Okkar rannsóknir, allra hagur

Fréttir

Nordic Sensory Identity logo

Áhugaverð ráðstefna: The Nordic Sensory Identity - 28.2.2008

Dagana 28.-30. maí verður haldin ráðstefna í Gautaborg um það helsta sem er á baugi í skynmati og um hvernig rannsóknir og tækni á þessu sviði geti gagnast matvælaiðnaði. Ráðstefnan er ætluð bæði þeim sem stunda rannsóknir sem og þeim sem starfa í iðnaðinum. Vakin er athygli á að þeir sem vilja nýta sér afsláttarkjör þurfa að skrá sig fyrir 3. mars, en þá hækkar skráningargjaldið.

Lesa meira
 
Sasan Rabieh við nýja tækið á Matís

Nýr búnaður hraðar greiningum á ólífrænum snefilefnum - 25.2.2008

Efnarannsóknadeild Matís hefur tekið í notkun nýtt tæki til að undirbúa sýni til mælinga á ólífrænum snefilefnum eins og blýi, kvikasilfri, járni og kopar. Í tækinu er örbylgjum og þrýstingi beitt til að leysa sýnin fullkomlega upp í sýru. Með þessu móti er hægt að undirbúa sýnin á fáeinum mínútum í stað 12 klukkustunda í eldri búnaði Matís. Búnaðurinn er notaður bæði fyrir sýni frá viðskiptavinum og fyrir rannsóknaverkefni Matís.

Lesa meira

 
Wang Tao

Andoxunarefni í þörungum - 21.2.2008

Á Líftæknisviði Matís eru vísindamenn m.a. að rannsaka hvort nýta megi þráahindrandi efni úr þörungum sem íböndunarefni í ýmsar heilsuvörur og markfæði sem er ört stækkandi markaður.

Lesa meira

 
norrann-matur

Það besta frá Norðurlöndunum í Reykjavík í næstu viku! - 14.2.2008

Dagana 17.–24. febrúar verður haldin matarhátíð í Norræna húsinu í Reykjavík. Hátíðin ber yfirskriftina Ný norræn matarhátíð og þar kemur Matís nokkuð við sögu.

Lesa meira
 
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, fjallar um kosti FisHmark.

Hugbúnaður sem stuðlar að bættri afkomu fiskveiða og fiskvinnslu - 14.2.2008

FisHmark er íslenskur hugbúnaður fyrir sjávarútvegsfyrirtæki sem leggur til hagkvæmasta fyrirkomulagið að veiðum og vinnslu á fiski, getur aukið virði sjávarfangs og um leið stuðlað að auknum hagnaði fyrirtækja. Frumgerð að búnaðinum er tilbúin og stefnt er að því að sjávarútvegsfyrirtæki geti tekið hann í notkun á næsta ári. Búnaðurinn var kynntur á blaðamannafundi í dag, 14. febrúar. Lesa meira
 
Fiskveiðar.

Rýrnun á fiski í gámum lítil - 13.2.2008

„Í rannsóknum okkar á rýrnun á fiski í gámum hafa komið fram fremur lágar tölur. Langt undir 10%. Þegar þessi útflutningur var hvað mestur 1986, mældum við þetta í nokkrum tilfellum. Þá kom í ljós að rýrnun í þorski var 1 til 2%. Síðan var gerð mun ítarlegri tilraun fyrir um einu og hálfu ári. Þá fluttum við fiskinn ekki út, en líktum eftir slíkum innflutningi á rannsóknastofu okkar. Þá kom í ljós að þetta var um 2 til 4% í þorski og eitthvað aðeins minna í ufsa,“ segir Sigurjón Arason, verkefnastjóri hjá Matís í samtali við Morgunblaðið, 13. febrúar. Lesa meira
 
Frá skynmati hjá Matís

Matís með formennsku í European Sensory Network - 12.2.2008

Emilía Martinsdóttir, deildarstjóri á Vinnslu- og vöruþróunarsviði Matís, tók í byrjun árs við formennsku í European Sensory Network (ESN) sem eru alþjóðleg samtók rannsóknastofnana og fyrirtækja á sviði skynmats og neytendarannsókna. Emilía mun gegna formennsku næstu tvö árin.

Lesa meira
 
Brauð

Hollara brauð með byggi - 9.2.2008

Hægt er að auka hollustu brauðvara með því að nota að hluta til bygg í staðinn fyrir hveiti, að því er fram kemur í rannsókn Matís (Matvælarannsóknir Íslands) og Landbúnaðarháskóla Íslands. Í byggi eru trefjaefni sem geta lækkað kólestról í blóði og haft dempandi áhrif á blóðsykur. Lesa meira
 
matis

Aukið virði sjávarfangs: FisHmark-hugbúnaður - 6.2.2008

Þann 14. febrúar n.k. verður kynnt til sögunnar frumgerð hugbúnaðar, FisHmark, sem gerir stjórnendum sjávarútvegsfyrirtækja mögulegt að framkvæma nákvæmari áætlanagerð í fiskveiðum. AVS hefur styrkt verkefnið. Fundurinn, sem fer fram á 2. hæð á Radisson Saga Hótel, hefst klukkan 13:30. Lesa meira
 
Öskudagur 2008

Öskudagurinn á Matís - 6.2.2008

Landsmenn hafa væntanlega ekki varhluta af því að í dag er Öskudagurinn og yngri kynslóðin á ferli í alls kyns múnderingum. Nokkrir hópar hafa litið inn hjá Matís í Borgartúni 21 og sungið, sumir m.a.s. á dönsku! Við fengum að smella myndum af þessum kátu gestum.

Lesa meira
 
Hamborgari

Dregið hefur úr transfitusýrum í matvælum - 5.2.2008

Dregið hefur úr transfitusýrum í matvælum hér á landi á síðustu árum, að því er fram kom í viðtali Fréttastofu Stöðvar 2 við Ólaf Reykdal verkefnastjóra hjá Matís. "Það hafa verið gerðar einstaka mælingar en fáar á allara seinustu árum, þær sýna að í vissum vörum hafa, hefur dregið úr magni transfitusýra," sagði Ólafur í samtali við Stöð 2. Lesa meira
 
Framadagar

Bás Matís vinsæll á Framadögum - 3.2.2008

Háskólanemendur sýndu bás Matís mikinn áhuga á Framadögum, sem fram fóru í Háskólabíói 1. febrúar. Á Framadögum kynnti Matís starfsemi sína og bauð nemendum að vinna að verkefnum eða athuga möguleika um sumarvinnu. Lesa meira
 


Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica