Rækjufreisting (fyrir 6)
- 6 harðsoðin egg
- 1/3 bolli majónsósa
- 1/2 tsk sinnep
- 1/4 tsk salt
- 1/4 tsk laukduft
- 1/8 tsk sterk piparsósa, t.d. Tabasco
- paprikuduft
- 50 g smjör
- 3 msk hveiti
- 1/8 tsk oregano
- 21/2 dl mjólk
- 100 g 26% ostur, rifinn
- 1/4 dós (um 125 g) sneiddir sveppir
- 500 g frosið sprotakál
- 500 g rækjur
- 4-5 msk nýrifinn parmesan
Skerið eggin langsum í tvennt og setjið rauðurnar í skál. Hrærið majónsósu saman við rauðurnar, ásamt sinnepi, salti, laukdufti og piparsósu. Hrærið vel saman. Setjið hræruna í sprautupoka og sprautið ofan í hvíturnar. Stráið paprikudufti yfir. Kælið. Hitið ofninn í 175°C. Sjóðið sprotakálið og sigtið vökvann frá. Bræðið smjörið og blandið hveiti og oregano saman við. Bætið mjólkinni út í. Hrærið þar til þetta fer að þykkna. Bætið ostinum út í og hrærið þar til hann er bráðnaður. Látið leka vel af sveppunum. Bætið sveppum, rækjum og sprotakáli út í sósuna og látið suðuna koma upp. Hellið þessu í eldfast mót. Raðið eggjahelmingunum meðfram brúnunum og stráið parmesan yfir. Bakið í 15-20 mín. Berið fram með soðnum hrísgrjónum.

