ráðstefna Matís, Matur og framtíð, var haldin, í fyrsta skipti. Í sal fyrir utan ráðstefnuna var svo hægt að kynnast matarhönnun og nýsköpun í matvælaiðnaði, eins og fjallakonfekti, blóðbergsdrykkjum og eldisfiskum. Ennfremur gafst gestum tækifæri á því að bragða á harðfiski frá Gullfiski.

Lesa meira
 

Heilsufullyrðingar: Númer vinninga - 19.11.2007

matisBúið er að draga út vinningsnúmer úr hópi þeirra sem tóku þátt í heilsufullyrðingakönnun Matís. Glæsilegir vinningar eru í boði frá Mjólkursamsölunni. Sjá númer vinningshafa hér. Lesa meira
 

Ráðherra skálar í blóðbergsdrykk og smakkar á fjallakonfekti - 15.11.2007

Ráðherra gæðir sér á fjallakonfekti.Einar K. Guðfinnsson landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra skálaði í bóðbergsdrykk og gæddi sér á fjallakonfekti, sem var í boði í upphafi ráðstefnu Matís, Matur og framtíð, í dag. Á ráðstefnunni er leitast við að svara spurningum á borð við hvers vegna grænmeti sé hollt, hvort þorskeldi eigi framtíð fyrir sér á Íslandi, hvers vegna fólk vill ekki stressaðan eldisfisk og hvort fólk viti yfirhöfuð hvaðan maturinn þeirra kemur.

Lesa meira
 

Innlent grænmeti yfirleitt ferskara og af meiri gæðum - 14.11.2007

Ólafur Reykdal, Matís.Innlent grænmeti er yfirleitt ferskara og af meiri gæðum en það innflutta. Næringargildið er svipað en minna er um varnarefni í því innlenda, segir Ólafur Reykdal verkefnastjóri hjá Matís í samtali við 24 stundir. "Það er mjög stutt frá haga til maga," segir Ólafur Lesa meira
 

Haustráðsefna Matís verður á fimmtudag - 12.11.2007

matis

Matur og framtíð, haustráðstefna Matís, fer fram á Grand Hótel þann 15. nóvember 2007. Á ráðstefnunni, sem er frá 12:30 til 16:30, verður leitast við að svara spurningum á borð við hvers vegna grænmeti sé hollt, hvort þorskeldi eigi framtíð fyrir sér á Íslandi, hvers vegna fólk vill ekki stressaðan eldisfisk og hvort fólk viti yfirhöfuð hvaðan maturinn þeirra kemur.

Lesa meira
 

Matís finnur áður óþekkta hverabakteríu - 11.11.2007

Matís hefur fundið áður óþekkta hverabakteríu, sem virðist bundin við Ísland. Tegundin fannst í háu hlutfalli í hver á Torfajökulssvæðinu og hefur nú tekist að rækta hana. Lesa meira
 
IMG_0376

Rafrænar upplýsingar um matvöru til neytenda - 23.10.2007

Ýmsir telja að rafrænar merkingar muni leysa hefðbundin strikamerki af hólmi á næstu árum. Matís hefur sl. ár tekið þátt í þróunarverkefni sem miðar að því að merkja fiskiker með rafrænum hætti. Slíkar merkingar munu gefa aukna möguleika á hagnýtingu rekjanleika og m.a. gera fyrirtækjum kleift að senda rafrænar upplýsingar til kaupenda um það hvar afurðin er veidd, hvar hún hefur verið verkuð og hvaða leið hún hefur farið á markað. Lesa meira
 
LOKS

Gæðaúttekt á Matís - 19.10.2007

Í vikunni fór fram gæðaúttekt Swedac og Einkaleyfastofu á rannsóknaraðferðum Matís, en slíkar úttektir voru gerðar árlega hjá Rf og Rannsóknastofu Umhverfisstofnunar um margra ára skeið.

Lesa meira
 

Aukin umsvif á Ísafirði - 18.10.2007

Jon_AtliMatís (Matvælarannsóknir Íslands) hefur fjölgað starfsfólki á starfsstöð sinni á Ísafirði. Jón Atli Magnússon hefur tekið til starfa á starfsstöðinni en hann mun sinna verkefnum á sviði vinnslu- og eldistækni. Lesa meira
 

Matís vekur athygli á Matur-inn - 15.10.2007

Matur-innMatís á Akureyri tók þátt í matvælasýningunni Matur-inn sem fram fór í Verkmenntaskólanum um síðustu helgi. Þar kynnti Matís starfsemi sína á Akureyri; rannsóknir á mengunarefnum og óæskilegum efnum í matvælum. Þá var ÍSGEM gagnagrunnurinn kynntur til sögunnar, en hann er með upplýsingar um efnainnihald 900 fæðutegunda. Lesa meira
 

Ýsa var það, heillin! - 4.10.2007

Vinsælust: ÝsaÍ nýrri skýrslu Matís, þar sem birt er samantekt á þeim upplýsingum sem fyrir liggja um neyslu Íslendinga á hinum ýmsu fisktegundum, kemur m.a. fram að Íslendingar elska ýsu öðrum fiskum fremur. Og kemur líklega fáum á óvart! Lesa meira
 

Iðnaðarráðherra gæðir sér á hvannalambi - 28.9.2007

Vísindavaka RANNÍSÖssur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, gæddi sér á lambakjöti sem var alið upp á hvönn í bás Matís (Matvælarannsóknir Íslands) á Vísindavöku RANNÍS í Listasafni Reykjavíkur á föstudag. Á básnum kynnti Matís rannsóknir á lömbum sem alin voru upp á þessari jurt í sumar. Samkvæmt rannsókninni hafa hvannalömb meiri meiri kryddlykt og –bragð, en lömb í hefðbundnu beitarlandi hafa meira lambakjötsbragð. Lesa meira
 

Ráðherra á Matís fundi: bindur vonir við þorskeldi - 26.9.2007

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra.Fiskeldi getur nýst afar vel við að byggja upp hagkvæma grein í íslenskum sjávarútvegi, ekki síst við firði á landsbyggðinni þar sem nægilegt rými er til staðar, að því er fram kom í máli Einars K. Guðfinnsonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á opnum fundi Matís um þorskeldi á Ísafirði. Hann segir að með því að hraða þróun í fiskeldi hér á landi sé mögulegt að margfalda framleiðslugetu fyrir greinina, skapa aukin atvinnutækifæri víða um land og útvega gott hráefni fyrir kröfuharða markaði. Hann varar hins vegar við gullgrafararstemmningu í tengslum við þorskeldið. Lesa meira
 

Opinn kynningarfundur um þorskeldi á Ísafirði - 25.9.2007

matisMatís heldur opinn kynningarfund á þorskeldi í Þróunarsetri Vestfjarða á morgun, miðvikudaginn 26. september. Á fundinum munu Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, Þorleifur Ágústsson, verkefnastjóri hjá Matís, og Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís, fjalla um stöðu og horfur fiskeldis hér á landi, einkum á Vestfjörðum. Þá mun Karl Almås, framkvæmdastjóri hjá SINTEF í Noregi, fjalla um fiskeldi í Noregi. Lesa meira
 

Matís óskar eftir aðstoðarmanni á rannsóknarstofu - 24.9.2007

matraMatís óskar eftir að ráða aðstoðarmann á rannsóknarstofu í Reykjavík. Helstu verkefni eru undirbúningur matvæla- og umhverfissýna.

Lesa meira
 

Grein frá Matís í JFS: Rannsókn á vinnslu fiskpróteina úr síld - 17.9.2007

Síldarvinnsla hjá SVN í NeskaupstaðÍ grein eftir þrjá starfsmenn Matís, sem birtist í septemberútgáfu vísindatímaritsins Journal of Food Science er fjallað um rannsóknir á áhrifum frystingar og frystigeymslu á gæði síldarflaka m.t.t. vinnslu próteina.

Lesa meira
 

Hvönn hefur áhrif á lambakjötsbragðið - 13.9.2007

Ráðherra gæðir sér á hvannalambi.Hvannabeit hefur áhrif á bragðgæði lambakjöts að því er fram kemur í rannsókn Matís (Matvælarannsóknir Íslands). Samkvæmt mati sérþjálfaðs hóps á Matís reyndust hvannalömbin hafa meiri kryddlykt og –bragð, en lömb í hefðbundnu beitarlandi höfðu meira lambakjötsbragð. Lesa meira
 

Lítil mengun þungmálma í hafinu kringum landið - 12.9.2007

sjorMengun þungmálma í hafinu umhverfis landið er almennt vel undir alþjóðlegum viðmiðunarmörkum, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Matís um breytingar á lífríki sjávar við landið. Þungmálmar eru frumefni sem eru upprunnir í náttúrunni en styrkur þeirra getur aukist vegna aðgerða manna (t.d. námuvinnslu). Lesa meira
 

Reykjagarður velur Matís - 11.9.2007

holtaReykjagarður, framleiðandi Holta kjúklings, hefur gert eins árs samning við Matís (Matvælarannsóknir Íslands) um mælingar á sýnum vegna öryggis- og gæðaeftirlits fyrirtækisins. Um er að ræða lögbundnar mælingar á Salmonella og Campylobacter í saursýnum frá kjúklingaeldishópum. Einnig verður safnað sýnum frá öðrum búum sem láta slátra alifuglum hjá Reykjagarði. Lesa meira
 

Bakteríu eytt með háþrýstimeðhöndlun - 11.9.2007

laxMatís (Matvælarannsóknir Íslands) hefur tekist að þróa aðferð sem eyðir á skömmum tíma bakteríu í sýktum laxi. Aðferðin, sem felst í háþrýstimeðhöndlun, tryggir öruggari neyslu á laxi og lengra geymsluþol án þess að hafa neikvæð áhrif á lit og áferð. Um er að ræða nýja nálgun á háþrýstingsmeðferð, sem var þróuð í Þýskalandi fyrir nokkrum árum. Með nýrri tækni er hægt að ná tilskyldum árangri á innan við 10 sekúndum í stað 15 mínútna áður. Lesa meira
 

Sjávarútvegsráðherra Líberíu heimsækir Matís - 6.9.2007

Franklín Georgsson sviðsstjóri á Matvælaöryggi Matís ræðir við sendinefndina frá Líberíu. Dr. Chris Toe sjávarútvegsráðherra Líberíu heimsótti Matís (Matvælarannsóknir Íslands) í ferð sinni hingað til lands. Starfsfólk Matís kynnti ráðherranum fyrir starfseminni og rannsóknarstofum fyrirtæksins á Skúlagötu. Þá var ráðherra fræddur um líftæknirannsóknir Prokaria, sem er hluti af Matís. Lesa meira
 

Svínakjöt: Nákvæmari niðurstöður með rafrænu mati - 28.8.2007

Nú hafa skapast forsendur til þess að innleiða rafrænt mat á svínaskrokkum í sláturhúsum, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Matís um niðurstöður mælinga á kjöthlutfalli svínakjöts. Með rafrænu mati, sem mælir hlutfall kjöts á svínaskrokkum, fást nákvæmari niðurstöður en hægt hefur verið að birta hingað til. Það auðveldar öll samskipti á milli sláturhúsa og bænda sem og sláturhúsa og kjötvinnslna þar sem verðlagning og kjöthlutfall verður látið haldast í hendur. Lesa meira
 

Erindi um nýja norræna matargerð - 22.8.2007

ISGEMMatvæli á Norðurlöndum eru talin búa yfir sérstökum eiginleikum sem bæta heilsu fólks. Helstu einkenni norrænna hráefna eru talin vera hreinleiki, bragðgæði og hollusta. Mads Holm, yfirmatreiðslumaður Norræna hússins, verður með erindi þann 25. ágúst um hvernig það hyggst vinna með hugmyndir og lögmál hinnar nýju norrænu matagerðar. Lesa meira
 

Mikilvægt að landa afla tímanlega - 22.8.2007

IMG_0376Mikilvægt er að afla sé landað tímanlega svo hægt sé að nýta hann betur því um leið og fiskur er veiddur rýrnar hann og tapar ferskleika. Þetta er umfjöllunarefni Guðbjargar Heiðu Guðmundsdóttur í meistaraverkefni sínu, sem nefnist Áætlanagerð fyrir hámarkshagnað í íslenska þorskiðnaðinum, í véla- og iðnaðarverkfræðiskor. Guðbjörg mun halda opinn fyrirlestur um verkefni sitt þann 24. september. Lesa meira
 

Heilsufullyrðingar: Dregið úr innsendum svörum - 20.8.2007

Nú er búið að draga úr innsendum svörum vegna könnunar um heilsufullyrðingar á matvælum. Hægt er að skoða vinningsnúmerin hér.

Lesa meira
 

Nýr norrænn matur: hvað er það? - 16.8.2007

norrann-maturAukin eftirspurn er eftir matvælum sem búa yfir sérstökum hreinleika og eiginleikum sem taldir eru bæta heilsu fólks. Norðurlönd hafa sterka stöðu hvað þetta varðar í alþjóðlegu samhengi og þá sérstöðu má nýta til að skapa viðskiptatækifæri. Einkum er talið er að byggðalög sem eiga undir högg að sækja efnahagslega geti nýtt þennan styrkleika sér til framdráttar. Lesa meira
 

Auglýst eftir líffræðingi með framhaldsmenntun - 14.8.2007

Matís (Matvælarannsóknir Íslands) auglýsir eftir líffræðingi með framhaldsmenntun. Starfssviðið felst í forgangs- og öryggisþjónustu í örverurannsóknum og þátttaka í vísindarannsóknum sem tengjast matvælum og umhverfi. Lesa meira
 

Matís leitar að verkefnastjóra - 10.8.2007

Matis_Logo_4CMatís (Matvælarannsóknir Íslands) leitar að starfskrafti í verkefnastjórastöðu í Reykjavík. Starfssviðið felur í sér umsjón og rekstur á verkefnastjórnunarkerfi; rekstur, samningar, árangur og starfsmannamál. Lesa meira
 

Hvað er mikil fita í lambavöðva? - 9.8.2007

ISGEMVissir þú að það er aðeins 0,6% fita í ýsu, 6% fita í lambavöðva en 30% fita í spægipylsu. Þá eru rúmlega 400 hitaeiningar (kcal) af kolvetni og alkahóli í hverjum lítra af bjór. Þessar upplýsingar og margar fleiri er hægt að finna í ÍSGEM gagnagrunninum um efnainnihald matvæla. Þar er að finna upplýsingar um 900 fæðutegundir. Lesa meira
 

Nýting flaka mismunandi eftir veiðisvæðum - 7.8.2007

RF-40848Nýting flaks af þorski sem er veiddur út af Suðausturlandi er betri heldur en af þorski sem er veiddur út af Norðurlandi. Þá er flakanýting betri á tímabilinu júní til ágúst miðað við aðra ársfjórðunga, að því er fram kemur í rannsókn Matís (Matvælarannsóknir Íslands) sem ber heitið Verkunarspá-tengsl hráefnisgæða við vinnslu og verkunarnýtingu þorskafurða. Lesa meira
 

Hilton hótelkeðjan velur íslenskan humar - 3.8.2007

Shrimps_at_market_in_ValenciaHilton hótelkeðjan keypti í sumar lifandi humar, sem geymdur hefur verið á humarhóteli á Höfn, sem Matís (Matvælarannsóknir Íslands) á aðild að. Humri frá Hornafirði hefur verið vel tekið á erlendum mörkuðum frá því að tilraunir með útflutning hófust í vor.

Lesa meira
 
Örbylgjuofn með aukabúnaði.

Örbylgjuofn með stýribúnaði og kristalsnemum - 30.7.2007

Matís notar ýmiskonar búnað og tæki til þess að vinna að rannsókna- og þróunarverkefnum, svo sem örbylgjuofn einn sem fyrirtækið hefur látið breyta allverulega fyrir vöruþróun. Búnaðurinn er notaður til þess að skoða hitun eða suðu á matvælum. Lesa meira
 

Tvær greinar frá Matís birtar í vísindaritum - 19.7.2007

Girnilegir bleikjubitarNýlega birtust tvær greinar eftir starfsfólk Matís í virtum erlendum vísindaritum. Annars vegar er um að ræða grein um undirkælingu á bleikju og hins vegar grein um geymsluþol og stöðugleika fiskdufts.

Lesa meira
 

Meira bragð: Lömb alin upp á hvönn - 14.7.2007

Kindur.Hafnar eru tilraunir á því að ala íslensk lömb upp á hvönn. Markmiðið er að kanna hversu mikil bragðgæði felast í því að ala lömb upp á bragðsterkum gróðri í stað hefðbundinnar sumarbeitar. Matís (Matvælarannsóknir Íslands) hyggst rannsaka hvaða áhrif hvannabeit hefur á bragð lambakjötsins. Lesa meira
 
Skaftarketill2

Leitað að óþekktum bakteríum í Skaftárkötlum - 11.7.2007

Matís tekur þátt í rannsóknum á lífríki lónsins í Skaftárkötlum og hefur umsjón með sýnatöku á örveruflóru þess. Vonir standa til að hægt verði að finna óþekktar tegundir örvera (bakteríur) sem hægt er að rannsaka frekar og nota í líftækni. Íshellan yfir lóninu er um 300 metra þykk og lónið um 100 metra djúpt og þarf sérstakan bræðslubor til þess að komast í gegnum íshelluna.

Lesa meira
 

ÍSGEM: efnainnihald í 900 fæðutegundum - 10.7.2007

Salat2Matís (Matvælarannsóknir Íslands) hefur opnað gagnagrunn um efnainnihald matvæla. Grunnurinn, sem ber nafnið ÍSGEM, inniheldur upplýsingar um efni í um 900 fæðutegundir hér á landi. Lesa meira
 

Harðfiskur er enn heilsusamlegri en talið var - 6.7.2007

HarðfiskurHarðfiskur er afar heilsusamleg fæða, létt, næringarrík og rík af próteinum, að því er fram kemur í nýrri rannsókn Matís á harðfiski sem heilsufæði. Þar kemur í ljós að harðfiskur er ríkulegur próteingjafi með 80-85% próteininnihald. Lesa meira
 
matur

Könnun um heilsufullyrðingar: Skilafrestur framlengdur - 4.7.2007

Íslendingar taka þátt í umfangsmikilli samnorrænni könnun á viðhorfum fólks í Evrópu til heilsufullyrðinga á matvælum. Niðurstöður könnunarinnar verða nýttar í tengslum við nýja reglugerð um heilsufullyrðingar í matvælum sem nú er að taka gildi innan Evrópusambandsins. Matís (Matvælarannsóknir Íslands) annars framkvæmd könnunarinnar hér á landi. Lesa meira
 

Fréttabréf Matís: Erfðagreindur þorskur og sjálfbærni - 27.6.2007

untitled5. tölublað fréttabréf Matís er komið út. Þar er að finna fréttir um alþjóðlegan vinnufund um sjálfbærni í sjávarútvegi sem fram fór á Sauðárkróki, áhugaverðar niðurstöður rannsókna Prokaria um erfðagreiningu á þorski og upplýsingar um líf- og erfðatækniafurðir Matís. Þá er vakin athygli á fimm stöðum sem Matís auglýsti fyrir starfsstöðvar í Reykjavík og á Akureyri. Hægt er að skoða nýjasta fréttabréfið hér.
 
matur

Heilsufullyrðingar á matvælum: Skilafrestur framlengdur - 25.6.2007

Ákveðið hefur verið að framlengja frest til þess að skila svörum í könnun á viðhorfum til heilsufullyrðinga á matvælum til næstu mánaðamóta. Bilun varð í hugbúnaði sem gerði hluta af þátttakendum erfitt um vik að svara spurningunum. Nú er hugbúnaðurinn kominn í lag og því geta þátttakendur skilað inn svörum. Lesa meira
 

Matís auglýsir eftir starfsfólki - 22.6.2007

Matis_Atvinna_070624_05Matís auglýsir eftir starfsfólki í fimm stöður í Reykjavík og á Akureyri vegna mikilla umsvifa. Auglýst er eftir sérfræðingi í skynmati, bókasafnsfræðingi, aðstoðarmanneskju á rannsóknastofu, verkefnastjóra og sérfræðingi í varnarefnamælingum. Lesa meira
 

Aðferð þróuð til erfðagreiningar á þorski - 21.6.2007

MI-005277Prokaria, líftæknideild Matís (Matvælarannsókir Íslands) hefur tekist að þróa aðferð sem hægt er að nota til erfðagreiningar á þorski. Slík aðferð er ákaflega mikilvæg fyrir rekjanleika á afkvæmum til foreldra í kynbótastarfi, vegna stofngreininga í stofnvistfræðirannsóknum, upprunagreininga eða vegna hugsanlegra vörusvika. Prokaria vinnur að því að verja uppgötvunina með einkaleyfi. Lesa meira
 

Íslendingar séu virkir þátttakendur í sjálfbærni - 15.6.2007

Gísli Svan Einarsson, framkvæmdastjóri Versins-Vísindagarða í Skagafirði, Sveinn Margeirsson, Matís, og Ólavur Gregersen, verkefnastjóri Sustainable Food Information.Krafa um sjálfbærni í sjávarútvegi eykst sífellt og því mikilvægt að íslensk fyrirtæki taki virkan þátt í þróun á því sviði. Á alþjóðlegum vinnufundi Matís, sem fram fór á Sauðárkróki, kom fram að fjölmörg sóknarfæri eru til staðar í sjálfbærri þróun í sjávarútvegi en nauðsynlegt er að Íslendingar haldi vöku sinni svo þeir eigi þess kost að vera framarlega í umræðu um slík mál í alþjóðlegu tilliti. Lesa meira
 

Áríðandi orðsending til þátttakenda í neyslukönnun! - 14.6.2007

Eins og margir "góðkunningjar" Matís vita, þá er nú í gangi könnun á viðhorfum til heilsufullyrðinga á matvælum þar sem um 2500 manns taka þátt. Vegna biluar í hugbúnaði er vefsíða, sem þátttakendur eiga að fara á til að svara spurningum, tímabundið óvirk, en vonast er til að vefsíðan verði komin í lag á næstu 1-2 dögum.

Lesa meira
 

Síauknar kröfur gerðar um sjálfbærni - 13.6.2007

SjalfbaerniSíauknar kröfur eru um að seljendur sjávarafurða byggi veiðar á sjálfbærni, segir í grein Óla Kristjáns Ármannssonar í nýjasta Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins. Þar er rætt við Svein Margeirsson, deildarstjóra hjá Matís, sem segir að sjálfbærni kunna að vera aðgöngumiða að dýrari verslunarkeðjum erlendis. Þetta skipti ekki síst máli fyrir sjávarútveg þegar mögulegur samdráttur í þorskveiðum standi fyrir dyrum. Lesa meira
 

Matís svarar kalli Tesco um koldíoxíðmerkingar - 8.6.2007

Fiskur2Matís (Matvælarannsóknir Íslands) vinnur að verkefni sem munu nýtast íslenskum útflytjendum við að koma til móts við kröfur Tesco um koldíoxíðmerkingar matvæla. Lesa meira
 

Mikill áhugi á vinnufundi um sjálfbærni - 7.6.2007

sjalfbaerniMikill áhugi er fyrir alþjóðlegum vinnufundi um sjálfbærni í sjávarútvegi, sem fram fer á Sauðárkróki þann 14. júní næstkomandi. Um 20 manns frá fyrirtækjum í Færeyjum eru væntanlegir til landsins í tengslum við vinnufundinn. Vinnufundurinn er hluti af vestnorrænu verkefni sem nefnist “Sustainable Food Information” sem hefur það að markmiði að auðvelda fyrirtækjum í matvælaiðnaði, svo sem sjávarútvegsfyrirtækjum, að sýna fram á sjálfbærni í veiðum, vinnslu og sölu. Lesa meira
 

Lyktað af misgömlum fiski - 3.6.2007

Hatid_hafsins_2Fjölmenni hefur lagt leið sína á Hátíð hafsins á miðbakknum í Reykjavík um helgina. Þar kynna fyrirtæki og stofnanir starfsemi og þjónustu sína fyrir gestum. Meðal þess sem í boði er á miðbakkanum er svokallað skynmat hjá Matís (Matvælarannsóknir Íslands) þar sem gestum gefst tækifæri á því að giska á lykt úr lyktarglösum og skoða mismunandi gamlan fisk, annars vegar nýjan og svo hins vegar nokkurra daga gamlan, með tilliti til ferskleika, áferðar og lyktar. Lesa meira
 

Starfsmenn Lýsis hf í skynmati hjá Matís - 1.6.2007

Starfsfólk Lýsis í skynmati hjá MatísFyrir nokkrum dögum var lítill hópur starfsmanna frá Lýsi hf. á námskeiði í skynmati á Matís. Markmið námskeiðsins var að þjálfa starfsmennina í aðferðum við að gæðameta lýsi.

Lesa meira
 

Fundur í EuroFIR verkefninu - 25.5.2007

Fundur á Matís í EuroFIR-verkefninu 25. maí 2007Ísland er aðili að evrópsku öndvegisneti (Network of Excellence) um efnainnihald matvæla og leiðir til að miðla upplýsingunum með gagnagrunnum og interetinu. Verkefnið gengur undir heitinu EuroFIR og heyrir undir 6. rammaáætlun ESB. Matís stýrir íslenska hluta verkefnisins og nú stendur yfir tveggja daga fundur í verkefninu, sem haldinn er í húsakynnum Matís á Skúlagötu 4. Á fundinum er fjallað um lífvirk efni í matvælum, en unnið er að sérstökum evrópskum gagnagrunni um þessi efni.

Lesa meira
 

Nýjar aðferðir í saltfiskverkun efla markaðsstöðu - 24.5.2007

Saltfiskur á markaði á Spáni.Saltfiskverkun hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum. Slík verkun byggðist áður á einfaldri stæðusöltun en nýjar aðferðir við verkun hafa skilað framleiðendum allt að því 15% aukningu í heildarnýtingu, segir í grein Krístinar Þórarinsdóttur og Sigurjóns Arasonar hjá Matís (Matvælarannsóknir Íslands).

Lesa meira
 

Sjálfbær sjávarútvegur - 23.5.2007

IMG_0391Vinnufundur íslenskra og færeyskra aðila um sjálfbærni í sjávarútvegi fer fram á Sauðárkróki þann 14. júní. Fundurinn er hluti af vestnorrænu verkefni sem nefnist "Sustainable Food Information" sem hefur það að markmiði að auðvelda fyrirtækjum í matvælaiðnaði, svo sem sjávarútvegsfyrirtækjum, að sýna fram á sjálfbærni í veiðum, vinnslu og sölu.

Matvælarannsóknir Íslands (Matís) annast skipulagningu fundarins, sem er eingöngu ætluð aðilum í sjávarútvegi.

Lesa meira
 
Eldisþorskur

Nýjar rannsóknir sýna enn og aftur fram á öryggi íslensks fisks - 22.5.2007

Í nýrri Matísskýrslu, sem nefnist Verðmæti og öryggi íslenskra sjávarafurða. Áhættusamsetning og áhætturöðun er fjallað um grunnvinnu að áhættumati fyrir þorsk, rækju, karfa, ýsu, grálúðu, síld, ufsa og kúfisk. Þessar tegundir voru kortlagðar m.t.t. hugsanlegrar áhættu varðandi neyslu þeirra og fékkst þannig fram áhættusamsetning þeirra og hálf-magnbundið áhættumat framkvæmt á þeim.

Lesa meira
 

Morgunblaðið fjallar um kosti ofurkælingar - 11.5.2007

SigurjonMeð svokallaðri ofurkælingu á fiskflökum og flakastykkjum er hægt að auka geymsluþol flakanna verulega, bæta gæði þeirra og fá hærra verð á erlendum fiskmörkuðum, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag, 11. maí. Þar er rætt við Sigurjón Arason, deildarstjóra hjá Matís, um kosti ofurkælingar. Matís hefur unnið að þróun slíkrar aðferðar með fiskvinnslu og árangurinn lætur ekki á sér standa, að því er fram kemur í Morgunblaðinu. Lesa meira
 

Aðalfundur Matís - 9.5.2007

matis_matisprokaria_logo3Aðalfundur Matís ohf. fyrir 2006 var haldinn þriðjudaginn 8. maí í samræmi við lög. félagsins Um var að ræða fund vegna undirbúningstímabisins 14 september sl. til áramóta þegar unnið var að undirbúningi að stofnun Matís en félagið tók til starfa 1. janúar 2007. Lesa meira
 

Ný Matísskýrsla um rannsóknir á mýósíni úr þorski - 7.5.2007

Skýrslan ber titilinn Characterization of cod myosin aggregates using static and dynamic light scattering og fjallar um rannsóknir sem gerðar voru á Matís á mýósín úr þorski.

Lesa meira
 

Vaxtarhraði þorsks í sjókvíaeldi aukinn með ljósum - 4.5.2007

Tekin blóðsýni úr þorskiHægt er að auka vaxtahraða þorsks í sjókvíaeldi með náttúrulegri aðferð, að því er fram kemur í niðurstöðum úr Evrópuverkefninu CODLIGHT-TECH sem stýrt er af vísindamönnum hjá Matvælarannsóknum Íslands (Matís). Niðurstöður benda til að hægt sé að hvetja vöxt og hægja á kynþroska hjá þorski í sjókvíaeldi. Þessar niðurstöður eru nýnæmi og mikilvægar í þeirri þróun sem á sér stað í þorskeldi í heiminum en þær geta stuðlað að því að eldistími styttist, fóðurnýting batni og þorskeldi geti orðið hagkvæmara. Lesa meira
 
Fiskeldi í sjókvíum

Fundur á Ísafirði í Codlight-verkefninu - 2.5.2007

Nokkuð hefur verið fjallað að undanförnu um verkefni sem Matís vinnur m.a. að og kallast Codlight, en það miðar m.a. að því að seinka kynþroska eldisþorsks með notkun sérstakra ljósa. Í dag og á morgun eru fundarhöld á Ísafirði í verkefninu.

Lesa meira
 
Lógó NMKL

Leiðbeiningar um skynmat á matvælaumbúðum - 30.4.2007

Norræn nefnd um aðferðafræði sem tengist matvælum (NMKL) hefur gefið út leiðbeiningar um skynmat á matvælaumbúðum. Þær eru á sænsku og kallast Riktlinjer för sensorisk bedömning av livsmedelsförpackningar og meðal höfunda er Emilía Martinsdóttir, verkefnastjóri á Matís.

Lesa meira
 

Fengu sér humar við opnun starfsstöðvar á Höfn - 30.4.2007

Starfsstod_Matis_a_Hofn_1Árni Mathiesen fjármálaráðherra opnaði með formlegum hætti starfsstöð Matís (Matvælarannsóknir Íslands) og Humarhótel á Höfn í Hornafirði í dag. Við opnunina fengu ráðherra og Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Matís að gæða sér á ferskum leturhumri frá Humarhótelinu. Lesa meira
 

Matís opnar starfsstöð á Höfn - 29.4.2007

HumarStarfsstöð Matís á Höfn verður opnuð með formlegum hætti á mánudag, 30. apríl. Meðal gesta við opnunina verða Árni Mathiesen, fjármálaráðherra og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís, og Hjalti Vignisson, bæjarstjóri Hafnar. Þá verður gestum sagt frá starfsemi Humarhótelsins, sem er samstarfsverkefni Matís og Frumkvöðlaseturs Austurlands.
 

Matís auglýsir eftir starfsfólki á Vestfjörðum og í Reykjavík - 28.4.2007

VestfMatís auglýsir eftir nokkrum starfsmönnum á Vestfjörðum og í Reykjavík. Á Vestfjörðum er auglýst eftir verkefnastjóra Aflakaupabanka, sérfræðingi við sértækar mælingar og verkefnastjóra á sviði vinnslutækni. Lesa meira
 
Kynningarfundur á Sauðárkróki 25. apríl 2007: Verið Vísindagarðar

Verið Vísindagarðar á Sauðárkróki tekur til starfa - 26.4.2007

Í gær var fyrirtækið Verið Vísindagarðar ehf. kynnt á opnum fundi á Sauðárkróki. Eitt af meginmarkmiðum Versins er að stuðla að uppbyggingu atvinnulífs, efla rannsóknir og námsframboð og auka verðmætasköpun í samvinnu við fyrirtæki á svæðinu.

Lesa meira
 
Íslenskur humar í Brussel

Lifandi humrar frá Íslandi vekja athygli á sjávarútvegssýningunni í Brussel - 26.4.2007

Nokkur hundruð lifandi leturhumrar frá Íslandi, sem fluttir voru á sjávarútvegssýninguna European Seafood Exposition í Brussel í Belgíu, vöktu mikla athygli sýningargesta.

Lesa meira
 
Verið, Sauðárkróki

Kynningarfundur um tækni og vísindi í Skagafirði - 23.4.2007

Miðvikudaginn 25. apríl milli kl. 16-18 verður opið hús í Verinu-Þróunarsetrinu v/höfnina á Sauðárkróki þar sem ýmis nýsköpunarverkefni, sem unnið er að á svæðinu verða kynnt. Tilefnið er stofnun nýs fyrirtækis sem nefnist Verið Vísindagarðar ehf.

Lesa meira
 
fiskur á pönnu

Ábrystir, beinakæfa, grjúpán, selabaggi? - Nei, takk! - 17.4.2007

Flest áhugafólk um matargerð kannast við Nouvelle cuisine eða Haute cuisine sem öðlaðist vinsældir í Frakklandi á 8. áratug síðustu aldar, þar sem áhersla var lögð á léttan og hollan mat, t.d. mikið af grænmeti og léttar sósur í stað hinnar hefðbundnu, þungu frönsku matargerðar með hveitisósum og tilheyrandi rjómanotkun. Nú er komið að norrænni matargerð að ganga í endurnýjun lífdaga.

Lesa meira
 

Sérfræðingur óskast til starfa á Akureyri - 13.4.2007

auglysingMatís ohf. (Matvælarannsóknir Íslands) óskar eftir að ráða drífandi og duglegan sérfræðing til starfa hjá fyrirtækinu á Akureyri. Umsóknarfrestur er til 30. apríl.

Lesa meira
 
Eldisþorskur í sjókvíum

Að borða eldisfisk er samviskuspurning - 13.4.2007

Umræða um velferð dýra og umhverfisvæna matvælaframleiðslu hefur færst í aukana á undanförnum árum. Umræðan tekur á sig ýmsar myndir og blandast þar inn í ólíkustu baráttumál, eins og nýlegar fréttir frá Bretlandi um þrýsting hvalveiðiandstæðinga á verslanakeðjur um að selja ekki fisk frá ákveðnum íslenskum fyrirtækjum vitnar t.d. um.

Lesa meira

 

Staða verkefnastjóra Matís í Vestmannaeyjum er laus - 12.4.2007

erfdataekniMatís ohf. auglýsir eftir verkefnastjóra í Vestmannaeyjum. Hlutverk verkefnistjórans er að stjórna og vinna að verkefnum á vegum Matís ohf. í Vestmannaeyjum. Æskilegt er að umsækjendur að hafi tækni- eða háskólapróf í raunvísindum eða verkfræði. Lesa meira
 

Fundið fé í bolfiskvinnslu - 11.4.2007

Flök af þorski metinMikill fjárhagslegur og umhverfislegur ávinningur felst í því að nýta fiskhold eða prótein sem tapast í bolfiskvinnslu. Verðmæti geta numið hundruð milljóna króna miðað við það 60 þúsund tonna ársframleiðslu af ferskum og frosnum bolfiskafurðum. Þá fer minna af lífrænum efnum út í umhverfið með því að nýta fiskhold eða prótein í vinnslunni, að því er fram kemur í rannsókn Matís (Matvælarannsóknir Íslands), Brims og Toppfisks. Lesa meira

 

Hamingjusamir eldisfiskar - 3.4.2007

Þorskur í sjókvíum á VestfjörðumMatvælarannsóknir Íslands (Matís) og Háskólinn á Hólum taka þátt í umfangsmiklu Evrópuverkefni sem felst í því að rannsaka velferð fiska í eldi. Markmiðið er að skilgreina hvað veldur streitu og vanlíðan fiska. 60 rannsóknahópar frá yfir 20 löndum taka þátt í verkefninu sem stendur í 5 ár. Lesa meira

 

Mælingar á mengunarefnum í matvælum til Akureyrar - 29.3.2007

Heimsokn_bajarstjora_AkureyrarMatís á Akureyri hefur tekið við mælingum á mengunarefnum í matvælum. Um er að ræða nýtt svið sem mun stórefla starfsemi Matís á Akureyri. Sviðið mun sinna rannsóknum og mælingum á mengunarefnum í matvælum, svo sem magni skordýraeiturs, plöntueiturs og annarra lífrænna mengunarefna sem safnast upp í umhverfinu. Lesa meira
 

Matís auglýsir eftir viðskiptafræðingi - 28.3.2007

Matís ohf. (Matvælarannsóknir Íslands) óskar eftir að ráða drífandi og metnaðarfullan einstakling í starf viðskiptafræðings hjá fyrirtækinu. Lesa meira
 

Útflutningur á lifandi humar - 26.3.2007

HumarHafnar eru tilraunaveiðar á humri á Höfn í Hornafirði með það fyrir augum að flytja út lifandi humar frá humarhóteli Matís á markað erlendis um páskahátíðina, að því er fram kemur í nýjustu Fiskifréttum. Lesa meira
 

Þorskeldi: mögulegt að stórlækka fóðurkostnað - 24.3.2007

EldisþorskurMögulegt er að lækka fóðurkostnað í þorskeldi allverulega með nýrri samsetningu af fóðri, að því er fram kemur í rannsóknum Matís og samstarfsaðila. Niðurstöður rannsókna sýna að lækka má kostnað á fóðri fyrir eldisþorsk um amk. 25%, sem þýðir 12-15% lækkun framleiðslukostnaðar í þorskeldi. Niðurstöður rannsóknanna hafa þegar verið nýttar að hluta við fóðurframleiðslu hjá Laxá hf og eru þær mikilvægt skref í þá átt að gera eldi á þorski enn arðbærara. Lesa meira
 

Nýstarlegt fiskiker dregur úr rýrnun fisks - 23.3.2007

Promens Dalvík, áður þekkt sem Sæplast, hefur hafið framleiðslu á nýstárlegu fiskikeri sem er léttara en önnur ker og með meira inntaksrúmmál en áður hefur þekkst. Hönnun keranna gerir það að verkum að þau draga úr rýrnun og mari á fiski og bæta gæði hráefnis. Fiskikerið er þróað í samvinnu við Matís ohf. (Matvælarannsóknir Íslands) og FISK Seafood á Sauðárkróki og til verkefnisins fékkst styrkur hjá AVS. Lesa meira
 
Formaður fiskur

Átta Rf skýrslur opnaðar - 22.3.2007

Nýlega voru átta Rf skýrslur, sem höfðu verið lokaðar tímabundið eftir að vinnu í viðkomandi verkefnum lauk, opnaðar. Skýrslurnar eru frá árunum 2003 og 2005.

Lesa meira
 

Minnkandi fiskneysla sögð áhyggjuefni - 19.3.2007

Sjávarútvegsráðherra á blaðamannafundi um niðurstöður rannsóknarinnar í Sjóminjasafninu.Fiskneysla ungs fólks fer minnkandi og ef ekkert verður að gert mun hún halda áfram að minnka á komandi árum. Þar kom fram að matarvenjur í æsku hafa mótandi áhrif á neyslu síðar meir. Einnig kemur fram munur á fiskneyslu eftir landshlutum og þá virðast ungar konur hrifnar af fiski og grænmeti en ungir karlar eru hrifnari af skyndibita og kjöti. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra, sem tók þátt í fundinum, sagði niðurstöðu þessarar rannsóknar vera áhyggjuefni.

Lesa meira
 

Ferskleiki ávaxta og grænmetis: Rétt hitastig er mikilvægt - 15.3.2007

ÁvextirÞað er afar mikilvægt að velja rétt hitastig til þess að viðhalda gæðum og ferskleika ávaxta og grænmetis frá því að varan er tínd og þar til hún endar í maga fólks. Lesa meira
 

Fiskeldi vex hröðum skrefum á heimsvísu - 14.3.2007

EldisþorskurFiskeldi er stór hluti af framleiðslu á sjávarfangi og fer stækkandi á heimsvísu og því mikilvægt fyrir Íslendinga að vera virkir þátttakendur í rannsóknum og þróun á þessu sviði, segir Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Matís í samtali við Viðskiptablaðið. Lesa meira
 

Stefnt að fjölgun stöðugilda á Akureyri - 9.3.2007

ProkariaMatís á Akureyri (Matvælarannsóknir Íslands) hefur tekið í notkun myndgreinibúnað sem mun stórefla rannsóknir fyrirtækisins á svæðinu. Þegar hefur verið fjölgað um hálft stöðugildi og stefnt að því að fjölga um nokkur stöðugildi til viðbótar með frekari eflingu rannsókna á þessu sviði.

Lesa meira
 

Íslenskur kjötiðnaður á tímamótum - 1.3.2007

Íslenskar kindurÍslensk kjötframleiðsla og kjötiðnaður standa á tímamótum. Innflutningsvernd mun minnka og enn meiri kröfur verða um hagræðingu og lægra verð, að því er fram kom í erindi Guðjóns Þorkelssonar sviðsstjóra hjá Matís á Fræðaþingi landbúnaðarins.

Lesa meira
 

Deildarstjóri yfir vöruþróun og neytendarannsóknum - 21.2.2007

ÞorbjörgDr. Þorbjörg Jensdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri yfir vöruþróun og neytendarannsóknum hjá Matvælarannsóknum Íslands (Matís ohf.). Hjá Matís mun Þorbjörg hafa umsjón með nýsköpun og matvælarannsóknum sem meðal annars byggja á þörfum neytenda. Lesa meira
 
Sjóeldiskvíar Rf á Vestfjörðum

Óléttupróf fyrir þorsk? - 20.2.2007

Stór þáttur í starfsemi Matís tengist fiskeldi og eru rannsóknir á því sviði af ýmsum toga og unnin í samstarfi við bæði innlenda og erlenda aðila. Nýlega voru gangsettir verkefnavefir í tveimur Evrópuverkefnum sem Matís tekur þátt í.

Lesa meira
 

Fiskprótein geta aukið verðmæti fiskafurða - 19.2.2007

Með því að nýta fiskprótein sem unnið er úr afskurði sem fellur til við fiskvinnslu má auka verðmæti fiskafurða um allt að 3 milljarða króna, segir í grein Fiskifrétta um Matís og fyrirtæki þess, Iceprotein, á Sauðárkróki. Lesa meira
 

Ný Matísskýrsla: Nýtt matskerfi fyrir kindakjöt hefur reynst vel - 16.2.2007

Árið 1998 var tekið upp á Íslandi nýtt kjötmat fyrir kindakjöt samkvæmt sk. EUROP-kerfi, en í því eru skrokkar flokkaðir eftir fitu og holdfyllingu mun nákvæmar en áður tíðkaðist. Í sláturtíðinni 2003 0g 2004 var gerð úttekt á virkni EUROP-kerfisins hér á landi og nú er komin út skýrsla á Matís með niðurstöðum þeirrar könnunar.

Lesa meira
 

Íshúðun lengir geymsluþol frystrar vöru - 15.2.2007

Í fiskiðnaði hefur íshúðun frosinna fiskafurða verið stunduð í áratugi með það að markmiði að tryggja gæði afurðanna og lengja geymsluþol. Íshúðun á því ekkert skilt við vatn sem dælt er inn í matvæli í öðrum tilgangi. Íshúð er hins vegar ódýr og góð lausn og í raun sú besta sem til er til að vernda lausfrystar fiskafurðir. Lesa meira
 
Íslenskar kindur

Matís með veggspjöld á Fræðaþingi 2007 - 13.2.2007

Fræðaþing landbúnaðarins verður haldið dagana 15. -16. febrúar 2007 í húsakynnum Íslenskrar erfðagreiningar og í Ráðstefnusölum Hótel Sögu. Nokkrir sérfræðingar Matís eiga veggspjöld á Fræðaþinginu að þessu sinni.

Lesa meira
 

Humarhótel Matís á Höfn vekur athygli - 11.2.2007

Hægt er að fá allt að því þrisvar sinnum hærra verð fyrir lifandi humar heldur humar sem er seldur frystur, að því er fram kom í þættinum Krossgötur á Rás 1. Lesa meira
 

Arðvænleg verkefni hjá Matís - 7.2.2007

Áhersla verður lögð á arðvænleg rannsóknarverkefni í samvinnu við atvinnulífið, að því er fram kemur í viðtali Markaðarins við Sjöfn Sigurgísladóttur, forstjóra Matís ohf. Þar kemur fram að áherslur séu að nokkur leyti aðrar en þær sem einkenndur stofnanirnar sem runnu inn í félagið. Lesa meira
 
NMR-fundur 1. febrúar 2007

Notkun NMR- tækni og segulómun í matvælarannsóknum: Ráðstefna 2008 - 1.2.2007

Í september 2008 verður haldin ráðstefna hér á landi um notkun NMR (Nuclear Magnetic Resonance) tækni og segulómun (Magnetic Resonance Imaging) í matvælarannsóknum. Matís og Háskóli Íslands munu sjá um undirbúning ráðstefnunnar hér á landi.

Lesa meira

 
Sigurjón Arason

Grein eftir sérfræðing Matís þýdd á persnesku - 29.1.2007

Einn helsti sérfræðingur landsins um nýtingu aukaafurða úr sjávarfangi er án vafa Sigurjón Arason verkfræðingur og deildarstjóri Vinnsludeildar Matís. Nýlega birtist grein um þetta efni eftir hann á persnesku á vefnum Iranfisheries.net Lesa meira
 

Nemendur MA og VMA þátttakendur í Matísverkefni - 26.1.2007

Á síðasta ári hófst verkefni sem ætlað er að stuðla að aukinni neyslu sjávarafurða, einkum meðal ungs fólks.  Nýlega tóku nemendur í Menntaskólanum á Akureyri og Verkmenntaskóla Akureyrar þátt í neytendakönnun, sem er hluti af verkefninu.  Lesa meira
 
Lambaskrokkar í kæligeymslu

Fyrsta skýrsla Matís fjallar um áhrif kælihraða á gæði lambakjöts - 24.1.2007

Fyrsta skýrslan sem gefin er út á vegum Matís ohf fjallar um rannsóknir á því hvernig kælihraði hefur áhrif á gæði lambakjöts. Þar kemur m.a. fram að undanfarin ár hefur vélkæling í kjötsal sláturhúsa aukist verulega og kæling í kjöti er því hraðari en áður tíðkaðist, sem stundum vill koma niður á gæðum kjötsins.

Lesa meira

 


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica