janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember

Efnarannsóknardeild Matís ohf býður áhugasömum nemenda í efnafræði eða lífefnfræði styrk til mastersnáms (MSc) á sviði snefilefnagreininga
Titill verkefnis er Greining eitraðra og hættulausra efnaforma arsens í fiskimjöli með HPLC-ICP-MS
Þann 18. júní s.l. var haldinn fundur hér á landi á vegum SAFEFOODERA EraNet verkefnisins, en hér er um að ræða alþjóðlegt samstarfsverkefni sem hefur að markmiði að efla matvælaöryggi. Verkefnið heyrir undir 7. rannsóknaáætlun Evrópusambandsins (7. RÁ ESB), en einn lykilþáttur í 7. RÁ er uppbygging Evrópska rannsóknasvæðisins (ERA).
Makríll hefur hingað til ekki talist til nytjastofna á Íslandsmiðum, enda eru heimkynni hans einkum út af Austurstönd N-Ameríku, í Norðursjó, Miðjarðarhafi og Svartahafi. Á síðustu árum hafa íslensk síldveiðiskip hins vegar orðið vör við makríl í auknum mæli og hafa skipin veitt makríl í bland við norsk-íslensku síldina austur af landinu síðsumars. Makríll er mjög verðmikill fiskur og verðið er oft yfir 100 kr/kg. fyrir ferskan haustveiddan fisk í vinnslu og fyrir frosinn slægðan fisk veiddan yfir sumartímann. Á Matís er nú að fara af stað verkefni sem kallast Veiðar, flokkun, vinnsla og markaðir fyrir makríl veiddan af uppsjávarskipum.
Lesa meira
Meðfylgjandi eru rannsóknaráherslurnar og umsóknarleiðbeiningar. Alls eru 6 milljón evrur í pottinum. Lesið meira til að kynna ykkur nánari upplýsingar um helstu rannsóknaráherslur.
Lesa meiraMatís–Prokaria keypti nýlega raðgreiningarvél af gerðinni Roche/454 Life Science. Að sögn Ragnars Jóhannssonar, sviðsstjóra Líftæknisviðs Matís, getur tækið raðgreint mikið magn erfðaefnis í einu og opnar nýja vídd við leit að áhugaverðum genum fyrir ný ensím sem nota má í lyfja-, matvæla- og orkuiðnaði. Þessi gen er að finna í örverum sem lifa í heitum hverum í allt að 100 stiga hita og við mjög mismunandi seltu og sýrustig, segir Ragnar.
Lesa meira
Á Matís er að hefjast vinna við verkefni sem ber heitið: “Nýr vinnsluferill fyrir framleiðslu á Lútfiski”. Verkefnið er styrkt af AVS rannsóknarsjóði í sjávarútvegi og verður unnið með Fram Foods sem er með stóra markaðshlutdeild á lútfiski á Norðurlöndunum.
Nýr fjármálastjóri hóf störf á Matís um s.l. mánaðarmót, Sigríður Hrönn Theódórsdóttir, og tók hún við starfinu af Aðalbjörgu Halldórsdóttur. Sigríður er rekstrarhagfræðingur frá Fachhochschule Munchen, og hefur víðtæka reynslu af atvinnulífinu.
Lesa meira
Á Matís er nú að hefjast vinna við verkefni sem ber heitið: ” Brjósksykrur og lífvirk efni úr sæbjúgum” og var ræsfundur í verkefninu haldinn í morgun. Verkefnið mun ganga út á þróun á vinnsluferli lífvirkra efna úr sæbjúgum, allt frá vinnslu chondroitin sulfats úr sæbjúgum til framleiðslu og hreinsunar á chondroitin sulfat fásykrum sem unnar eru með sérvirkum sykursundrandi ensímum.
Lesa meira
Í gær, 3. júní, var samþykkt á stjórnarfundi Matís að ganga til samninga við Háskólann í Reykjavík (H.R.) um framtíðarhúsnæði fyrirtækisins. Lóðin, sem hið nýja húsnæði mun rísa á, stendur vestan við nýbyggingu Háskólans í Reykjavík við Hlíðarfót í jaðri Öskjuhlíðar. Einnig buðu Vísindagarðar Háskóla Íslands ehf og S8 ehf húsnæði til leigu, en framangreind niðurstaða varð úr þar eð tilboð H.R. var hagstæðast þeirra tilboða er bárust.
Lesa meira
Mánudaginn 2. júní heldur Bjarni Jónasson meistaravörn sína á sviði fiskeldis. Vörnin fer fram kl. 10:00 og verður í stofu K109 á Sólborg. Verkefni Bjarna heitir “Replacing fish oil in Arctic charr diets. Effect on growth, feed
utilization and product quality” og var hluti af stærra verkefni, “Plöntuhráefni í
bleikjufóðri í stað fiskimjöls og lýsis” sem styrkt var af AVS sjóðnum.