Okkar rannsóknir, allra hagur

Fréttir

EuroFIR logo

Matís tekur þátt í evrópska samstarfsverkefninu EuroFIR - 29.12.2008

Tilgangurinn með EuroFIR (European Food Information Resource) er að bæta gögn um efnisinnihald matvæla. Verkefnið miðar að því að leita leiða til að miðla upplýsingunum með gagnagrunnum og á netinu. Lesa meira
 
Kraftur logo

Matís sendir ekki út jólakort í pósti en styrkir Kraft - 29.12.2008

Líkt og undanfarin ár þá sendir Matís ekki út hefðbundin jólakort heldur eingöngu kort á rafrænu formi. Þess í stað styrkir Matís Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra. Lesa meira
 
Matis-Prokaria_logo_4C

Matís fagnar góðum sölusamningi á ensímum - 22.12.2008

Starfsemi á sviði líftækni og lífvirkra efna hefur aukist til mikilla muna um allan heim.

Lesa meira
 
matis

Okkar starfsemi - allra hagur! - 15.12.2008

Matís auglýsir eftir verkefnastjóra á svið fiskeldis á starfstöð fyrirtækisins á Ísafirði. Auglýsing þess efnis birtist í Morgunblaðinu, Fréttablaðinu og Bæjarins besta á Ísafirði. Lesa meira
 
Svidasulta_ofl

Allt að 80% vatn í sviðasultu - ÍSGEM kemur að góðum notum - 12.12.2008

Hlutfall vatns í sviðasultu sem hér til sölu er allt að 80% eftir því sem fram kemur í niðurstöðum mælinga Matís fyrir Neytendasamtökin. Súr sviðasulta er vatnsríkari en ný og reyndist vatnsinnihaldið ívið meira en áskilið er í ÍSGEM, gagnagrunni um efnainnihald matvæla(nánar um ÍSGEM). Lesa meira
 
matis

Meistaravörn í Viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri - Matís styrkir verkefnið - 12.12.2008

Þriðjudaginn 16. desember heldur Guðbjörg Stella Árnadóttir meistaravörn sína á auðlindasviði. Vörnin fer fram kl. 13:00 og verður í stofu K201 á Sólborg. Lesa meira
 
Virðiskeðja gámafisks

Virðiskeðja gámafisks - 10.12.2008

Matís ohf. vinnur nú að rekjanleikaverkefni í samstarfi við innlend og erlend fyrirtæki sem koma að virðiskeðju gámafisks sem seldur er á uppboðsmörkuðunum í Hull og Grimsby. Lesa meira
 
Hornafjordur

Auglýst er eftir umsóknum í átaksverkefni um smáframleiðslu á matvælum - 8.12.2008

Atvinnumálanefnd Hornafjarðar auglýsir eftir umsóknum í átaksverkefni um smáframleiðslu á matvælum á Hornafirði. Um er að ræða stuðningsverkefni sem ætlað er einstaklingum og fyrirtækjum í Sveitarfélaginu Hornafirði sem vilja vinna að framleiðslu og þróun á matvælum í matvælasmiðju Matís á Hornafirði. Lesa meira
 
matis

Spennandi starfsvettvangur - frábær tækifæri - 7.12.2008

Matís auglýsir eftir nemendum á framhaldsstigi til að vinna lokaverkefni og einstök verkefni í samstarfi við fyrirtækið. Auglýsingu í Morgunblaðinu má finna hér. Lesa meira
 
Kerecis logo

Fréttatilkynning - Kerecis ehf. og Matís ohf. gera rammasamning um rannsóknir - 1.12.2008

Í fréttatilkynningu frá Kerecis ehf. og Matís ohf. sl. föstudag tilkynntu fyrirtækin um undirritun rammasamnings varðandi rannsóknir á próteinum úr fiski til meðhöndlunar á ýmsum læknisfræðilegum vefjavandamálum í mönnum. Lesa meira
 
nyrnorrannmatur3

Hróður Matís fer víða - Matarsmiðjan á Höfn í Ny Nordisk Mad - 1.12.2008

Fyrir stuttu kom grein í Ny Nordic Mad sem er skemmtilegt verkefni um matarmenningu Norðurlandabúa. Lesa meira
 
Logo Rannís

Tækniþróunarsjóður úthlutar styrkjum - Matís í samstarfi - 28.11.2008

Stjórn Tækniþróunarsjóðs ákvað á fundi sínum, þriðjudaginn 25. nóvember 2008, við hverja skyldi gengið til samninga um stuðning úr sjóðnum. Lesa meira
 
Iceland Responsible Fisheries

Umhverfismerkingar í sjávarútvegi - 26.11.2008

Á síðustu misserum hefur áhugi á umhverfismerkingum sjávarfangs stóraukist, enda eru hin ýmsu umhverfissjónarmið farin að skipta meira og meira máli á öllum stigum virðiskeðju sjávarafurða. Lesa meira
 
Fiskur í matinn

Aukin fiskneysla fæst með aukinni fræðslu - 25.11.2008

Ljóst er að foreldrar hafa mest hvetjandi og mótandi áhrif á fiskneyslu ungs fólks og þeir sem hafa vanist því að borða fisk í æsku halda því áfram síðar á ævinni. Í ljós kom að fræðsla og þekking jók greinilega fiskneyslu hjá ungu fólki.

Lesa meira
 
Einar_Sjofn_1

Matís opnar líftæknismiðju á Sauðárkróki - 23.11.2008

Matís opnaði líftæknismiðju á Sauðárkróki sl. þriðjudag, 18. nóvember. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra opnaði smiðjuna að viðstöddu fjölmenni. Lesa meira
 
Ensímin vinna verkið

Ensím vinnur verkið - 16.11.2008

Notkun ensíms sparar mikinn tíma við hreinsun á lifur fyrir niðursuðu, en ensímið leysir upp himnuna á yfirborði lifrarinnar og við það losna ormar sem búið hafa um sig undir henni. Fram til þessa hefur þurft að handvinna þessa snyrtingu, sem er mjög tímafrek. Lesa meira
 
matis

Matís hlýtur viðurkenningu - 16.11.2008

Á ráðstefnu um atvinnulíf og nýsköpun við lendur Vatnajökuls um síðustu helgi var haldin Uppskeruhátíð klasans að Smyrlabjörgum á föstudagskvöldinu sem að Ríki Vatnajökuls og Ferðamálafélag Austur- Skaftafellssýslu stóð fyrir. Lesa meira
 
Núna - fjöldafundur SI

NÚNA er tækifærið - Matís með á fjöldafundi SI - 16.11.2008

Síðastliðinn föstudag, 14. nóvember, var haldinn fjöldafundur meðal fyrirtækja og fólks í hátækni- og sprotageiranum á Hilton Reykjavík Nordica. Lesa meira
 
Rannís lógó

Haustþing Rannís - forstjóri Matís með erindi - 12.11.2008

Tækifæri í rannsóknum og nýsköpun var yfirskrift haustþings Rannís sem haldið var 11. nóvember kl. 9:00 á Grand Hótel. Menntamálaráðherra setti þingið. Lesa meira
 
Þorskur í ís

Birting ritrýndrar greinar frá vísindamönnum Matís - 11.11.2008

Markmið verkefnisins var að þróa ný erfðagreiningasett byggð á endurteknum DNA stuttröðum (microsatellites) úr þorski. Útbúa átti 10 erfðamarkasett til notkunar í kynbótastarfi á aliþorski og einnig 20 erfðamarkasett til upprunagreininga á villtum þorski. Lesa meira
 
Guðmundur H. Gunnarsson Matís

Ráðstefna í ríki Vatnajökuls - Matís með erindi - 9.11.2008

Föstudaginn 7. og laugardaginn 8. nóvember verður haldin ráðstefna á Höfn og á Smyrlabjörgum um atvinnulíf og nýsköpun við lendur Vatnajökuls. Lesa meira
 
Einar K. Guðfinnsson opnar

Matís opnar Matarsmiðjuna á Höfn í Hornafirði - 6.11.2008

Síðastliðinn miðvikudag opnaði Matís matarsmiðju á Höfn í Hornafirði. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra opnaði smiðjuna að viðstöddu fjölmenni en vel á annað hundruð manns voru mætt. Lesa meira
 
FisHmark

Aukin arðsemi veiða og vinnslu - FisHmark: íslenskur hugbúnaður - 5.11.2008

Nú er tilbúin frumgerð að hugbúnaði fyrir sjávarútvegsfyrirtæki sem leggur til hagkvæmasta fyrirkomulagið í veiðum og vinnslu á fiski, getur aukið virði sjávarfangs og um leið stuðlað að auknum hagnaði fyrirtækja. Lesa meira
 
matis

Lokun á skiptiborði Matís dagan 4. og 5. nóvember nk. - 3.11.2008

Skiptiborð Matís verður lokað 4. og 5. nóvember vegna haustferðar starfsmanna og opnun vöruþróunarseturs á Höfn í Hörnafirði (sjá viðburðir hér til vinstri).

Lesa meira
 
Þorskur í ís

Grandskoðum þann gula frá miðum í maga - 2.11.2008

Á síðastliðnum árum hefur krafa neytenda um matvöru sem framleidd er á vistvænan hátt aukist til muna og erlendir kaupendur á íslenskum fiski leggja því mikil áherslu á gæði og rekjanleika í fiskvinnslu ásamt jákvæðri ímynd um hollan og ómengaðan fisk. Lesa meira
 
Surimi

Aukin verðmætasköpun úr vannýttu sjávarfangi. Umfjöllun í fréttablaðinu. - 30.10.2008

Matís og MPF Inc. skrifuðu á dögunum undir samstarfssamning milli fyrirtækjanna. Samningurinn felur í sér að fyrirtækin vinni saman að sameiginlegum rannsóknum á þróun surimi úr vannýttum tegundum eins og kolmunna og loðnu. Grein um þetta birtist í Fréttablaðinu og má finna hér. Lesa meira
 
matis

Lyktina burt - 27.10.2008

Notkun ósons við þurrkun á fiski minnkar verulega lykt frá þurrkverksmiðjum, en hjá Matís er unnið að því að gera tilraunir með notkun ósons í samstarfi við Laugafisk á Akranesi. Lesa meira
 
matis

Næringargildi og öryggi byggs til manneldis - 23.10.2008

Matís ohf. og Landbúnaðarháskóli Íslands hafa leitað leiða til að nýta íslenskt bygg til manneldis. Það er Framleiðnisjóður landbúnaðarins sem hefur styrkt þetta starf. Niðurstöðurnar verða kynntar á málþingi í húsi Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti 31. október nk.

Lesa meira
 

Málþing vegna 10 ára afmæli sjávarútvegsskóla SÞ - 22.10.2008

Komdu og taktu þátt í ráðstefnu á vegum Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, sem haldin verður á Hótel Loftleiðum, dagana 24. og 25. október. Lesa meira
 

Matvæladagur MNÍ: Matís með erindi - 21.10.2008

Matvæladagur Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands var haldin fimmtudaginn 16. október. 2008. Efni dagsins var Íslenskar matarhefðir og héraðskrásir. Á ráðstefnunni töluðu íslenskir fyrirlesarar og sænskur fyrirlesari frá Háskólanum í Örebro. Ráðstefnan stóð frá kl. 13:00-17:00 og var haldin í Iðnó. Ráðstefnustjóri var Gísli Einarsson fréttamaður. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Einar K. Guðfinnsson setti ráðstefnuna. Lesa meira
 

Matís rannsakar efnaform arsens í fiskimjöli og fóðurlýsi - 18.10.2008

Arsen er bæði vel þekkt eiturefni og krabbameinsvaldandi efni og er því efst á lista “Agency for Toxic Substances and Disease Registry” í Bandaríkjunum yfir hættuleg efni. Formgreining arsens í matvælum og öðrum lífrænum sýnum er mikilvæg vegna þess að upptaka (bioavailability) og eiturvirkni arsens er mjög háð því á hvaða efnaformi það er. Lesa meira
 

Matís með formennsku í European Sensory Network (ESN) - 17.10.2008

Emilía Martinsdóttir, deildarstjóri á Vinnslu- og vöruþróunarsviði er nú formaður í European Sensory Network (ESN) sem eru alþjóðleg samtók rannsóknastofnana og fyrirtækja á sviði skynmats og neytendarannsókna. Lesa meira
 

Efling staðbundinnar matvælaframleiðslu - 16.10.2008

Efling staðbundinna matvæla miðar að því að byggja upp staðbundið og sjálfbært matvælahagkerfi. Þetta felur í sér matvælaframleiðslu, vinnslu, dreifingu og neyslu. Talið er að þróun staðbundinna matvæla muni efla viðkomandi staði eða svæði efnahagslega, umhverfislega og félagslega. Þá gefa þau tækifæri á nánari tengingu milli framleiðenda og neytenda. Lesa meira
 

Sýnendur Íslensku Sjávarútvegssýningarinnar verðlaunaðir: Matís í samstarfi við verðlaunahafa - 14.10.2008

Sjávarútvegssýningin 2008 fór fram í Fífunni í Kópavogi 2.-4. október sl. Eins og venja er þá voru veitt verðlaun fyrir sýningarbása og voru þau verðlaun veitt á sérstakri sýningarhátíð sem haldin var 3. október í boði Eimskip og Landsbankans.

Lesa meira
 

Sjávarútvegssýningin 2008: mikill áhugi á sýningarbás Matís - 13.10.2008

Sjávarútvegssýningin 2008 fór fram í Fífunni í Kópavogi 2.-4. október sl. Mjög mikil ásókn var að sýningunni og virðist sem hver sýning sé stærri en sú sem á undan kom. Matís tók þátt nú eins og síðast og var mikil umferð í bás fyrirtækisins. Hápunktarnir voru þegar Ísfélag Vestmannaeyja bauð upp á lifandi kúffisk 3. og 4. október og þegar Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra heimsótti sýningarsvæði Matís. Lesa meira
 

Þorskeldisrannsóknir í Vísindaporti: Matís kynnir rannsóknir - 9.10.2008

Í Vísindaporti Háskólaseturs Vestfjarða, föstudaginn 10. október, mun dr. Þorleifur Ágústsson verkefnastjóri hjá Matís kynna þorskeldisrannsóknir fyrirtækisins á Ísafirði. Megin áhersla rannsóknanna hefur falist í því að hindra ótímabæran kynþroska hjá þorski með ljósastýringu í sjókvíum. Lesa meira
 

Fyrirlestur um verkefni til meistaraprófs - 1.10.2008

Fyrirlestur um verkefni til meistaraprófs í matvælafræði við matvæla- og næringarfræðiskor raunvísindadeildar Háskóla Íslands verður haldinn mánudaginn 6. október kl. 12:00 í Árnagarði, stofa Á-201, við Háskóla Íslands. Lesa meira
 

Matís þróar nýja aðferð til að fylgjast með mengun skemmdarbaktería í fiski - 30.9.2008

Nú nýverið birtist grein í Journal of Environmental Monitoring þar sem fjallað er um niðurstöður rannsóknar vísindamanna hjá Matís. Tilgangur rannsóknarinnar var að þróa aðferð sem gæti komið að liði við innra gæðaeftirlit í fiskvinnslu og tól til ákvörðunartöku við vinnslu hráefnis af mismunandi gæðum.

Lesa meira
 

Landgengar eldiskvíar gætu aukið þekkingu - 26.9.2008

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða og Matís ohf. sátu fund með sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd í síðustu viku um áframhaldandi uppbyggingu á rannsóknaraðstöðu fyrir þorskeldi á Vestfjörðum. Kynnt var fyrir nefndinni vilji fyrir því að sveitarfélög og aðilar kæmu meira að uppbyggingu á rannsóknaraðstöðu til þorskeldis. Lesa meira
 

Mastersvörn í matvælafræði við HÍ - 25.9.2008

Mastersvörn í matvælafræði verður haldin í dag, föstudaginn 26. september, við Háskóla Íslands í stofu 158, í VR II og hefst kl 15.30. Kristberg Kristbergsson prófessor mun kynna og stjórna vörninni. Lesa meira
 

Matís tekur þátt í Vísindavöku 2008 - 24.9.2008

Má bjóða þér sláturtertu og rabarbarakaramellu?

Stefnumót hönnuða og bænda.
Nemendur og kennarar í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands hafa unnið í samstarfi við Matís ohf og landsliðskokkanna Gunnar Karl Grétarsson og Örvar Birgisson unnið að þróun nýrra afurða fyrir íslenska bændur.

Lesa meira
 

Lífvirk bragðefni unnin úr íslensku sjávarfangi - 24.9.2008

Á Matís er að hefjast vinna við verkefni sem ber heitið: “Lífvirk bragðefni unnin úr íslensku sjávarfangi”. Verkefnið er styrkt af AVS rannsóknarsjóði í sjávarútvegi til þriggja ára og verður unnið með fyrirtækinu Norðurbragði ehf. sem er stærsti framleiðandi bragðefna úr sjávarfangi á Íslandi. Lesa meira
 

Klasaverkefnið "Næring í nýsköpun": Matís tekur þátt í opnum kynningarfundi - 14.9.2008

Markáætlunarumsókn til RANNÍS, um rannsóknaklasann Næring í nýsköpun, er núna í undirbúningi. Kynning á undirbúningsvinnunni fer fram þriðjudaginn 16. september kl. 15–16 í Grand Hótel, fundarsal Gullteig B, þar sem fundargestir geta kynnt sér verkefnið og rætt tækifæri og samstarf. Meðal þeirra sem kynna viðfangsefni er Guðjón Þorkelsson, sviðsstjóri vinnslu- og vöruþróunarsviðs Matís.

Lesa meira
 

Matís stendur fyrir ráðstefnu: Kjarn- og rafeindaspunarannsóknir í matvælaiðnaði - 11.9.2008

Ráðstefnan 9th International Conference on the Application of Magnetic Resonance in Food Science verður haldin í Norræna húsinu í Reykjavík dagana 15.-17 september næstkomandi á vegum Matís ohf.

Lesa meira
 

Dregur mjög úr magni trans-fitusýra - nákvæmum fitusýrugreiningum lokið á Matís - 10.9.2008

Hjá Matís ohf hefur verið lokið við nákvæmar fitusýrugreiningar á 30 sýnum af matvælum á íslenskum markaði til samanburðar við eldri niðurstöður, en stór rannsókn var gerð á fitusýrum í öllum flokkum matvæla á íslenskum markaði árið 1995. Niðurstöðurnar nú sýna að hlutfall trans-fitusýra fyrir nær öll matvælin er lægra en áður var, en þó greindist talsvert af trans-fitusýrum í nokkrum sýnum af ákveðnum vörum. Í næringarráðleggingum er mælt með því að fólk borði eins lítið af trans-fitusýrum úr iðnaðarhráefni og hægt er. Einnig er mælt með því að takmarka neyslu á mettuðum fitusýrum. Með þessu móti er hægt að draga úr líkum á hjartasjúkdómum.

Lesa meira
 

Ferskleikamat á fiski á nokkrum sekúndum - kynning hjá Matís á nýjum tækjabúnaði - 9.9.2008

Kynning verður á nýjum tækjabúnaði sem framkvæmir ferskleikamat á fiski, í húsakynnum Matís að Borgartúni 21 kl. 10:00, föstudaginn 12. september. Sequid nefnist tækið en með því má mæla hvort fiskurinn hafi verið frystur einu sinni eða tvisvar, og eins hvort hann er í raun ferskur eða þiðinn, og fá hlutlaust mat á gæðum hráefnisins á fáeinum sekúndum.

Lesa meira
 

QALIBRA-fundur í Reykjavík; Evrópuverkefni undir stjórn Matís ohf. - 8.9.2008

Dagana 3. og 4. september var haldinn verkefnafundur í Evrópuverkefninu QALIBRA í Reykjavík.

QALIBRA, eða “Quality of Life – Integarted Benefit and Risk Analysis. Web-based tool for assessing food safety and health benefits,” skammstafað QALIBRA (Heilsuvogin á íslensku), er heiti Evrópuverkefnis, sem heyrir undir Priority 5, Food Quality & Safety í 6. Rannsóknaráætlun ESB. Um að ræða þriggja og hálfs árs verkefni sem Matís ohf stýrir.  Verkefnistjóri er Helga Gunnlaugsdóttir, deildarstjóri á Matís.

Lesa meira
 

Forverkefni með ensímmeðhöndlun á lifur lokið á Matís - niðurstöðurnar lofa góðu. - 5.9.2008

Á Matís er lokið forverkefni sem styrkt var af Tækniþróunarsjóði Rannís í samstarfi við niðursuðuverksmiðjuna Ice-W ehf. Grindavík. Verkefnið fjallaði um ensímmeðhöndlun á lifur fyrir niðursuðu. Markmið verkefnisins var að auka arðsemi við niðursuðu á lifur með því að lækka framleiðslukostnað og auka gæði afurða.

Lesa meira
 

Heimsókn frá Japan til Matís - 3.9.2008

Á morgun, fimmtudaginn 4. september, fær Matís til sín góða gesti. Það er 11 manna sendinefnd frá Hokkaido-eyju í Japan sem kemur hingað til lands á vegum METI, en það er skammstöfun fyrir Ministry of Economics, Trade and Industry. Hópurinn mun kynna sér starfsemi Matís, einkum líftæknisvið fyrirtækisins, og fer móttakan fram í húsnæði Líftæknisviðs að Gylfaflöt 5, Grafarvogi. Þar verða kynnt fyrir þeim ýmis verkefni sem Matís hefur unnið að undanfarið ásamt því sem fyrirtækið verður kynnt í víðara samhengi.

Lesa meira
 

Góðir gestir hjá Matís: Joint Research Center í heimsókn - 1.9.2008

Þann 27. ágúst sl. tók Matís á móti 7 manna hópi frá Joint Research Center (JRC) en Sameiginlega Rannsóknamiðstöðin – JRC – samanstendur af nokkrum rannsóknarmiðstöðvum sem fjámagnaðar eru af 7. Rammaáætlun og ætlað er að styðja við stefnumótun, þróun og framkvæmd stefnumála Evrópusambandsins. Móttakan fór fram í húsnæði Líftæknisviðs Matís, Prokaria, að Gylfaflöt í Grafarvogi.

Lesa meira
 

Ráðstefna um notkun kjarnspunatækni í rannsóknum á matvælum í september. - 29.8.2008

Dagana 15.-17 september n.k. verður ráðstefnan 9th International Conference on the Application of Magnetic Resonance in Food Science haldin í Norræna húsinu í Reykjavík. Það er Matís sem hefur veg og vanda af undirbúningi hennar. Að sögn Maríu Guðjónsdóttur, sem hefur haft veg og vanda af undirbúningi ráðstefnunnar hafa tæplega 100 manns, víðs vegar að úr heiminum þegar boðað þátttöku sína á ráðstefnuna.

Lesa meira
 

Matís á Landbúnaðarsýningunni á Hellu 22.-24. ágúst - 22.8.2008

Í tilefni af 100 ára afmæli Búnaðarsambands Suðurlands 2008 verður haldin glæsileg og viðamikil landbúnaðarsýning á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 22.-24. ágúst 2008. Matís mun á sýningunni kynna ýmis landbúnaðartengd verkefni sem fyrirtækið vinnur að.

Lesa meira

 

Hangikjöt: Sambærileg vara og Parmaskinka, San Daniels og Serrano? - 20.8.2008

Matís er að undirbúa verkefni um reykt og þurrkað lambakjöt og óskar eftir samvinnu við lítil, staðbundin fyrirtæki vegna þróunar reyktra og þurrkaðra afurða úr lambakjöti. Loftþurrkað lambakjöt ætti að skipa sama sess og loftþurrkuð skinka (s.s. Parma, San Daniels og Serrano) gerir í Suður-Evrópu.

Lesa meira

 

Matís með námskeið fyrir nemendur í doktorsnámi - 15.8.2008

Vikuna 17.-24. ágúst stendur Matís fyrir námskeiði í samvinnu við Háskóla Íslands, fyrir nemendur í doktorsnámi. Yfirskrift námskeiðsins er “Samspil skynmats, neytenda- og markaðsþátta í vöruþróun”, og markmiðið er, eins og nafnið gefur til kynna, að nýta upplýsingar um skynmat, neytendur og markaðsþætti í vöruþróun. Námskeiðið er fullbókað og alls munu sitja það 24 nemendur frá Íslandi, Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi , Eistlandi Lettlandi og Litháen.

Lesa meira
 
Sasan

AMSUM 2007: Lífríki Íslandsmiða í góðu ástandi - 7.8.2008

Mengun þungmálma í hafinu umhverfis landið er almennt vel undir alþjóðlegum viðmiðunarmörkum, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Matís um breytingar á lífríki sjávar við landið. Þungmálmar eru frumefni sem eru upprunnir í náttúrunni en styrkur þeirra getur aukist vegna aðgerða manna (t.d. námuvinnslu).

Lesa meira
 
holl1-IMG_4085

Nýtt verkefni hjá Matís: vöruþróun á kryddlegnum og maukuðum sölvum - 6.8.2008

Fyrirtækið Hollusta úr hafinu hóf þróun á kryddlegnum sölvum og söl-puree árið 2006, en það ár fékk það úthlutað styrk úr smáverkefnaflokki AVS rannsóknasjóðsins til að þróa vöru úr íslenskum matþörungum og kanna hvort markaður fyrir þær vörur er að opnast innanlands, kanna hvort markaðurinn sé nægjanlega stór til að það borgi sig að sinna honum og huga að sölu sölva á erlendan hollustu- og neysluvörumarkað. Nú áforma Hollusta úr hafinu og Matís að ljúka vöruþróun á framangreindri vöru.

Lesa meira
 
iceprotein

Skýrsla Matís: Samantekt á vísindalegum sönnunum á heilsufæði - 28.7.2008

Markaður fyrir heilsu- og markfæði af ýmsu tagi hefur vaxið mikið á undanförnum árum og við markaðssetningu slíkrar vöru hefur stundum ýmsu verið haldið fram sem illa stenst nánari skoðun. Í nýútkominni skýrslu frá Matís, er að finna ýtarlega samantekt á ýmsum flokkum heilsufæðis og einnig er þar farið yfir skilgreiningar og reglugerðir, efnivið og virkni vinsælla heilsuvara og leyfðar heilsufullyrðingar. Aðalhöfundur skýrslunnar er Sigrún Mjöll Halldórsdóttir, en samantektin er hluti af meistaraverkefni hennar við matvælafræðiskor H.Í., sem hún vinnur að á Matís.

Lesa meira
 
Hafid

Íslenskur fiskur mjög lítið mengaður - jákvæðar niðurstöður skýrslu - 22.7.2008

Út er komin skýrsla frá Matís ohf. sem ber heitið Undesirable substances in seafood products – results from the monitoring activities in 2006. Skýrslan sýnir niðurstöður mælinga á magni eitraðra mengunarefna í íslenskum sjávarafurðum á árinu 2006 og er hluti af sívirku vöktunarverkefni sem styrkt er af sjávarútvegsráðuneytinu og hefur verið í gangi frá árinu 2003. Líkt og fyrri ár vöktunarinnar sýna niðurstöður ársins 2006 að ætilegur hluti fisks sem veiddur er á Íslandsmiðum inniheldur mjög lítið magn af lífrænum mengunarefnum eins og díoxíni, díoxínlíkum PCB efnum og varnarefnum (skordýraeitri og plöntueitri), samanborið við þau hámörk sem Evrópulöndin hafa viðurkennt.

Lesa meira
 
matis

Sumarlokun skiptiborðs - tilkynning frá Matís - 18.7.2008

Skiptiborð Matís verður lokað frá 23. júlí til og með 4. ágúst. Beinn sími á Efnadeild er 422 5154 og beinn sími á Örverudeild er 422 5116.

Upplýsingar um bein símanúmer starfsmanna má finna hér


ENGLISH: The switchboard is closed between July 23rd and August 4th. You can reach our Chemical Research Lab by calling 422 5154 and our Microbiological Research Lab by calling 422 5116. Information on all other direct numbers can be found here 

 
Slog1862

Náttúruleg ensím og andoxunarefni unnin úr fiskslógi og -hryggjum - 15.7.2008

Á Líftæknisviði Matís er nú unnið að verkefni sem miðar að því að þróa og rannsaka mismunandi nýjar próteasablöndur úr þorskslógi í þeim tilgangi að nota blöndurnar til framleiðslu á hydrolýsötum (niðurbrotnum próteinum) og peptíðum úr fiski með mjög mikla andoxunarvirkni. Forrannsóknir hafa sýnt fram á að ensímblöndur úr þorskslógi geta framleitt peptíð með mjög mikla andoxunarvirkni, mun meiri en peptíð fengin úr niðurbroti annarra algengra ensímblandna sem hafa verið kannaðar.

Lesa meira
 
Torskar2

Framleiðsla hjóldýra fyrir þorskeldi - Matís tekur þátt í sam-norrænu verkefni - 14.7.2008

Matís er þátttakandi í verkefninu "Framleiðsla hjóldýra fyrir þorskeldi" sem nú er hafið og hefur að markmiði að stuðla að öruggri, stöðugri og hagkvæmri framleiðslu fæðudýra fyrir þorsk í eldi. Markmið verkefnisins er jafnframt að efla samstarf þorskseiðaframleiðenda á Norð-urlöndunum.

Lesa meira
 
matis

Tilkynning frá Matís ohf. - 11.7.2008

Matís ohf barst í gær tilkynning frá vefumsjónaraðila sínum, Hugsmiðjunni hf., um að óprúttnir erlendir aðilar hefðu brotist inn á vefsvæði fyrirtækisins. Tilgangurinn var að nýta póstþjón vefsins til að senda vafasöm skeyti á grunlausa viðtakendur. Ekki liggur fyrir hve mörg skeyti voru send út með þessum hætti í nafni Matís, né heldur hvort viðtakendur eru hérlendis eða erlendis. Hugsmiðjunni tókst hinsvegar fljótt að loka fyrir þessa ólöglegu iðju og slökkti strax á póstþjóni Matísvefsins.

Lesa meira
 
Thorskeldi

NORÐURKVÍ - nýtt rannsóknarverkefni hjá Matís - 9.7.2008

Mikil tjón hafa hlotist á eldisbúnaði, einkum sjókvíum, sökum erfiðra umhverfisaðstæðna við Ísland. Í því ljósi er verkefninu NORÐURKVÍ hrundið af stað með það að markmiði að hanna og smíða sjókvíar sem uppfylla ýtrustu kröfur um styrk og þol fyrir íslenskar aðstæður.

Lesa meira
 
MI-001573

Markáætlun um öndvegissetur og rannsóknarklasa - Matís þátttakandi í 5 hugmyndum af 10 - 8.7.2008

Þann 24. júní sl. tilkynnti Rannís (Rannsóknamiðstöð Íslands) um þær tíu hugmyndir sem fá styrk úr markáætlun um öndvegssetur og rannsóknaklasa til að skila fullbúinni umsókn í október næstkomandi, og er Matís ohf. þátttakandi í fimm þeirra.

Lesa meira

 
Guðmundur fær humarsúpu á Höfn

Skyndibitinn á Höfn er humarsúpa! - 7.7.2008

Skyndibitastaðurinn Kokkur á Höfn í Hornafirði hefur hafið sölu á humarsúpu í gegnum bílalúgu. Um er að ræða sælkerahumarsúpu sem unnin er úr staðbundnu hráefni. Humarsúpa Kokksins er sprottin upp úr samstarfi við Matís og Kokkurinn hefur m.a. notið aðstoðar matvælahönnuða og matvælafræðinga sem starfa á vegum Matís til að gera hugmyndina að humarsúpusölu í gegnum bílalúgu að veruleika.

Lesa meira
 
Undirritun 03.07.08

Matís og Veiðimálastofnun í samstarf: rannsóknir á erfðafræði íslenskra laxfiska - 4.7.2008

Matís Ohf og Veiðimálastofnun undirrituðu í gær, fimmtudaginn 3. júlí, rammasamning um eflingu samstarfs milli fyrirtækjanna. Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra staðfesti samninginn af því tilefni. Undirritunin fór fram í húsnæði Matís-Prokaria, líftæknisviðs Matís, að Gylfaflöt 5 í Grafarvogi. Samstarf Matís og Veiðimálastofnunar verður einkum á sviði erfðarannsókna og í fiskeldi.

Lesa meira
 
Vinna og nám hjá Matís

Viltu læra af fremsta vísindafólkinu? - Matís ohf býður áhugasömum nemenda í efnafræði eða lífefnfræði styrk til mastersnáms (MSc)! - 25.6.2008

Efnarannsóknardeild Matís ohf býður áhugasömum nemenda í efnafræði eða lífefnfræði styrk til mastersnáms (MSc) á sviði snefilefnagreininga
Titill verkefnis er Greining eitraðra og hættulausra efnaforma arsens í fiskimjöli með HPLC-ICP-MS

Lesa meira
 
Fundur´hjá Matís í Safefoodera-verkefninu 18. júní 2008

SAFEFOODERA heimsækir Matís - 24.6.2008

Þann 18. júní s.l. var haldinn fundur hér á landi á vegum SAFEFOODERA EraNet verkefnisins, en hér er um að ræða alþjóðlegt samstarfsverkefni sem hefur að markmiði að efla matvælaöryggi. Verkefnið heyrir undir 7. rannsóknaáætlun Evrópusambandsins (7. RÁ ESB), en einn lykilþáttur í 7. RÁ er uppbygging Evrópska rannsóknasvæðisins (ERA).

Lesa meira
 
Makríll

Rannsókn á Matís: nýting makríls sem veiðist á Íslandsmiðum - 23.6.2008

Makríll hefur hingað til ekki talist til nytjastofna á Íslandsmiðum, enda eru heimkynni hans einkum út af Austurstönd N-Ameríku, í Norðursjó, Miðjarðarhafi og Svartahafi. Á síðustu árum hafa íslensk síldveiðiskip hins vegar orðið vör við makríl í auknum mæli og hafa skipin veitt makríl í bland við norsk-íslensku síldina austur af landinu síðsumars. Makríll er mjög verðmikill fiskur og verðið er oft yfir 100 kr/kg. fyrir ferskan haustveiddan fisk í vinnslu og fyrir frosinn slægðan fisk veiddan yfir sumartímann. Á Matís er nú að fara af stað verkefni sem kallast Veiðar, flokkun, vinnsla og markaðir fyrir makríl veiddan af uppsjávarskipum.

Lesa meira
 

Búið að opna formlega annað kallið í SAFEFOODERA. - 20.6.2008

SAFEFOODERA logo

Meðfylgjandi eru rannsóknaráherslurnar og umsóknarleiðbeiningar. Alls eru 6 milljón evrur í pottinum. Lesið meira til að kynna ykkur nánari upplýsingar um helstu rannsóknaráherslur.

Lesa meira
 
Raðgreiningartæki frá Roche/454 Life Science

Matís – Prokaria kaupir öfluga raðgreiningavél frá Roche/454 Life Science - 18.6.2008

Matís–Prokaria keypti nýlega raðgreiningarvél af gerðinni Roche/454 Life Science. Að sögn Ragnars Jóhannssonar, sviðsstjóra Líftæknisviðs Matís, getur tækið raðgreint mikið magn erfðaefnis í einu og opnar nýja vídd við leit að áhugaverðum genum fyrir ný ensím sem nota má í lyfja-, matvæla- og orkuiðnaði. Þessi gen er að finna í örverum sem lifa í heitum hverum í allt að 100 stiga hita og við mjög mismunandi seltu og sýrustig, segir Ragnar.

Lesa meira
 

Nýtt, athyglisvert verkefni á Matís - 18.6.2008


Á Matís er að hefjast vinna við verkefni sem ber heitið: “Nýr vinnsluferill fyrir framleiðslu á Lútfiski”. Verkefnið er styrkt af AVS rannsóknarsjóði í sjávarútvegi og verður unnið með Fram Foods sem er með stóra markaðshlutdeild á lútfiski á Norðurlöndunum.

Lesa meira
 
Sigríður Hrönn Theódórsdóttir

Nýr fjármálstjóri á Matís - 16.6.2008

Nýr fjármálastjóri hóf störf á Matís um s.l. mánaðarmót, Sigríður Hrönn Theódórsdóttir, og tók hún við starfinu af Aðalbjörgu Halldórsdóttur. Sigríður er rekstrarhagfræðingur frá Fachhochschule Munchen, og hefur víðtæka reynslu af atvinnulífinu.

Lesa meira
 
Matís á Akureyri

Akureyri 12. júní: Ráðstefna um framtíðaráskoranir í sjávarútvegi - 11.6.2008

Fimmtudaginn 12. júní verður ráðstefna á vegum Háskólans á Akureyri um framtíðaráskoranir í sjávarútvegi. Lesa meira
 
matis

Breytingar á stjórn Matís - 9.6.2008

Á stjórnarfundi Matís ohf. þann 22.maí sl. urðu mannabreytingar í stjórninni. Úr stjórn fyrirtækisins gekk Sigríður Sía Jónsdóttir og í stað hennar tók sæti í stjórn Ýr Gunnlaugsdóttir. Lesa meira
 
Nýja tækið

Matís auglýsir styrk til mastersnáms (MSc) á sviði snefilefnagreininga! - 6.6.2008

Efnarannsóknardeild Matís ohf býður áhugasömum nemenda í efnafræði eða lífefnfræði styrk til mastersnáms (MSc) á sviði snefilefnagreininga. Lesa meira
 
Sæbjúgu

Brjósksykrur og lífvirk efni úr sæbjúgum - 5.6.2008

Á Matís er nú að hefjast vinna við verkefni sem ber heitið: ” Brjósksykrur og lífvirk efni úr sæbjúgum” og var ræsfundur í verkefninu haldinn í morgun. Verkefnið mun ganga út á þróun á vinnsluferli lífvirkra efna úr sæbjúgum, allt frá vinnslu chondroitin sulfats úr sæbjúgum til framleiðslu og hreinsunar á chondroitin sulfat fásykrum sem unnar eru með sérvirkum sykursundrandi ensímum.

Lesa meira
 
Framtíðarhúsnæði Matís í Vatnsmýrinni

Framtíðarhúsnæði Matís í Vatnsmýrinni - 4.6.2008

Í gær, 3. júní, var samþykkt á stjórnarfundi Matís að ganga til samninga við Háskólann í Reykjavík (H.R.) um framtíðarhúsnæði fyrirtækisins. Lóðin, sem hið nýja húsnæði mun rísa á, stendur vestan við nýbyggingu Háskólans í Reykjavík við Hlíðarfót í jaðri Öskjuhlíðar. Einnig buðu Vísindagarðar Háskóla Íslands ehf og S8 ehf húsnæði til leigu, en framangreind niðurstaða varð úr þar eð tilboð H.R. var hagstæðast þeirra tilboða er bárust.

Lesa meira
 
Prótein í frárennsli

Miklum verðmætum skolað burt með frárennslisvatni í fiskvinnslu. - 3.6.2008

Í Viðskiptablaðinu í dag er sagt frá aðferð sem Matís, í samvinnu við Brim hf., hefur þróað til að safna fiskholdi sem kemur frá vinnslulínum í bolfiski. Aðferðin er afrakstur þriggja ára verkefnis á Matís sem nefnist “Fiskprótein í frárennsli.” Lesa meira
 
Bjarni Jónasson

Meistaravörn við HA í dag - 2.6.2008

Mánudaginn 2. júní heldur Bjarni Jónasson meistaravörn sína á sviði fiskeldis. Vörnin fer fram kl. 10:00 og verður í stofu K109 á Sólborg. Verkefni Bjarna heitir “Replacing fish oil in Arctic charr diets. Effect on growth, feed
utilization and product quality” og var hluti af stærra verkefni, “Plöntuhráefni í
bleikjufóðri í stað fiskimjöls og lýsis” sem styrkt var af AVS sjóðnum.

Lesa meira
 
Vordís Baldursdóttir í rannsóknaraðstöðu Matís í Borgum

Akureyri: B.Sc. verkefni við HA flýtir fyrir mælingum á PCB efnum í fiski hjá Matís - 29.5.2008

Fyrir skömmu varði Vordís Baldursdóttir lokaverkefni sitt til B.Sc. gráðu við Háskólann á Akureyri „Þróun aðferðar til mælinga PCB efna í fiski með ASE útdrætti“. Verkefnið vann hún undir leiðsögn Ástu M. Ásmundsdóttur sérfræðings hjá Matís.

Lesa meira
 
Karl Róbertsson og próteinmælingatækið

Matís í Neskaupstað tekur í notkun próteingreiningartæki - 28.5.2008

Nýlega tók Matís í Neskaupstað í notkun fullkomið tæki til mælinga- og greiningar á fiskpróteinum. Tækið, sem er frá fyrirtækinu Elementar í Þýskalandi, er af gerðinni Fast N/Protein Analyzer rapid N cube.

Lesa meira
 
Fæðubótarefni úr sojabaunum

Ný skýrsla um vinnslu fiskpróteina í fæðubótarefni - 27.5.2008

Eitt helsta sóknarfæri íslensks sjávarútvegs felst í að auka verðmæti úr því hráefni sem kemur úr sjó. Með því að vinna fæðubótarefni úr fiski er hægt að auka verðmæti hráefnisins verulega, ekki síst úr vannýttum tegundum sem núna eru alla jafnan ekki nýttar til manneldis eða aukaafurðum og tilfallandi hráefni við hefðbundna vinnslu á matvælum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Matís.

Lesa meira
 
Matís í Neskaupsstað

Opinn fundur Matís í Neskaupstað mán. 26. - 23.5.2008

Mánudaginn 26. maí heldur Matís opinn kynningarfund í Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað undir yfirskriftinni Sóknarfæri í sjávarútvegi og matvælaiðnaði á Austurlandi. Lesa meira
 
Við Viktoríuvatn í maí 2007

Matís heldur námskeið í Kenía - 22.5.2008

Tveir starfsmenn Matís eru á förum til Kenía til að halda þar námskeið fyrir fiskeftirlitsmenn. Námskeiðið er haldið á vegum Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna og er hugsað sem framhaldsnám fyrir starfandi fiskeftirlitsmenn þar í landi.

Lesa meira
 
Fundur í CHILL ON verkefninu í Reykjavík í maí 2008

CHILL ON fundur í Reykjavík - 21.5.2008

Dagana 13. og 14. maí sl. var í Reykjavík haldinn vinnufundur í Evrópuverkefninu CHILL ON. Um var að ræða fyrsta fund verkþáttar 5 (“Integration and validation – field trials”). Sex starfsmenn frá Matís sátu fundinn enda kemur Matís til með að gegna veigamiklu hlutverki í verkþættinum, sem snýst í stuttu máli um prófun og aðlögun á tækninýjungum og lausnum sem þróaðar eru í verkefninu.

Lesa meira
 
Lógó SFR um Fyrirmyndarstofnanir 2008

Matís í 12. sæti yfir fyrirmyndarstofnanir í könnun SFR - 20.5.2008

SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu stóð nýlega í þriðja sinn að vali á stofnun ársins. Könnunin átti sér stað meðal félagsmanna SFR á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað. Ennfremur var öllum stofnunum ríkisins gefinn kostur á því að allir starfsmenn, óháð því í hvað stéttarfélögum þeir eru, gætu tekið þátt.

Lesa meira
 
Lífrænt grænmeti

Málþing um lífrænan landbúnað í Norræna húsinu föstudaginn 16. maí. - 15.5.2008

Á fundinum verður m.a. fjallað um hvort lífrænn landbúnaður sé valkostur á Íslandi. Fundurinn hefst kl. 12:45 og stendur til kl. 17:00.

Lesa meira

 
Vinnuhópur í MmmmSeafood á fundi 6. maí 2008

Fundur á Matís í Mmmmmseafood - verkefninu - 6.5.2008

MmmmmSeafood er heiti á verkefni sem Norræna nýsköpunarmiðstöðin (Nordisk InnovationsCenter) styrkir. Líklega má þýða heiti verkefnisins sem “Nammifiskur” á íslensku, en tilgangur þess er einmitt að auka áhuga ungs fólks á fiski og sjávarafurðum.

Lesa meira
 
Kælibót: Ufsi í krapaís

Kælibót - Samanburður ísmiðla – kælihraði og kæligeta - 5.5.2008

Eitt af þeim verkefnum sem unnið er að á Vinnslu- og vöruþróunarsviði Matís kallast Kælibót. Markmið þess er að stuðla að innleiðingu bestu þekkingar og verklags fyrir kælingu og ferlastýringar fyrir fiskafurðir til að tryggja gæðaeiginleika, rekjanleika og öryggi hráefnis og afurða, og stuðla að hagnýtingu þessara upplýsinga fyrir íslenska framleiðendur á mörkuðum sínum.

Lesa meira
 
Þorleifur Ágústsson með nýju neðansjávarmyndavélina

Nýr búnaður til neðansjávarmyndatöku hjá Matís á Ísafirði - 25.4.2008

Unnið hefur verið að því að bæta tækjabúnað hjá Matís á Ísafirði. Á Vestfjörðum er mikil áhersla lögð á fiskeldi, einkum þorskeldi í sjó og þar stundar Matís öflugt rannsóknar- og þróunarstaf í góðu samstarfi við fyrirtæki á svæðinu.

Lesa meira
 
Þátttakendur á Vorráðstefnu Matís & MAST 16. apríl 2008

Ráðstefnan Matur, öryggi og heilsa: Erindin komin á vefinn - 22.4.2008

Eins og sagt var frá hér í síðustu viku héldu Matís og Matvælastofnun (MAST) sameiginlega á Hótel Hilton Nordica þ. 16. apríl.
Margir áhugaverðir fyrirlestrar voru fluttir og nú eru glærurnar frá þeim öllum aðgengilegar hér á vef Matís.

Lesa meira
 
Soffía Gústafsdóttir talar á Málþingi um matarferðamennsku

Ísafjörður - Málþing um matartengda ferðaþjónustu - 21.4.2008

Laugardaginn 19. apríl var haldið á Ísafirði málþing um matartengda ferðaþjónustu. Markmiðið með málþinginu var að ræða leiðir til að þróa matarferðamennsku á Vestfjörðum sem skilar sér í auknum fjölda ferðamanna til svæðisins og notkun á staðbundnu hráefni.

Lesa meira
 
Vorfundur Matís og MAST 16. apríl 2008

Fjölsótt ráðstefna Matís og Matvælastofnunar - 16.4.2008

Fjölmenni var á ráðstefnunni Matur, öryggi og heilsa, sameiginlegri ráðstefnu Matís og Matvælastofnunar (MAST), sem fram fór á Hótel Hilton Nordica í dag, 16. apríl. Talið er að hátt í 200 hafi verið á ráðstefnunni þegar mest var.

Lesa meira
 
Mynd með próteinfrétt 11 apríl 08

Fiskprótein gegn offitu? - 11.4.2008

Mjólkur- og sojaprótein hafa lengi verið notuð með góðum árangri í matvælaiðnaði. Vaxandi markaður er fyrir prótein, og veltir hann milljörðum Bandaríkjadala árlega á heimsvísu. Algengustu prótein sem notuð eru í matvælaiðnaði eru bæði unnin úr dýra- og jurtaríkinu. Lengi hefur verið vitað að í fiski er að finna gæðaprótein, en af ýmsum ástæðum hefur reynst erfiðara að nýta þau sem íblöndunarefni í matvæli heldur en fyrrgreindu próteinin. Nýjar rannsóknir Matís kunna e.t.v. að breyta því.

Lesa meira
 
Mynd af girnilegum matardisk

Ráðstefnan Matur, öryggi og heilsa 16. apríl. - 7.4.2008

Matur, öryggi og heilsa, er yfirskrift sameiginlegrar ráðstefnu á vegum Matís og Matvælastofnunar (MAST), sem fram fer á Hótel Hilton Nordica þann 16. apríl n.k. Á ráðstefnunni, sem mun standa frá 12:30 til 16:30, verður m.a. leitast við að svara spurningum á borð við hvers vegna rekjanleiki matvæla verður sífellt mikilvægari, hvað felst í staðbundinni matvælaframleiðslu, hverjar eru helstu hætturnar tengdar matarsjúkdómum og hvað ný matvælalöggjöf Evrópusambandsins þýðir fyrir Ísland.

Lesa meira

 
Margrét Geirsdóttir

Matísskýrsla um nýtingu kolmunna í markfæði - 1.4.2008

Komin er út skýrsla Matís sem hefur að geyma niðurstöður úr verkefninu Kolmunni sem markfæði sem Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins (nú Matís) vann að í samstarfi við Háskóla Íslands og Flórídaháskóla. Í verkefninu, sem var styrkt af Rannís, var rannsakað hvort vinna megi gæðaprótein úr fiski, sem nýta má á sama hátt í matvælaiðnaði og mjólkur- og sojaprótein.

Lesa meira
 
matra_annadefni

Samstarfssamningur milli Matís og Matvælastofnunar undirritaður - 31.3.2008

Þann 27.mars sl. var undirritaður samstarfssamningur um framkvæmd prófana og öryggisþjónustu af hálfu Matís fyrir Matvælastofnun. Lesa meira
 
Þorskur

Ensímmeðhöndlun á lifur fyrir niðursuðu lofar góðu - 18.3.2008

Á Matís er nú í gangi forverkefni um ensímmeðhöndlun á lifur fyrir niðursuðu í samstarfi við niðursuðuverksmiðjuna Ice-W ehf í Grindavík. Markmið verkefnisins er að auka arðsemi við niðursuðu á lifur með því að lækka framleiðslukostnað og auka gæði afurða.

Lesa meira
 
Fréttamynd: Fundur Neytendastofu 14. mars 2008

Nýr vefur helgaður neytendum opnaður - 14.3.2008

Á fundi í Þjóðmenningarhúsinu í morgun, 14. mars, opnaði Björgvin Sigurðsson, viðskiptaráðherra vefgáttina Leiðakerfi neytenda, en það er sameiginleg vefgátt fyrir allar tegundir neytendamála, óháð því hvaða aðili fer með málin. Vefgáttin var opnuð í tilefni af því að laugardagurinn 15. mars er alþjóðlegur dagur neytenda.

Lesa meira
 
Fishnose

Grein um FISHNOSE-verkefnið í Food Chemistry - 13.3.2008

Nýlega birtist grein í tímaritinu Food Chemistry um niðurstöður úr ESB-verkefninu “Fishnose”. Höfundar greinarinnar eru Rósa Jónsdóttir, starfsmaður Matís, Guðrún Ólafsdóttir, Erik Chanie og John-Erik Haugen.

Lesa meira
 
Úrval fiskrétta.

Matís og H.Í. auglýsa námskeið fyrir doktorsnemendur í ágúst - 12.3.2008

Dagana 17. til 24. ágúst 2008 verður haldið námskeið sem nefnist Samspil skynmats, neytenda- og markaðsþátta í vöruþróun (Integrating sensory, consumer and marketing factors in product design). Námskeiðið verður haldið í Reykjavík.

Lesa meira
 
fiskur á pönnu

ÍSGEM í endurnýjun lífdaga - 10.3.2008

Íslenski gagnagrunnurinn um efnainnihald matvæla (ÍSGEM) er gagnagrunnur sem geymir bæði upplýsingar um efnainnihald matvæla á íslenskum markaði og útflutt matvæli og hráefni. Gagnagrunnurinn er vistaður á vef Matís og nú stendur til að betrumbæta hann.

Lesa meira
 
Eldisþorskur.

DNA örflögutækni notuð við tegundagreiningu á fiski - 6.3.2008

Niðurstöður fjölþjóðlegrar rannsóknar á því hvort nota megi DNA örflögutækni við tegundagreiningu á fiski hafa nú verið birtar í tímaritinu Marine Biotechnology. Höfundar greinarinnar eru m.a. Dr. Sigríður Hjörleifsdóttir, Dr. Guðmundur Óli Hreggviðsson og Dr. Viggó Marteinsson, sem öll eru starfsmenn Matís.

Lesa meira
 
Nemendahópur veturinn 2007-08

Útskrift Sjávarútvegsskóla Háskóla S.þ. - 5.3.2008

Föstudaginn 29. febrúar luku 23 nemendur námi sínu frá Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, og er þetta 9. árgangurinn sem hefur lokið sex mánaða námi við skólann.

Lesa meira

 
vinnsla

Fljótlegar gæðamælingar við matvælavinnslu - 3.3.2008

Á Vinnslu- og vöruþróunarsviði Matís er unnið að verkefni sem hefur það að markmiði að bæta ferlastýringu í matvælum. Því verður náð með því að rannsaka nýjar fljótlegar mæliaðferðir á gæðavísum matvæla og hanna matvinnsluferla sem notfæra sér þessar aðferðir.

Lesa meira
 
Nordic Sensory Identity logo

Áhugaverð ráðstefna: The Nordic Sensory Identity - 28.2.2008

Dagana 28.-30. maí verður haldin ráðstefna í Gautaborg um það helsta sem er á baugi í skynmati og um hvernig rannsóknir og tækni á þessu sviði geti gagnast matvælaiðnaði. Ráðstefnan er ætluð bæði þeim sem stunda rannsóknir sem og þeim sem starfa í iðnaðinum. Vakin er athygli á að þeir sem vilja nýta sér afsláttarkjör þurfa að skrá sig fyrir 3. mars, en þá hækkar skráningargjaldið.

Lesa meira
 
Sasan Rabieh við nýja tækið á Matís

Nýr búnaður hraðar greiningum á ólífrænum snefilefnum - 25.2.2008

Efnarannsóknadeild Matís hefur tekið í notkun nýtt tæki til að undirbúa sýni til mælinga á ólífrænum snefilefnum eins og blýi, kvikasilfri, járni og kopar. Í tækinu er örbylgjum og þrýstingi beitt til að leysa sýnin fullkomlega upp í sýru. Með þessu móti er hægt að undirbúa sýnin á fáeinum mínútum í stað 12 klukkustunda í eldri búnaði Matís. Búnaðurinn er notaður bæði fyrir sýni frá viðskiptavinum og fyrir rannsóknaverkefni Matís.

Lesa meira

 
Wang Tao

Andoxunarefni í þörungum - 21.2.2008

Á Líftæknisviði Matís eru vísindamenn m.a. að rannsaka hvort nýta megi þráahindrandi efni úr þörungum sem íböndunarefni í ýmsar heilsuvörur og markfæði sem er ört stækkandi markaður.

Lesa meira

 
norrann-matur

Það besta frá Norðurlöndunum í Reykjavík í næstu viku! - 14.2.2008

Dagana 17.–24. febrúar verður haldin matarhátíð í Norræna húsinu í Reykjavík. Hátíðin ber yfirskriftina Ný norræn matarhátíð og þar kemur Matís nokkuð við sögu.

Lesa meira
 
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, fjallar um kosti FisHmark.

Hugbúnaður sem stuðlar að bættri afkomu fiskveiða og fiskvinnslu - 14.2.2008

FisHmark er íslenskur hugbúnaður fyrir sjávarútvegsfyrirtæki sem leggur til hagkvæmasta fyrirkomulagið að veiðum og vinnslu á fiski, getur aukið virði sjávarfangs og um leið stuðlað að auknum hagnaði fyrirtækja. Frumgerð að búnaðinum er tilbúin og stefnt er að því að sjávarútvegsfyrirtæki geti tekið hann í notkun á næsta ári. Búnaðurinn var kynntur á blaðamannafundi í dag, 14. febrúar. Lesa meira
 
Fiskveiðar.

Rýrnun á fiski í gámum lítil - 13.2.2008

„Í rannsóknum okkar á rýrnun á fiski í gámum hafa komið fram fremur lágar tölur. Langt undir 10%. Þegar þessi útflutningur var hvað mestur 1986, mældum við þetta í nokkrum tilfellum. Þá kom í ljós að rýrnun í þorski var 1 til 2%. Síðan var gerð mun ítarlegri tilraun fyrir um einu og hálfu ári. Þá fluttum við fiskinn ekki út, en líktum eftir slíkum innflutningi á rannsóknastofu okkar. Þá kom í ljós að þetta var um 2 til 4% í þorski og eitthvað aðeins minna í ufsa,“ segir Sigurjón Arason, verkefnastjóri hjá Matís í samtali við Morgunblaðið, 13. febrúar. Lesa meira
 
Frá skynmati hjá Matís

Matís með formennsku í European Sensory Network - 12.2.2008

Emilía Martinsdóttir, deildarstjóri á Vinnslu- og vöruþróunarsviði Matís, tók í byrjun árs við formennsku í European Sensory Network (ESN) sem eru alþjóðleg samtók rannsóknastofnana og fyrirtækja á sviði skynmats og neytendarannsókna. Emilía mun gegna formennsku næstu tvö árin.

Lesa meira
 
Brauð

Hollara brauð með byggi - 9.2.2008

Hægt er að auka hollustu brauðvara með því að nota að hluta til bygg í staðinn fyrir hveiti, að því er fram kemur í rannsókn Matís (Matvælarannsóknir Íslands) og Landbúnaðarháskóla Íslands. Í byggi eru trefjaefni sem geta lækkað kólestról í blóði og haft dempandi áhrif á blóðsykur. Lesa meira
 
matis

Aukið virði sjávarfangs: FisHmark-hugbúnaður - 6.2.2008

Þann 14. febrúar n.k. verður kynnt til sögunnar frumgerð hugbúnaðar, FisHmark, sem gerir stjórnendum sjávarútvegsfyrirtækja mögulegt að framkvæma nákvæmari áætlanagerð í fiskveiðum. AVS hefur styrkt verkefnið. Fundurinn, sem fer fram á 2. hæð á Radisson Saga Hótel, hefst klukkan 13:30. Lesa meira
 
Öskudagur 2008

Öskudagurinn á Matís - 6.2.2008

Landsmenn hafa væntanlega ekki varhluta af því að í dag er Öskudagurinn og yngri kynslóðin á ferli í alls kyns múnderingum. Nokkrir hópar hafa litið inn hjá Matís í Borgartúni 21 og sungið, sumir m.a.s. á dönsku! Við fengum að smella myndum af þessum kátu gestum.

Lesa meira
 
Hamborgari

Dregið hefur úr transfitusýrum í matvælum - 5.2.2008

Dregið hefur úr transfitusýrum í matvælum hér á landi á síðustu árum, að því er fram kom í viðtali Fréttastofu Stöðvar 2 við Ólaf Reykdal verkefnastjóra hjá Matís. "Það hafa verið gerðar einstaka mælingar en fáar á allara seinustu árum, þær sýna að í vissum vörum hafa, hefur dregið úr magni transfitusýra," sagði Ólafur í samtali við Stöð 2. Lesa meira
 
Framadagar

Bás Matís vinsæll á Framadögum - 3.2.2008

Háskólanemendur sýndu bás Matís mikinn áhuga á Framadögum, sem fram fóru í Háskólabíói 1. febrúar. Á Framadögum kynnti Matís starfsemi sína og bauð nemendum að vinna að verkefnum eða athuga möguleika um sumarvinnu. Lesa meira
 
Sveinn Margeirsson

Ekki sama hvenær og hvar fiskur er veiddur - 30.1.2008

Nú er unnið að því að kortleggja hvernig best sé að haga veiðum með tilliti til vinnslu. Hvernig hámarka megi afrakstur bæði útgerðar og fiskvinnslu með því að nýta upplýsingar um gæði fisks eftir veiðisvæðum og árstíma og beina sókninni eftir því. Þannig fæst betra hráefni til vinnslunnar, sem leiðir svo til arðbærari vinnslu og betri og dýrari afurða. Það er alls ekki sama hvar og hvenær fiskurinn er veiddur, segir í Morgunblaðinu um doktorsverkefni Sveins Margeirssonar. Lesa meira
 
Framadagar

Matís á Framadögum - 25.1.2008

Matís verður með kynningu á starfsemi sinni og verkefnum fyrirtæksins á Framadögum í Háskólabíói næsta föstudag, þann fyrsta 1. febrúar. Markmið með Framadögum er að auka samskipti milli atvinnulífsins og menntasamfélagsins og kynna háskólanemum hin fjöldamörgu tækifæri sem felst í námi þeirra. Lesa meira
 
Katrin I Jakobsen, Bitland, Ólavur Gregersen, framkvæmdastjóri Bitland, Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís, og Guðjón Þorkelsson, sviðsstjóri Matís.

Matís býður þjónustu sína víðar í Norður-Evrópu - 22.1.2008

Matvælarannsóknir Íslands (Matís) hafa gert samstarfssamning við nýsköpunarfyrirtækið Bitland Enterprises (BE) sem gerir Matís mögulegt að bjóða þjónustu og ráðgjöf sína á fleiri stöðum í Norður-Evrópu en áður. Má þar nefna samstarf við fyrirtæki í matvælaiðnaði og samstarfsverkefni í gegnum rannsóknasjóði í Evrópu. Lesa meira
 
Hardfisksauglysing

Próteinbombur: Harðfisksskýrsla Matís notuð í auglýsngu - 20.1.2008

Harðfisksframleiðandinn Gullfiskur beitti nýstárlegu bragði í auglýsingu í fjölmiðlum þegar fyrirtækið vísaði í skýrslu Matís um hollustu harðfisks. Í auglýsingunni, sem er undir heitinu Próteinbombur, segir að samkvæmt nýrri skýrslu Matís sé harðfiskur enn hollari en talið var.

Lesa meira
 
Sveinn Margeirsson

Starfsmaður Matís ver doktorsverkefni sitt - 15.1.2008

Sveinn Margeirsson, deildarstjóri hjá Matís, varði doktorsverkefni sitt við verkfræðideild Háskóla Íslands á föstudaginn, 18. janúar. Verkefnið, sem nefnist Vinnsluspá þorskafla, fjallar um hvernig hægt er að hámarka afrakstur fiskveiða. Lesa meira
 
Drykkjarvatn

Hreint og gott drykkjarvatn: Námskeið - 11.1.2008

NMKL (Nordisk Metodikkomité for Næringsmidler) bíður nú námskeið í skynmati á drykkjarvatni hjá Matís við Skúlagötu þann 12. febrúar. Námskeiðið byggir á nýrri og viðurkenndri skynmatsaðferð norrænnar nefndar um greiningu matvæla (NMKL). Aðferðin er ein af fyrstu skynmatsaðferðunum sem hefur verið sannprófuð á milli rannsóknastofa og gefur hlutlægar og endurtakanlegar niðurstöður þegar hún er framkvæmd rétt. Fram að þessu hefur skynmat á vatni ekki verið samræmt á milli rannsóknastofa.

Lesa meira
 
matis

Atvinna á Höfn: Sérfræðingur í vöruþróun - 9.1.2008

Matís auglýsir eftir sérfræðingi í vöruþróun á starfsstöðina á Höfn sem er ætlað að því að efla matarferðamennsku á Suðausturlandi. Æskilegt er að viðkomandi starfsmaður búi á svæðinu. Lesa meira
 
Námskeið í Mósambík

Matís í Mósambík: Fjölda íbúa tryggt öruggt neysluvatn - 8.1.2008

Eftirlitsstofnun í sjávarútvegi í Mósambík getur nú tryggt íbúum þriggja borga öruggt neysluvatn og eflt gæðaeftirlit í matvælaframleiðslu að loknu námskeiði Matís í örverumælingum þar í landi. Lesa meira
 
Úr verslun.

Hugsandi fólk borðar hollt - 4.1.2008

Hugsandi fólk framtíðarinnar borðar hollt, reykir ekki og er vel borgandi, að því er fram kemur í viðtali við Ragnar Jóhannsson, sviðstjóra hjá Matís, í Morgunblaðinu. Hann segir að hér fari sístækkandi markaður, sem vert væri að gera út á. Lesa meira
 
Matarferðamennska

Matarferðamennska verði efld - 3.1.2008

Matís vill efla matarferðamennsku á Suðausturlandi og óskar fyrirtækið eftir samstarfi við áhugasama aðila á svæðinu sem búa yfir góðri hugmynd að staðbundinni matvöru. Guðmundur H. Gunnarsson, verkefnastjóri Matís á Höfn, segir að markmiðið með verkefninu sé að efla atvinnulíf og auka framlegð með frekari vinnslu staðbundinna afurða á svæðinu. Lesa meira
 
Úrval fiskrétta.

Aukin fræðsla eykur ánægju fiskneytenda - 2.1.2008

Fólk nýtur fiskmáltíðar betur og getur hugsað sér að kaupa fisk oftar ef það fær kennslu í gæðamati á fiski, að því er fram kemur í könnun sem Matís gerði meðal fiskneytenda. Lesa meira
 


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica