Okkar rannsóknir, allra hagur

2007 - September

Ýsa var það, heillin! - 4.10.2007

Vinsælust: ÝsaÍ nýrri skýrslu Matís, þar sem birt er samantekt á þeim upplýsingum sem fyrir liggja um neyslu Íslendinga á hinum ýmsu fisktegundum, kemur m.a. fram að Íslendingar elska ýsu öðrum fiskum fremur. Og kemur líklega fáum á óvart! Lesa meira
 

Iðnaðarráðherra gæðir sér á hvannalambi - 28.9.2007

Vísindavaka RANNÍSÖssur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, gæddi sér á lambakjöti sem var alið upp á hvönn í bás Matís (Matvælarannsóknir Íslands) á Vísindavöku RANNÍS í Listasafni Reykjavíkur á föstudag. Á básnum kynnti Matís rannsóknir á lömbum sem alin voru upp á þessari jurt í sumar. Samkvæmt rannsókninni hafa hvannalömb meiri meiri kryddlykt og –bragð, en lömb í hefðbundnu beitarlandi hafa meira lambakjötsbragð. Lesa meira
 

Ráðherra á Matís fundi: bindur vonir við þorskeldi - 26.9.2007

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra.Fiskeldi getur nýst afar vel við að byggja upp hagkvæma grein í íslenskum sjávarútvegi, ekki síst við firði á landsbyggðinni þar sem nægilegt rými er til staðar, að því er fram kom í máli Einars K. Guðfinnsonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á opnum fundi Matís um þorskeldi á Ísafirði. Hann segir að með því að hraða þróun í fiskeldi hér á landi sé mögulegt að margfalda framleiðslugetu fyrir greinina, skapa aukin atvinnutækifæri víða um land og útvega gott hráefni fyrir kröfuharða markaði. Hann varar hins vegar við gullgrafararstemmningu í tengslum við þorskeldið. Lesa meira
 

Opinn kynningarfundur um þorskeldi á Ísafirði - 25.9.2007

matisMatís heldur opinn kynningarfund á þorskeldi í Þróunarsetri Vestfjarða á morgun, miðvikudaginn 26. september. Á fundinum munu Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, Þorleifur Ágústsson, verkefnastjóri hjá Matís, og Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís, fjalla um stöðu og horfur fiskeldis hér á landi, einkum á Vestfjörðum. Þá mun Karl Almås, framkvæmdastjóri hjá SINTEF í Noregi, fjalla um fiskeldi í Noregi. Lesa meira
 


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica