janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember

Norræn nefnd um aðferðafræði sem tengist matvælum (NMKL) hefur gefið út leiðbeiningar um skynmat á matvælaumbúðum. Þær eru á sænsku og kallast Riktlinjer för sensorisk bedömning av livsmedelsförpackningar og meðal höfunda er Emilía Martinsdóttir, verkefnastjóri á Matís.
Lesa meira
Árni Mathiesen fjármálaráðherra opnaði með formlegum hætti starfsstöð Matís (Matvælarannsóknir Íslands) og Humarhótel á Höfn í Hornafirði í dag. Við opnunina fengu ráðherra og Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Matís að gæða sér á ferskum leturhumri frá Humarhótelinu.
Lesa meira
Starfsstöð Matís á Höfn verður opnuð með formlegum hætti á mánudag, 30. apríl. Meðal gesta við opnunina verða Árni Mathiesen, fjármálaráðherra og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís, og Hjalti Vignisson, bæjarstjóri Hafnar. Þá verður gestum sagt frá starfsemi Humarhótelsins, sem er samstarfsverkefni Matís og Frumkvöðlaseturs Austurlands.
Matís auglýsir eftir nokkrum starfsmönnum á Vestfjörðum og í Reykjavík. Á Vestfjörðum er auglýst eftir verkefnastjóra Aflakaupabanka, sérfræðingi við sértækar mælingar og verkefnastjóra á sviði vinnslutækni.
Lesa meira
Í gær var fyrirtækið Verið Vísindagarðar ehf. kynnt á opnum fundi á Sauðárkróki. Eitt af meginmarkmiðum Versins er að stuðla að uppbyggingu atvinnulífs, efla rannsóknir og námsframboð og auka verðmætasköpun í samvinnu við fyrirtæki á svæðinu.
Lesa meira
Nokkur hundruð lifandi leturhumrar frá Íslandi, sem fluttir voru á sjávarútvegssýninguna European Seafood Exposition í Brussel í Belgíu, vöktu mikla athygli sýningargesta.
Lesa meira
Miðvikudaginn 25. apríl milli kl. 16-18 verður opið hús í Verinu-Þróunarsetrinu v/höfnina á Sauðárkróki þar sem ýmis nýsköpunarverkefni, sem unnið er að á svæðinu verða kynnt. Tilefnið er stofnun nýs fyrirtækis sem nefnist Verið Vísindagarðar ehf.
Lesa meira
Flest áhugafólk um matargerð kannast við Nouvelle cuisine eða Haute cuisine sem öðlaðist vinsældir í Frakklandi á 8. áratug síðustu aldar, þar sem áhersla var lögð á léttan og hollan mat, t.d. mikið af grænmeti og léttar sósur í stað hinnar hefðbundnu, þungu frönsku matargerðar með hveitisósum og tilheyrandi rjómanotkun. Nú er komið að norrænni matargerð að ganga í endurnýjun lífdaga.
Lesa meira
Matís ohf. (Matvælarannsóknir Íslands) óskar eftir að ráða drífandi og duglegan sérfræðing til starfa hjá fyrirtækinu á Akureyri. Umsóknarfrestur er til 30. apríl.
Umræða um velferð dýra og umhverfisvæna matvælaframleiðslu hefur færst í aukana á undanförnum árum. Umræðan tekur á sig ýmsar myndir og blandast þar inn í ólíkustu baráttumál, eins og nýlegar fréttir frá Bretlandi um þrýsting hvalveiðiandstæðinga á verslanakeðjur um að selja ekki fisk frá ákveðnum íslenskum fyrirtækjum vitnar t.d. um.
Matís ohf. auglýsir eftir verkefnastjóra í Vestmannaeyjum. Hlutverk verkefnistjórans er að stjórna og vinna að verkefnum á vegum Matís ohf. í Vestmannaeyjum. Æskilegt er að umsækjendur að hafi tækni- eða háskólapróf í raunvísindum eða verkfræði.
Lesa meira
Mikill fjárhagslegur og umhverfislegur ávinningur felst í því að nýta fiskhold eða prótein sem tapast í bolfiskvinnslu. Verðmæti geta numið hundruð milljóna króna miðað við það 60 þúsund tonna ársframleiðslu af ferskum og frosnum bolfiskafurðum. Þá fer minna af lífrænum efnum út í umhverfið með því að nýta fiskhold eða prótein í vinnslunni, að því er fram kemur í rannsókn Matís (Matvælarannsóknir Íslands), Brims og Toppfisks.
Lesa meira
Matvælarannsóknir Íslands (Matís) og Háskólinn á Hólum taka þátt í umfangsmiklu Evrópuverkefni sem felst í því að rannsaka velferð fiska í eldi. Markmiðið er að skilgreina hvað veldur streitu og vanlíðan fiska. 60 rannsóknahópar frá yfir 20 löndum taka þátt í verkefninu sem stendur í 5 ár.
Lesa meira