Okkar rannsóknir, allra hagur

2007 - Mars

Mælingar á mengunarefnum í matvælum til Akureyrar - 29.3.2007

Heimsokn_bajarstjora_AkureyrarMatís á Akureyri hefur tekið við mælingum á mengunarefnum í matvælum. Um er að ræða nýtt svið sem mun stórefla starfsemi Matís á Akureyri. Sviðið mun sinna rannsóknum og mælingum á mengunarefnum í matvælum, svo sem magni skordýraeiturs, plöntueiturs og annarra lífrænna mengunarefna sem safnast upp í umhverfinu. Lesa meira
 

Matís auglýsir eftir viðskiptafræðingi - 28.3.2007

Matís ohf. (Matvælarannsóknir Íslands) óskar eftir að ráða drífandi og metnaðarfullan einstakling í starf viðskiptafræðings hjá fyrirtækinu. Lesa meira
 

Útflutningur á lifandi humar - 26.3.2007

HumarHafnar eru tilraunaveiðar á humri á Höfn í Hornafirði með það fyrir augum að flytja út lifandi humar frá humarhóteli Matís á markað erlendis um páskahátíðina, að því er fram kemur í nýjustu Fiskifréttum. Lesa meira
 

Þorskeldi: mögulegt að stórlækka fóðurkostnað - 24.3.2007

EldisþorskurMögulegt er að lækka fóðurkostnað í þorskeldi allverulega með nýrri samsetningu af fóðri, að því er fram kemur í rannsóknum Matís og samstarfsaðila. Niðurstöður rannsókna sýna að lækka má kostnað á fóðri fyrir eldisþorsk um amk. 25%, sem þýðir 12-15% lækkun framleiðslukostnaðar í þorskeldi. Niðurstöður rannsóknanna hafa þegar verið nýttar að hluta við fóðurframleiðslu hjá Laxá hf og eru þær mikilvægt skref í þá átt að gera eldi á þorski enn arðbærara. Lesa meira
 


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica