Okkar rannsóknir, allra hagur

Vinnufundur um línuveiðar

21/7/2010

Eldisþorskur
"Pottþéttur" íslenskur þorskur

Matís, Nofima, Háskólinn í Tromsö og Havstovan í Færeyjum standa fyrir vinnufundi um línuveiðar 19. og 20. október næstkomandi hér á Íslandi.

 

Á vinnufundinum verður hugað að virðiskeðju línufisks með tilliti til veiða, vinnslu, markaðssetningar, gæða og umhverfisáhrifa.  Á fundinum munu sérfræðingar á þessum sviðum halda framsögu og á eftir fara fram umræður með þátttakendum.  Þess er vænst að fundurinn muni leiða saman þá er koma að virðiskeðju línufisks á Norðurlöndunum og muni greiða fyrir samstarfi þeirra á milli í komandi framtíð.

Vinnufundurinn verður haldinn að Gullhömrum, Þjóðhildarstíg 12, 113 Reykjavík

Þátttaka er öllum heimil og gjaldfrjáls.

Dagskrá vinnufundarins má sjá hér.

Allar nánari upplýsingar veitir Jónas Rúnar Viðarsson jonas.r.vidarsson(hja)matis.is

 

Senda grein



Tungumál



Leturstærðir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica