Fréttir

Haftengd nýsköpun – nýtt nám!

Þjónustuflokkur:

Aðrir þjónustuflokkar

Matís er samstarfsaðili að nýrri námslínu í haftengdri nýsköpun sem kennd verður í Vestmannaeyjum haustið 2016. Í nýju námi er áhersla lögð á samspil nýsköpunar, viðskipta og sjávarútvegs og þar með á tækifæri og möguleika til sköpunar og atvinnu í faginu. Sannkallað menntaævintýri í Eyjum í eitt ár sem leiðir af sér diplóma gráðu og grunn til áframhaldandi náms fyrir þá sem vilja nema meira. Frábært tækifæri til menntunar í nánu samstarfi við atvinnulífið og þar á meðal okkur.

Um er að ræða diplómanám (84 ECTS) sem þjálfar nemendur í að nýta þekkingu viðskipta- og sjávarútvegsfræða til að vinna að raunhæfum verkefnum. Kennsla fer fram í Vestmannaeyjum og er áhersla lögð á sterk tengsl við atvinnulífið. Námið er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri en

Mikillar fagþekkingar og kunnáttu er krafist í íslenskum sjávarútvegi. Velgengni atvinnugreinarinnar byggist á öflugri virðiskeðju sem nær allt frá veiðum til markaðssetningar og sölu erlendis. 

Að námi loknu hlýtur nemandi diplómagráðu sem nýtist á vinnumarkaði og getur jafnframt fengið einingar metnar í áframhaldandi nám við HR eða HA. 

Raunverkefni

Nemendur vinna styttri og lengri verkefni sem snúa meðal annars að vinnslutækni, skráningu, ferlum, markaðsmálum og mannauðsstjórnun.

Þátttaka í tímum

Sérfræðingar og stjórnendur fyrirtækja taka virkan þátt í kennslustundum með því að deila reynslu sinni og fagþekkingu.

Samvinna í verkefnum

Nemendur vinna verkefni í samstarfi við fyrirtæki. Fyrirtækin eru jafnframt tilbúin til að veita nemendum starfsaðstöðu og ýmsa aðra aðstoð, aðgang að framleiðslutækjum og upplýsingum eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar má finna á vef Háskólans í Reykjavík og á Facebook síðu námsins.