Okkar rannsóknir, allra hagur

2007 - Febrúar

Deildarstjóri yfir vöruþróun og neytendarannsóknum - 21.2.2007

ÞorbjörgDr. Þorbjörg Jensdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri yfir vöruþróun og neytendarannsóknum hjá Matvælarannsóknum Íslands (Matís ohf.). Hjá Matís mun Þorbjörg hafa umsjón með nýsköpun og matvælarannsóknum sem meðal annars byggja á þörfum neytenda. Lesa meira
 
Sjóeldiskvíar Rf á Vestfjörðum

Óléttupróf fyrir þorsk? - 20.2.2007

Stór þáttur í starfsemi Matís tengist fiskeldi og eru rannsóknir á því sviði af ýmsum toga og unnin í samstarfi við bæði innlenda og erlenda aðila. Nýlega voru gangsettir verkefnavefir í tveimur Evrópuverkefnum sem Matís tekur þátt í.

Lesa meira
 

Fiskprótein geta aukið verðmæti fiskafurða - 19.2.2007

Með því að nýta fiskprótein sem unnið er úr afskurði sem fellur til við fiskvinnslu má auka verðmæti fiskafurða um allt að 3 milljarða króna, segir í grein Fiskifrétta um Matís og fyrirtæki þess, Iceprotein, á Sauðárkróki. Lesa meira
 

Ný Matísskýrsla: Nýtt matskerfi fyrir kindakjöt hefur reynst vel - 16.2.2007

Árið 1998 var tekið upp á Íslandi nýtt kjötmat fyrir kindakjöt samkvæmt sk. EUROP-kerfi, en í því eru skrokkar flokkaðir eftir fitu og holdfyllingu mun nákvæmar en áður tíðkaðist. Í sláturtíðinni 2003 0g 2004 var gerð úttekt á virkni EUROP-kerfisins hér á landi og nú er komin út skýrsla á Matís með niðurstöðum þeirrar könnunar.

Lesa meira
 


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica