janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember

Matís (Matvælarannsóknir Íslands) og norska rannsóknafyrirtækið SINTEF hafa gert með sér samkomulag sem hefur það að markmiði að efla rannsóknir, þróun og virði í sjávarútvegi og matvælaiðnaði á Íslandi og í Noregi. Samkomulagið gerir Matís kleift að taka þátt í rannsóknaverkefnum í samstarfi við SINTEF og norsk fyrirtæki í fiskeldi og matvælarannsóknum. Þá mun samkomulagið auka möguleika Matís á því að kynna starfsemi sína á erlendum vettvangi og taka þátt í fleiri alþjóðlegum og samevrópskum rannsóknaverkefnum.
Cecilia Elizabeth Garate Ojeda hefur tekið við starfi sérfræðings hjá Matís á Ísafirði. Ceclia, sem er frá Perú, lauk BCs í iðnarverkfræði frá Universidad Nacional de San Agustin Arequipa í Perú árið 2000 og svo MBA námi frá Industrial Business School í Madríd á Spáni árið 2006.
Lesa meira
Háskóli Íslands og Matís (Matvælarannsóknir Íslands) hafa ákveðið að vinna náið að því að stórefla rannsóknir og menntun í matvælafræðum, matvælaverkfræði, líftækni og matvælaöryggi. Stefnt er að því að fjölga verulega nemendum í grunn- og framhaldsnámi í þessum greinum við Háskóla Íslands samkvæmt samstarfssamningi sem HÍ og Matís hafa undirritað.
Lesa meira
Rúmlega 160 manns fylltu Gullteig salinn á Grand Hótel á fimmtudaginn var þegar ráðstefna Matís, Matur og framtíð, var haldin, í fyrsta skipti. Í sal fyrir utan ráðstefnuna var svo hægt að kynnast matarhönnun og nýsköpun í matvælaiðnaði, eins og fjallakonfekti, blóðbergsdrykkjum og eldisfiskum. Ennfremur gafst gestum tækifæri á því að bragða á harðfiski frá Gullfiski.
Lesa meira
Búið er að draga út vinningsnúmer úr hópi þeirra sem tóku þátt í heilsufullyrðingakönnun Matís. Glæsilegir vinningar eru í boði frá Mjólkursamsölunni. Sjá númer vinningshafa hér.
Lesa meira
Einar K. Guðfinnsson landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra skálaði í bóðbergsdrykk og gæddi sér á fjallakonfekti, sem var í boði í upphafi ráðstefnu Matís, Matur og framtíð, í dag. Á ráðstefnunni er leitast við að svara spurningum á borð við hvers vegna grænmeti sé hollt, hvort þorskeldi eigi framtíð fyrir sér á Íslandi, hvers vegna fólk vill ekki stressaðan eldisfisk og hvort fólk viti yfirhöfuð hvaðan maturinn þeirra kemur.
Innlent grænmeti er yfirleitt ferskara og af meiri gæðum en það innflutta. Næringargildið er svipað en minna er um varnarefni í því innlenda, segir Ólafur Reykdal verkefnastjóri hjá Matís í samtali við 24 stundir. "Það er mjög stutt frá haga til maga," segir Ólafur
Lesa meira
Matur og framtíð, haustráðstefna Matís, fer fram á Grand Hótel þann 15. nóvember 2007. Á ráðstefnunni, sem er frá 12:30 til 16:30, verður leitast við að svara spurningum á borð við hvers vegna grænmeti sé hollt, hvort þorskeldi eigi framtíð fyrir sér á Íslandi, hvers vegna fólk vill ekki stressaðan eldisfisk og hvort fólk viti yfirhöfuð hvaðan maturinn þeirra kemur.
Lesa meira